| |
Haraldur Örn Reynisson endurskoðandi sat fundinn undir lið 1 og kynnti jafnframt ársreikning Dalabyggðar 2025.
| | 1. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025 | |
Til máls tóku: Haraldur og Bjarki.
Haraldur Örn fór yfir ársreikning og rakti lykiltölur hans. Sveitarstjórn þakkar Haraldi fyrir yfirferðina og er hér er lagt til að ársreikningi Dalabyggðar fyrir árið 2025 sé vísað til annarrar umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 2. 2208004 - Vegamál | |
Til máls tóku: Ingibjörg, Garðar og Einar Jón.
Oddviti lagði fram svohljóðandi tillögu að bókun:
Sveitarstjórn Dalabyggðar fagnar framkomnu minnisblaði starfshóps sem innviðaráðherra skipaði þar sem lagt er til að Vestfjarðarvegur nr. 60 í gegnum Dali og vegur 61 verði skilgreindir sem hluti af þjóðvegi 1. Einnig fögnum við þeim metnaðarfullu áformum sem þar koma fram þar sem lagt er til að ástand þeirra vega sem um ræðir eigi að vera sambærileg gæðum þjóðvegar 1 á árinu 2027 þó það sé raunsætt mat að það sé langsótt miðað við ástand veganna í dag. Það er engu að síður mat sveitarstjórnar Dalabyggðar að breyting sem þessi geti mögulega bæði flýtt nauðsynlegum endurbótum á vegunum og stuðlað að því að hann í heild sinni komist í ásættanlegt horf með tilliti til umferðaröryggis.
Á sama tíma lýsir sveitarstjórn Dalabyggðar miklum vonbrigðum með tillögu innviðaráðherra að nýrri samgönguáætlun 2026 - 2040. Þrátt fyrir yfirlýsingar um metnaðarfulla og fullfjármagnaða áætlun eru engin skýr merki um að ráðist verði í þær úrbætur í vegamálum í Dalabyggð sem brýnt er að ráðast í. Vegakerfið í Dölum hefur um árabil setið eftir miðað við önnur svæði landsins og það er með öllu óásættanlegt að sú staða virðist áfram við lýði.
Nýlegar þungatakmarkanir á vegum í Dalabyggð undirstrika enn alvarleika stöðunnar. Íbúar og atvinnulíf í Dalabyggð geta ekki sætt sig við að búa við vegakerfi sem stenst hvorki eðlilegar kröfur um aðgengi né umferðaröryggi. Sveitarstjórn Dalabyggðar krefst þess að innviðaráðuneytið og Vegagerðin bregðist tafarlaust við og tryggi að vegir í Dalabyggð fái ásættanlega uppbyggingu og viðhald.
Þolinmæði Dalamanna er á þrotum og brýnt er að raunverulegar úrbætur hefjist án frekari tafa.
Tillaga að bókun er samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun | |
"Athugun Skipulagstofnunar á aðalskipulagsbreytingunni um Hvannármiðlun (fyrir Fáskrúð) er lokið. Sjá svarbréf í fundargögnum. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn Dalabyggðar bóki eftirfarandi og láti fylgja með auglýstri tillögu:
Í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 tekur sveitarstjórn Dalabyggðar eftirfarandi afstöðu vegna breytingar á landnotkun vegna vatnsmiðlunar í Hvanná á jörðinni Ljárskógum, sem felur í sér að um 70 ha svæði sem í aðalskipulagi er skilgreint landbúnaðarland fer undir miðlunarlón og fær skilgreinda landnotkun „vatn, ár og sjór“ sbr. skipulagsreglugerð. a) Um stærð lands og staðsetningu með tilliti til nýtingaráforma: Landið sem lagt er til að verði tekið úr landbúnaðarnotum er ekki stærra en nauðsynlegt með tilliti til markmiða vatnsmiðlunar sem er að tryggja hæfilegt vatnsforðabúr til að jafna vatnsflæði úr Hvanná í ánna Fáskrúð yfir þurrkatíma hásumars. Ekki er um að ræða aðra raunhæfa valkosti um staðsetningu vatnsmiðlunar, en gert er ráð fyrir henni á fornum lónbotni þar sem Hvanná og Stikukvísl sameinast, á Hvanneyrum. Landbúnaðarsvæðið sem rýrist með tilkomu miðlunarlóns er með tæplega 3% landhalla og staðsett 215 m yfir sjávarmáli. Samkvæmt vistgerðarkorti Náttúrufræðistofnunar einkennist svæðið af melum og mólendi, lítilli til miðlungs gróðurþekju. Ríkjandi jarðvegsgerð svæðisins er áfoksjörð og melajörð, miðlungs þykk og þurr. Því er talið að landbúnaðarlandið sé í flokki III, út frá greiningarlykli um flokkun landbúnaðarlands sem er í viðauka aðalskipulagsins. Breytingin er í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 þar sem miðað er við að raska landbúnaðarlandi eins lítið og þörf krefur og rýrir ekki samfellt landbúnaðarland. b) Um áhrif breyttrar landnotkunar á aðliggjandi landbúnaðarsvæði: Breytingin hefur ekki neikvæð áhrif á aðliggjandi landbúnaðarsvæði. Svæðið er alllangt uppi á heiði og hluti af upprekstrarlandi en landnotkunarbreytingin er hvorki talin fela í sér óásættanlega skerðingu á ræktunarhæfu landi né upprekstrarlandi."
