Á þessari síðu eru birtar kynningar þeirra einstaklinga sem sækjast eftir kjöri í Dalabyggð í sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026.
Athugið að kynningar eru birtar í þeirri röð sem þær berast.
Kynningar þurfa að berast með fullu nafni og heimilisfangi viðkomandi, því þær upplýsingar þarf að rita á kjörseðil. Þá biðjum við um að hver kynning sé ekki lengri en 400 orð og gott að láta mynd fylgja með.
Viltu fá þína kynningu birta hér? Sendu tölvupóst á johanna@dalir.is
KYNNINGAR
Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Jörfa 2
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Fyrir ykkur sem ekki þekkið mig hef ég búið í Dölunum í 12 ár og bý á Jörva (skráð Jörfi 2 í Þjóðskrá) ásamt Reyni Guðbrandssyni. Ég hef starfað fyrir Eiríksstaði síðan 2019, en var þar á undan ferðamálafulltrúi Dalabyggðar.
Starfsreynsla mín er á víðu sviði, listkennslu, atvinnuráðgjöf, háskólakennslu, ferðaþjónustu, en einnig vann ég á öldrunarheimilum og sambýlum fatlaðra meðfram skóla hér í eina tíð. Ég hef rekið listagallerí, unnið við markaðssetningu á snyrtivörum og hef meðfram öllu þessu verið að moldvarpast í garðinum mínum.
Ég starfaði í umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar síðustu átta ár og í atvinnumálanefnd síðustu fjögur. Atvinnumálanefndin vann innviðagreiningu, sem er gott aðhald við stjórnvöld um vegi, rafmagn og fjarskipti. Ég hef mikinn áhuga á skipulagsmálum og finn hversu mikilvæg þau eru, til að búa til jarðveg fyrir öflugt samfélag. Vann ég við síðasta aðalskipulag sveitarfélagsins frá upphafi og tók þátt í þeirri miklu vinnu sem hefur fylgt áformum um vindmylluvirkjanir í héraðinu á þessum tíma.
Mig langar til að sveitarfélagið haldi áfram að blómstra eins og það hefur gert síðustu ár, með bjartsýni, jákvæðni og mörgum spennandi nýjum sprotum í atvinnulífi og félagslífi. Góður andi og öflugt mannlíf er svo mikil kjölfesta í samfélagi að það verður aldrei nógsamlega metið. Hluti þess að passa upp á mannlífið er að hugsa um fólkið okkar og styðja það, óháð aldri, allt frá ungviði, til öldunga.
Sveitarfélagið er okkar allra og við berum öll ábyrgð á því að það þjóni okkur frá vöggu til grafar. Raddir íbúanna eru mikilvægar og fannst mér m.a. mjög gott og gaman að fá álit nemenda Auðarskóla, þegar við í stjórn DalaAuðs vorum að hefja verkefnið. Eins að fá sýn og viðhorf eldri borgara þegar við funduðum með þeim. Í litlu sveitarfélagi þarf fólk í sveitarstjórn að horfa í allar áttir og setja sig inn í ólíklegustu mál. Það í sjálfu sér hljómar sérlega spennandi í mínum huga.
Ef ég fæ kosningu hlakka ég til að takast á við fjármál sveitarfélagsins, eftir þá skuldaaukningu, sem ný íþróttaaðstaða hefur haft í för með sér. Það er mikilvægt að Dalirnir geti haldið áfram að vaxa þrátt fyrir skuldsetningu og við getum notið fjárfestingarinnar öll saman. Ég tel hana vera skref fram á við, til móts við þarfir íbúa. Mér finnst mikilvægt að allir íbúar telji sig bakland sveitarstjórnar og fer í þessa vegferð með það viðhorf að ég starfi í þágu alls samfélagsins.
Guðrún Erna Magnúsdóttir, Borgarbraut 5
FRAMBOÐ TIL 2. VARAMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Ég heiti Gúðrún Erna Magnúsdóttir og er 69 ára kennari á eftirlaunum. Ég var fjórði varamaður í sveitarstjórn Dalabyggðar þetta kjörtímabil og sat í Félagsmálanefnd. Ég býð mig nú fram í annað sæti varamanns.
Ég er fædd og uppalin í Stykkishólmi og bjó þar svo til alla tíð og starfaði við kennslu þar til við hjónin fluttum í Dalina en ég er gift Pálma Ólafssyni frá Engihlíð í Laxárdal. Í Stykkishólmi tók ég þátt í bæjarpólitíkinni með félagshyggjufólki og sat í barnaverndarnefnd í átta ár.
