META vinnustofa

30sept14:0016:00META vinnustofa

Nánari upplýsingar

Meta vinnustofa, þar sem þátttakendur fá aðstoð við að setja upp keyptar auglýsingar á Facebook og Instagram, verður haldin miðvikudaginn 30. september næstkomandi milli kl. 14:00 – 16:00. Viðburðurinn fer fram í Auðarstofu, Búðardal.
Vinnustofan er ætluð fyrirtækjarekendum sem eru virkir á samfélagsmiðlum og vilja taka næsta skref í sýnileika á samfélagsmiðlum. Farið verður yfir uppsetningu auglýsinga skref fyrir skref og fær hver og einn endurgjöf á sína auglýsingu. Meðal þess sem við munum skoða er verðlagning auglýsinga, rétt uppsetning markhópa og rétt val á texta í auglýsingar.
Fyrr um daginn verða í boði 40 mín ráðgjafa tímar líkt og síðustu mánuði. Þeir eru ætlaði fyrirtækjarekendum óháð reynslu þeirra við samfélagsmiðla eða af markaðsmálum almennt.
Bókanir á vinnustofu og í ráðgjafatíma skulu berast á thelma@haukey.is.
Gjaldfrjálst er á bæði vinnustofu og í ráðgjafatíma. 

Meira

Klukkan

30. september, 2026 14:00 - 16:00(GMT+00:00)

Staðsetning

Auðarstofa - Nýsköpunar- og fræðasetur Dalabyggðar (Stjórnsýsluhúsi)

Miðbraut 11

Aðrir viðburðir

Leiðarvísir