Til máls tók: Guðlaug
Sveitarstjórn staðfestir hér með bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
| 4. 2512001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 345 | 4.1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal | 4.2. 2602005 - Ræstingar fyrir Dalabyggð Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi. | 4.3. 2602006 - Mötuneyti Auðarskóla Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að ræða við verktaka um framlengingu skv. ákvæðum í núverandi samningi. | 4.4. 2602012 - Umsagnarleyfi um tækifærisleyfi Lionsklúbbur Búðardals kótilettukvöld Samkvæmt 28. gr. lögreglusamþykktar Dalabyggðar nr.375/2016 skal aldurstakmark á dansleiki og skemmtanir innan Dalabyggðar miðast við fæðingarár, eða þá sem verða 18 ára á árinu. Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu tækifærisleyfis til áfengisveitinga í Dalabúð. | 4.5. 2602031 - Vatnsveita Byggðarráð samþykkir, áður en hugað verði að skilgreiningu á veitusvæði, að skoðað verði með afhendingaröryggi/þol m.v. fjölda núverandi notenda. | 4.6. 2406029 - Félagsheimilið Tjarnarlundur Byggðarráð samþykkir að bjóða fulltrúum hópsins sem um ræðir á næsta fund byggðarráðs. | 4.7. 2602019 - Samstarfssamningar við nágranna sveitarfélög Byggðarráð samþykkir að kanna jarðveginn fyrir auknu samstarfi á ákveðnum sviðum á Vesturlandsvísu og felur sveitarstjóra að opna á samtalið í gegnum Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. | 4.8. 2601020 - Búseturúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda Byggðarráð staðfestir framkomin samning. | 4.9. 2602017 - Starfsmannamál | 4.10. 2602018 - Laun og launakjör kjörinna fulltrúa Samþykkt að vísa til vinnufundar sveitarstjórnar. | 4.11. 2601023 - Niðurfærsla viðskiptakrafna Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu. | 4.12. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025 | 4.13. 2602034 - Styrkvegir 2026 Byggðarráð samþykkir framkomna tillögu. | | |
|
| 5. 2603002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 346 | 5.1. 2602030 - Ársreikningur Dalabyggðar 2025 Haraldur Örn fór yfir ársreikning Dalabyggðar fyrir árið 2025. Lagt til og samþykkt að vísa ársreikningi 2025 til fyrri umræðu í sveitarstjórn Dalabyggðar. Byggðarráð þakkar Haraldi Erni fyrir yfirferðina og undirritar ársreikning 2025 í kjölfarið.
Samþykkt samhljóða | 5.2. 2603004 - Útboð - tæming á rotþróm 2026-2028 Byggðarráð samþykkir að farið verði í útboðsferli vegna rotþróarhreinsunar á vegum Dalabyggðar. | | |
|
| 6. 2601001F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 148 | 6.1. 2406005 - Íþróttamannvirki í Búðardal Lýðheilsufulltrúi fór yfir stöðu mála. Vígsluhátíð gekk vel laugardaginn 28.febrúar sl. og var mæting framar vonum. Sundlaug og heitir pottar komast í virkni upp úr miðjum mars mánuði og verður útisvæðið allt tekið í notkun á sama tíma. Æfingar eru komnar á fullt og ánægjulegt að frá fyrsta degi sé íþróttasalurinn kominn í fulla notkun. Talað um umgengnisreglur Íþróttamiðstöðvarinnar og þörfina fyrir að heimfæra átak varðandi umgengni og virðingu fyrir búnaði í aðrar einingar sveitarfélagsins sbr. grunn- og leikskóla og Dalabúð. Lýðheilsufulltrúi ásamt forráðamönnum skólans munu leiða þá vinnu með því að senda skilaboð út í samfélagið. | 6.2. 2601010 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026 Fyrirlögn á stöðu- og framvindupófum hófst í Auðarskóla í dag, þriðjudaginn 3.mars. Skíðaferð í Tindastól fyrir 5. til 10. bekk verður farin í næstu viku. 1. til 4. bekkur fer síðan í dagsferð yfir á Strandir til að fara á gönguskíði. Árshátíð Auðarskóla verður haldin 26. mars. Starfandi skólastjóri fór yfir stöðu mála í ýmsu er lítur að innra starfi skólans. | 6.3. 2601011 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026 Aðstoðarleikskólastjóri fór yfir stöðu mála í leikskólanum og gengur daglegt starf vel í skólanum. Nú eru 28 börn á leikskólanum. Leikskólinn tekur þátt í árshátíð Auðarskóla þann 26. mars. | 6.4. 2305001 - Skólaþjónusta Farið yfir stöðu mála, fræðslunefnd styður við þá nálgun sem viðhöfð hefur verð undanfarið í grunnskólanum. | | |
|
