META vinnustofa
30sept14:0016:00META vinnustofa
Nánari upplýsingar
Meta vinnustofa, þar sem þátttakendur fá aðstoð við að setja upp keyptar auglýsingar á Facebook og Instagram, verður haldin miðvikudaginn 30. september næstkomandi milli kl. 14:00 – 16:00. Viðburðurinn fer fram
Nánari upplýsingar
Meta vinnustofa, þar sem þátttakendur fá aðstoð við að setja upp keyptar auglýsingar á Facebook og Instagram, verður haldin miðvikudaginn 30. september næstkomandi milli kl. 14:00 – 16:00. Viðburðurinn fer fram í Auðarstofu, Búðardal.
Vinnustofan er ætluð fyrirtækjarekendum sem eru virkir á samfélagsmiðlum og vilja taka næsta skref í sýnileika á samfélagsmiðlum. Farið verður yfir uppsetningu auglýsinga skref fyrir skref og fær hver og einn endurgjöf á sína auglýsingu. Meðal þess sem við munum skoða er verðlagning auglýsinga, rétt uppsetning markhópa og rétt val á texta í auglýsingar.
Fyrr um daginn verða í boði 40 mín ráðgjafa tímar líkt og síðustu mánuði. Þeir eru ætlaði fyrirtækjarekendum óháð reynslu þeirra við samfélagsmiðla eða af markaðsmálum almennt.
Bókanir á vinnustofu og í ráðgjafatíma skulu berast á thelma@haukey.is.
Gjaldfrjálst er á bæði vinnustofu og í ráðgjafatíma.
Meira
Klukkan
30. september, 2026 14:00 - 16:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Auðarstofa - Nýsköpunar- og fræðasetur Dalabyggðar (Stjórnsýsluhúsi)
Miðbraut 11
Aðrir viðburðir