Guðlaug Kristinsdóttir, Sunnubraut 15
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Kæru Dalamenn.
Fyrir rúmum 4 árum gaf ég kost á mér í undirbúningsnefnd fyrir nýtt íþróttahús í Búðardal og ákvað í framhaldinu að gefa kost á mér í sveitarstjórn Dalabyggðar þá um vorið og náði kjöri.
Síðustu 4 ár hafa verið lærdómsrík, skemmtileg, krefjandi en umfram allt gefandi. Ég hef kynnst mörgu frábæru fólki og fengið að taka þátt í ýmsum verkefnum sem hafa komið inn á borð sveitarstjórnar. Íþróttamannvirkin eru komin í notkun og ánægjulegt að sjá hversu margir eru nú þegar farnir að nýta þau fráveitumálin eru að klárast og Dala Auður hefur hjálpað mörgum að ýta nýjum hugmyndum af stað og jarðvegurinn er frjór hjá Dalamönnum. Ég tel að okkur í núverandi sveitarstjórn hafi auðnast að styðja og styrkja íbúana í sínum verkum og það starf þarf að halda áfram.
Nú eru hins vegar þáttaskil og sveitarstjórnarkosningar fram undan. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til starfa í næstu sveitarstjórn. Þó margt hafi áunnist síðustu 4 árin eru mörg verkefni sem þarf að sinna næstu árin. Sumt í höndum okkar sjálfra en annað sem við þurfum samtal við stjórnvöld um. T.d. vegasamgöngur, síma- og netsamband og orkumál svo eitthvað sé nefnt.
Nýtt aðalskipulag tók gildi á fyrri hluta þessa kjörtímabils en það gildir til 2032, þannig að á seinni hluta næsta kjörtímabils þurfum við að hefja endurskoðun skipulagsins.
Um leið og ég óska eftir stuðningi ykkar, hvet ég aðra íbúa Dalabyggðar til að líta í eigin barm og skoða hvort ekki leynist tilvonandi sveitarstjórnarfulltrúi hjá einhverjum.
Munum að nýta kosningaréttinn og kjósa til sveitarstjórnar 16. maí n.k.
Guðbrandur Tumi Gíslason, Lækjarhvammi 4
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Ágætu Dalamenn.
Sveitarstjórnarkosningar eru framundan og orðið ljóst að margir úr sitjandi sveitarstjórn
munu ekki gefa kost á sér á komandi kjörtímabili sem skapar tækifæri fyrir nýtt fólk til að
stíga inn og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar.
Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér til starfa í sveitarstjórn í komandi kosningum og
vona að ég geti komið með ferskan blæ inn í stjórnsýsluna og lagt lið við góða
ákvarðanatöku í rekstri sveitarfélagsins ásamt því að opna á sem flest tækifæri fyrir
fólkið okkar í Dalabyggð. Uppbygging og nýsköpun er á góðu skriði í Dalabyggð og
mikilvægt að hlúa vel að henni svo hún blómstri áfram og sveitarfélagið með.
Ég er frá Mýrdal í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi og sótti nám í byggingartæknifræði við
Háskólann í Reykjavík áður en ég flutti svo hingað fyrir ári síðan ásamt Kristjönu Önnu
Dagnýjardóttur og Eyþóri syni okkar en í sumar eigum við von á öðru barni okkar. Ég
starfa hjá Límtré Vírnet að heiman en þar vinn ég við hönnun á burðarvirkjum úr límtré
ásamt verkefnastjórnun og skipulagningu á hinum ýmsu verkefnum sem tengjast því.
Er líður að kosningum þykir mér mikilvægt að hvetja sem flesta til að kynna sér og taka
þátt í umræðum um málefni sveitarfélagsins, mæta á kjörstað og nýta kosningarrétt
sinn.
Bestu kveðjur,
Guðbrandur Tumi Gíslason, Lækjarhvammi 4
Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Rauðbarðaholt 2
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Ingibjörg heiti ég en vil helst láta kalla mig Ingu. Ég hef setið í sveitarstjórn Dalabyggðar síðustu fjögur árin, þar af síðustu tvö sem oddviti. Á þeim tíma hef ég kynnst samfélaginu okkar frá mörgum hliðum og öðlast dýrmæta reynslu af stjórnsýslu. Ég býð mig fram til áframhaldandi setu til að fylgja eftir þeim mikilvægu verkefnum sem við höfum hafið.
