Skrifstofur Dalabyggðar eru að Miðbraut 11 í Búðardal.
Opnunartími er 9-13 alla virka daga.
Símatími er 9-13 alla virka daga
Sveitarstjóri er Björn Bjarki Þorsteinsson, hér má nálgast yfirlit yfir starfsmenn skrifstofu sveitarfélagsins: Skrifstofa Dalabyggðar
Stjórnir, ráð og nefndir á vegum sveitarfélagsins
Fundargerðir
Erindisbréf
Samþykktir og reglur
Eyðublöð
Gjaldskrár
Íbúafjöldi
Í töflunni hér að neðan má sjá íbúafjölda 1. janúar um það bil síðastliðinn áratug.
2007 |
2008 |
2009 |
2010 |
2011 |
2012 |
2013 |
2014 |
2015 |
2016 |
2017 |
2018 |
2019 |
2020 |
2021 |
|
Karlar |
358 |
375 |
375 |
364 |
360 |
362 |
347 |
351 |
354 |
354 |
356 |
355 |
348 |
327 |
312 |
Konur |
323 |
334 |
339 |
330 |
324 |
324 |
318 |
322 |
326 |
325 |
317 |
312 |
325 |
312 |
308 |
Alls |
681 |
709 |
714 |
694 |
684 |
686 |
665 |
673 |
680 |
678 |
673 |
667 | 673 | 639 | 620 |
Upplýsingar um íbúafjölda má finna á heimasíðu Hagstofu Íslands.
Byggðarmerki Dalabyggðar
Samkeppni var um byggðarmerki Dalabyggðar árið 1994 og bárust þá 33 tillögur frá 17 höfundum. Fjögurra manna dómnefnd valdi tillögu Önnu Flosadóttur sem grunn að byggðarmerki sveitarfélagsins.
Fjöðrin er tákn menningar
Fuglinn er tákn frelsis
Sex fanir tákn sameinaðra hreppa
Saga sveitarfélaga í Dalabyggð
Alls hafa starfað 13 sveitarfélög á því svæði sem Dalabyggð nær nú yfir. Flest voru þau samtímis 10 á svæðinu.
Skógarstrandarhreppur og Dalabyggð sameinuðust 1. janúar 1998.
Hörðudalshreppur og Miðdalahreppur sameinuðust 1. janúar 1992 undir nafninu Suðurdalahreppur.
Miðdalahreppur og Hörðudalshreppur sameinuðust 1. janúar 1992 undir nafninu Suðurdalahreppur.
Suðurdalahreppur varð hluti af Dalabyggð 11. júní 1994 ásamt Haukadalshreppi, Laxárdalshreppi, Hvammshreppi, Fellsstrandarhreppi og Skarðshreppi.
Haukdalshreppur varð hluti af Dalabyggð 11. júní 1994 ásamt Suðurdalahreppi, Laxárdalshreppi, Hvammshreppi, Fellsstrandarhreppi og Skarðshreppi.
Laxárdalshreppur varð hluti af Dalabyggð 11. júní 1994 ásamt Suðurdalahreppi, Haukadalshreppi, Hvammshreppi, Fellsstrandarhreppi og Skarðshreppi.
Hvammshreppur varð hluti af Dalabyggð 11. júní 1994 ásamt Suðurdalahreppi, Haukadalshreppi, Laxárdalshreppi, Fellsstrandarhreppi og Skarðshreppi.
Fellsstrandarhreppur náði frá Hafursstöðum að Galtartungu til ársins 1772. Frá 1772 færðust mörkin að Arnarbæli. Þann 1. september 1986 sameinaðist hluti Klofningshrepps Fellsstrandarhreppi og mörkin færðust að Klofningi. Fellsstrandarhreppur varð hluti af Dalabyggð 11. júní 1994 ásamt Suðurdalahreppi, Haukadalshreppi, Laxárdalshreppi, Hvammshreppi og Skarðshreppi.
Skarðsstrandarhreppur náði frá Kjallaksstöðum að Skarði til 1772. Urðu þau þá frá Ormsstöðum að Ytri-Fagradal til 1. janúar 1918 að Skarðsstrandarhreppur klofnaði í Klofningshrepp og Skarðshrepp.
Klofningshreppur varð til 1. janúar 1918 við klofning Skarðsstrandarhrepps í Skarðshrepp og Klofningshrepp. Mörkin urðu þá frá Ormsstöðum að Ballará. Síðan klofnaði Klofningshreppur um Klofning 1. september 1986 milli Fellsstrandarhrepps og Skarðshrepps. Bæir utan Klofnings fóru í Fellsstrandarhrepp og bæir innan Klofnings í Skarðshrepp.
Skarðshreppur varð til við klofning Skarðsstrandarhrepps í Klofningshrepp og Skarðshrepp 1. janúar 1918. Náði hann þá frá Frakkanesi að Ytri-Fagradal. Þann 1. september 1986 sameinaðist hluti Klofningshrepps Skarðshreppi og mörkin fluttust þá að Klofningi. Skarðshreppur varð síðan hluti af Dalabyggð 11. júní 1994 ásamt Suðurdalahreppi, Haukadalshreppi, Laxárdalshreppi, Hvammshreppi og Fellsstrandarhreppi.
Saurbæjarhreppur náði frá Hvalgröfum að Kleifum til ársins 1772. Frá 1772 voru mörkin flutt að Fagradalsá. Saurbæjarhreppur og Dalabyggð sameinuðust 10. júní 2006.
Dalabyggð varð fyrst til við sameiningu Suðurdalahrepps, Haukadalshrepps, Laxárdalshrepps, Hvammshrepps, Fellsstrandarhrepps og Skarðshrepps 11. júní 1994. Þann 1. janúar 1998 sameinuðust Skógarstrandarhreppur og Dalabyggð. Þann 10. júní 2006 sameinuðust og síðan Saurbæjarhreppur og Dalabyggð. Sveitarfélagið Dalabyggð nær nú yfir alla Dalasýslu og Skógarstrandarhrepp í Snæfellsnessýslu, þ.e. frá botni Álftafjarðar að Gilsfjarðarbotni.