
Sveitarstjóri Dalabyggðar er Lilja Björg Ágústsdóttir og var ráðin til starfa 2. júní 2026.
Lilja Björg er fædd og uppalin í Búðardal og bjó þar fram að framhaldsskólaaldri. Lilja er gift Þorsteini Pálssyni, rekstraverkfræðingi og eiga þau þrjá syni saman en fyrir á Lilja einn eldri son. Eiga þau eina ömmu og afastelpu fædda árið 2026.
Lilja Björg er með meistaragráðu í lögfræði (ML) og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, auk grunnskólakennaramenntunar frá Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt aflað sér réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi.
Lilja hefur komið að sveitarstjórnarmálum frá árinu 2012 og býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu af stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga bæði sem kjörinn fulltrúi og starfsmaður. Lilja starfaði síðast sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu hjá Borgarbyggð þar sem hún bar ábyrgð á framkvæmd stjórnsýslu og fjármála auk þess að gegna hlutverki staðgengils sveitarstjóra. Hún hefur starfað tímabundið sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og sinnt fjölbreyttum lögfræðistörfum, bæði sem sérfræðingur hjá Akraneskaupstað og sem lögmaður og meðeigandi lögmannsstofu.
Lilja hefur einnig gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnarstarfa, þar á meðal sem forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar, formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og aðalmaður í stjórn Sambands sveitarfélaga.
Netfangið hjá Lilju er sveitarstjori@dalir.is