Ég er 42 ára gömul, gift Einari Hlöðveri Erlingssyni og saman eigum við tvær dætur sem eru 12 ára og 9 ára. Ég er uppalin í Hafnarfirði en flutti í Dalabyggð fyrir tæpum 5 árum síðan í Rauðbarðaholt 2 í Hvammsveit.
Samhliða starfi mínu sem gæðastjóri hjá Nox Medical, þar sem ég ber ábyrgð á flóknum gæðakerfum fyrir lækningatæki, rekum við Urði Ullarvinnslu. Þessi blanda af reynslu úr hátækniiðnaði og nýsköpun í landbúnaði gefur mér breiða sýn á atvinnulífið og rekstur.
Mín helstu baráttumál:
- Öflugt barnastarf: Ég vil fylgja eftir opnun nýju íþróttamiðstöðvarinnar okkar með því að tryggja hámarksnýtingu hennar. Mitt hjartans mál er að tómstundastarf barna sé í beinu framhaldi af skóladegi til að létta undir með fjölskyldum.
- Skynsamlegt samstarf: Ég tel að við eigum að efla samstarf við önnur sveitarfélög á Vesturlandi í stað þess að einblína á sameiningar. Við eigum að sækja fram á okkar eigin forsendum en nýta styrk heildarinnar þar sem það á við.
- Húsnæðisuppbygging: Við megum ekki slá slöku við. Sveitarfélagið á að vera virkur samstarfsaðili verktaka og leigufélaga til að tryggja að fólk geti sest hér að og blómstrað.
Ég hef trú á að áherslumál mín muni stuðla að ennþá betra og fjölskylduvænna samfélagi. Ég vil halda áfram að vinna af heilindum að því að gera samfélagið okkar enn fjölskylduvænna og sterkara fái ég umboð til þess.
Sindri Geir Sigurðarson, Sunnubraut 1a
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Kæru íbúar
Sindri Geir Sigurðarson heiti ég og er alinn upp í Geirshlíð í Hörðudal.
Nú hef ég setið sem varamaður í sveitarstjórn í 8 ár fyrst sem 7. varamaður og nú síðast sem 1. varamaður. Fyrir átta árum vorum við Íris nýstúdentar að flytja aftur heim í foreldrahús en í dag eigum við okkar eigin íbúð og tvær dætur sem við viljum hvergi annars staðar ala upp.
Það hefur verið gaman og fróðlegt að fylgjast með og vera hluti af uppgangum sem hefur náðst síðustu ár hjá sveitarfélaginu.
Nú er einnig lag að halda áfram þeirri vinnu sem hefur verið lögð í þrýsta á stjórnvöld varðandi t.d farsímasambandsleysi í sveitarfélaginu og vegakerfið sem við ferðumst um.
Mín helstu áherslumál munu verða
- Blómlegt íþróttastarf
- Betri nýting á eignum og lóðum/svæðum Dalabyggðar
- Fjölgun starfa í sveitarfélaginu
- Uppbygging atvinnuhúsnæðis
- Gera Dalabyggð að sveitarfélagi þar sem bæði nýjir og brottfluttir íbúar vilja búa
Í dag starfa ég sem verktaki við hin ýmsu verk, ásamt því að stunda nám við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri í fjarnámi. Einnig starfa ég sem hlutastarfandi slökkviliðsmaður hjá okkar góða slökkviliði.
Mig langar að sjá Dalabyggð halda áfram að stefna upp sem samfélag og nýta sér jákvæða kraftinn sem hefur einkennt okkur síðustu ár.
Að því sögðu langar mig að bjóða fram krafta mína í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Sindri Geir Sigurðarson
Þórunn Elva Þórðardóttir, Kjarlaksvöllum
FRAMBOÐ TIL 3. VARAMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Valdís Gunnarsdóttir, Lækjarhvammi 20
FRAMBOÐ TIL 1. VARAMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Valdís Gunnarsdóttir heiti ég (kölluð Vala) og hef veriðviðloðandi Dali síðan sambýlismaður minn, Gísli dýralæknir,réði sig hingað á vordögum 2012.
Ég er fædd árið 1962, lauk stúdentsprófi frá MH ´82, lagðistund á myndlistarnám, en hef aðallega fengist viðviðburðastjórnun, kynningar- og markaðsmál.
Hingað flutti ég með opnum huga á sínum tíma og tók mérýmislegt fyrir hendur, en fyrsta verkefni mitt á vegumsveitarfélagsins var þátttaka í undirbúningi Jörvagleði árið2013. Síðar rak ég Leifsbúð, sat í sveitarstjórn frá 2014-2018, rak tjaldstæðið í Búðardal sumarið 2017 og stofnaðihestaleiguna Dalahesta sama ár ásamt Carolin Baare-Schmidt vinkonu minni.
Í Dölum eru virkilega spennandi tímar framundan enda afar góður andi og mikil bjartsýni ríkjandi hér. Gróskan oguppbyggingin í sveitarfélaginu síðustu misseri er aðdáunarverð. Þar ber hæst nývígð íþróttamiðstöð meðútsýnislaug og -pottum sem eiga eftir að stórauka aðdráttaraflstaðarins. Ég fagna líka frumkvæði íbúa og smærriframkvæmdum, svo sem skúrnum við Ásgarð þar sem fer framsala á matvælum úr héraðinu beint frá frumframleiðendum.
Reynsla mín úr fyrri þátttöku í sveitarstjórn mun að sjálfsögðukoma sér vel nái ég kjöri. Þá mun ég í störfum mínum ávalltgæta fyrst og fremst hagsmuna íbúa sveitarfélagsins og leggjaáherslu á samráð við þá.
Leggjumst öll á eitt, nýtum kosningaréttinn og vinnum saman að því að í Dölum sé eftirsóknarvert að búa, gott að stunda atvinnu og síðast en ekki síst ánægjulegt að sækja okkur heim!
Ingveldur Guðmundsdóttir, Bersatungu
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Ágætu Dalamenn
Ingveldur Guðmundsdóttir heiti ég og starfa sem ritari hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Búðardal. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til starfa í sveitarstjórn Dalabyggðar næsta kjörtímabil. Ég er fædd árið 1968 og uppalin á Heggsstöðum í Hnappadal, gift Arnari Eysteinssyni og eigum við fjögur uppkomin börn, þar af búa synir okkar þrír hér í Dalabyggð. Við byrjuðum okkar sambúð í Stykkishólmi en sveitalífið freistaði og þegar tækifæri gafst árið 1990 fluttum við í Stóra-Holt í Saurbæ þar sem við tókum við sauðfjárbúi. Í dag kalla ég mig uppgjafabónda þar sem haustið 2022 fluttum við okkur að Bersatungu þegar einn sonurinn og tengdadóttir vildu koma heim í sveitina og hefja búskap. Á döfinni hjá okkur er þó að byggja upp útihúsin að Bersatungu og halda þar áfram sauðfjárbúskap meðfram öðrum störfum.
Ég tel mig hafa góða þekkingu og innsýn í rekstur og starfsemi sveitarfélagsins en ég sat í sveitarstjórn Dalabyggðar á árunum 2006-2018, var á þeim árum fulltrúi í byggðarráði í 9 ár ásamt því að sinna fleiri stjórnar- og nefndarstörfum á vegum sveitarfélagsins. Einnig fékk ég tækifæri til að starfa í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi á árunum 2014-2018, þar af formaður í tvö ár. Það var ekki síður lærdómsríkt og góð reynsla þar sem landshlutasamtökin eru mikilvægur vettvangur í sameiginlegri hagsmunagæslu og samvinnu sveitarfélaga innan landshlutans.
Nú þegar við erum komin í mark í því langhlaupi sem bygging íþróttamannvirkjanna í Búðardal hefur verið má ætla að eitt af stóru verkefnunum framundan sé að halda sjó hvað varðar fjármálin en jafnframt stuðla að því að ná sem bestri nýtingu á hverri krónu í þágu íbúanna og til vaxtar sveitarfélagsins. Í mínum huga má m.a. leita hagræðingarleiða í yfirbyggingu sveitarfélagsins svo sem með fækkun sveitarstjórnarfulltrúa og fulltrúa í nefndum.
Verkefni sveitarfélaga eru endalaus og öll viljum við alltaf gera vel og helst betur en það, t.d. hvað varðar fræðslu-, atvinnu-, menningar- og skipulagsmál, ásamt því skapa aðstæður þar sem allir íbúar geta tekið þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Síðan þarf ávallt að standa vörð um og berjast fyrir hagsmunum sveitarfélagsins hvað varðar þau verkefni sem snúa að ríkinu.
Áfram Dalamenn og munum að hamingjan liggur hjá okkur sjálfum
Ingveldur Guðmundsdóttir, Bersatungu
Skjöldur Orri Skjaldarson, Brekkuhvammi 1
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Skjöldur Orri Skjaldarson heiti ég og bíð mig fram í sveitarstjórn Dalabyggðar.
Ég er borinn og barnfæddur Dalamaður, fæddur 1974. Lauk prófi í hestafræðum frá Hólaskóla 1995 og er starfandi slökkviliðsstjóri Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda, lögregla og sjúkraflutningamaður hjá Heilbrigðisstofnun vesturlands. Einnig eigum við fjölskyldan fyrirtækið Dalahesta sem rekur gistiheimili, hestaleigu og tjaldstæðið í Búðardal. Á sumrin er ég yfirleiðsögumaður í Laxá í Dölum
Ég er giftur Carolin Baare-Schmidt og eigum við fjögur börn. Þrjá uppkomna syni og eina dóttir sem er að klára 7.bekk í Auðarskóla. Synir okkar búa allir hér í Búðardal og vilja hvergi annarstaðar vera. Hér höfum við fjölskyldan komið okkur fyrir og unum okkur vel.
Ég starfaði í 16 ár sem kennari við Auðarskóla og tel mig hafa nokkra innsýn í skólamálin en áhugasvið mitt er bráðaþjónustan þ.e. slökkvilið, lögregla og heilbrigðismál. Rekstur þessara málaflokka er afar mikilvægur litlu sveitarfélagi og ljóst að við verðum að berjast með kjafti og klóm til að halda, og helst auka, þessa þjónustu í Dalabyggð.
Hér hafa orðið miklar framfarir síðustu ár með tilkomu nýrra íþróttamannvirkja og aukningu ferðamanna og verðum við að nýta okkur þetta sem mest við getum, láta ekki deigan síga og halda áfram á þessari braut. Sýna aðhald í rekstri sveitarfélagsins t.d.með því að fækka í nefndum og fækka sveitarstjórnarfulltrúum niður í 5.
Verum jákvæð. Tölum Dalabyggð upp alstaðar sem við komum, það er hvergi betra að búa og höldum áfram af sama krafti og síðasta sveitarstjórn gerði svo vel.
Sigurvin Þórður Viðarsson, Brekkuhvammur 8
FRAMBOÐ TIL AÐALMANNS Í SVEITARSTJÓRN
Kæru Dalamenn
Sigurvin Þórður Viðarsson heiti ég og bíð ég mig fram í sveitarstjórn Dalabyggðar. Ég er 21 árs og er alinn upp hér í dölum. Ég lauk stúdents prófi við framhaldsskólann á Suðurnesjum. Eftir námið tókum við kærastan mín Hera Gísladóttir þá ákvörðun um að koma okkur fyrir í dölunum og eigum við von á okkar fyrsta barni núna í ágúst. Ég starfa hjá mjólkursamsölunni og einnig sem fótboltaþjálfari hjá íþróttafélaginu Undra. Einnig er ég virkur innan Lions hreyfingarnar og sit í sóknarnefnd Hjarðarholtskirkju.
Mín helstu áherslu mál
· Hjálpa íþrótta og tómsdunda lífinu okkar að blómstra bæði fyrir börn og fullorna.
· Styðja við húsnæðisuppbyggingu þar sem á að leggja mikla áherslu á samstarf við leigufélög og verktaka
· Uppbygging á atvinnuhúsnæði og þar með auka valkosti dalamanna á vinnumarkaðnum
· Hjálpa sveitafélaginu okkar að blómstra svo að það sé sterkur valkostur fyrir aðila sem eru að koma sér inn á húsnæðismarkaðinn eða sá sem eru að íhuga búsetu skipti
Dalabyggð er mjög fallegur staður og staður sem að við viljum öll sjá blómstra. Líka er mjög mikilvægt að við höldum áfram að ýta á stjórnvöld með þetta slaka símasamband sem er til staðar hér í sýslunni og uppbyggingu á þessum slöku vegum sem að við neyðumst til að aka á. Reynum að gera Dalabyggð að eins góðu sveitarfélagi og hægt er.
Bestu kveðjur Sigurvin Þórður Viðarsson. Brekkuhvammur 8