| 7. 2602002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 162 | 7.1. 2510029 - Aðalskipulagsbreyting - Hvannármiðlun Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn Dalabyggðar bóki eftirfarandi og láti fylgja með auglýstri tillögu:
"Í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 tekur sveitarstjórn Dalabyggðar eftirfarandi afstöðu vegna breytingar á landnotkun vegna vatnsmiðlunar í Hvanná á jörðinni Ljárskógum, sem felur í sér að um 70 ha svæði sem í aðalskipulagi er skilgreint landbúnaðarland fer undir miðlunarlón og fær skilgreinda landnotkun „vatn, ár og sjór“ sbr. skipulagsreglugerð. a) Um stærð lands og staðsetningu með tilliti til nýtingaráforma: Landið sem lagt er til að verði tekið úr landbúnaðarnotum er ekki stærra en nauðsynlegt með tilliti til markmiða vatnsmiðlunar sem er að tryggja hæfilegt vatnsforðabúr til að jafna vatnsflæði úr Hvanná í ánna Fáskrúð yfir þurrkatíma hásumars. Ekki er um að ræða aðra raunhæfa valkosti um staðsetningu vatnsmiðlunar, en gert er ráð fyrir henni á fornum lónbotni þar sem Hvanná og Stikukvísl sameinast, á Hvanneyrum. Landbúnaðarsvæðið sem rýrist með tilkomu miðlunarlóns er með tæplega 3% landhalla og staðsett 215 m yfir sjávarmáli. Samkvæmt vistgerðarkorti Náttúrufræðistofnunar einkennist svæðið af melum og mólendi, lítilli til miðlungs gróðurþekju. Ríkjandi jarðvegsgerð svæðisins er áfoksjörð og melajörð, miðlungs þykk og þurr. Því er talið að landbúnaðarlandið sé í flokki III, út frá greiningarlykli um flokkun landbúnaðarlands sem er í viðauka aðalskipulagsins. Breytingin er í samræmi við 5. gr. jarðalaga nr. 81/2004 þar sem miðað er við að raska landbúnaðarlandi eins lítið og þörf krefur og rýrir ekki samfellt landbúnaðarland. b) Um áhrif breyttrar landnotkunar á aðliggjandi landbúnaðarsvæði: Breytingin hefur ekki neikvæð áhrif á aðliggjandi landbúnaðarsvæði. Svæðið er alllangt uppi á heiði og hluti af upprekstrarlandi en landnotkunarbreytingin er hvorki talin fela í sér óásættanlega skerðingu á ræktunarhæfu landi né upprekstrarlandi."
| 7.2. 2602035 - Framkvæmdaleyfi til skógræktar í landi Gautastaða Frestað | 7.3. 2510017 - Umsókn um byggingarleyfi að Kvennbrekku, samkomuhús í gistingu og þjónustu. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að ekki hafi verið óskað eftir breytingu á núgildandi aðalskipulagi, en það felur ekki í sér heimild til gistiþjónustu á þessu svæði. Frestað | 7.4. 2602020 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir vorskýli í landi Ásgarðs Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að sé mannvirki undir 15fm megi byggja það án byggingarleyfis, en fari stærðin yfir það þarf aðaluppdrætti og umsókn um byggingarleyfi. Frestað | 7.5. 2602021 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir 4 sumarhúsum á Erpsstöðum Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjórn veiti leyfi þar til deiliskipulag liggur fyrir, en að hámarki til 12 mánaða. | 7.6. 2602022 - Umsókn um stofnun lóðar C í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.7. 2602023 - Umsókn um stofnun lóðar D í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.8. 2602024 - Umsókn um stofnun lóðar E í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.9. 2602025 - Umsókn um stækkun lóðar Hvestu í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.10. 2602026 - Umsókn um stækkun lóðar A í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.11. 2602027 - Umsókn um stækkun lóðar B í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.12. 2602028 - Umsókn um stækkun lóðar G í Haukabrekku Samþykkt í samræmi við gildandi deiliskipulag. | 7.13. 2603003 - Refa og minnkaveiði 2026-2028 Nefndin leggur til að veiði verði auglýst með svipuðu sniði og farið verði yfir gjaldskrá. | 7.14. 2603004 - Útboð tæming á rotþróm 2026-2028 Umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að fara í útboð á tæmingu rotþróa. | 7.15. 2603008 - Stofnun lóðar (Grænahlíð) úr Litla-Múla Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja stofnun lóðar. | | |
|
| 8. 2601006 - Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar 2026 | | Fundur-240..pdf | | |
|
| 9. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026 | | stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 994..pdf | | |
|
| |
| 10. 2603006 - Aðalfundur Sorpurðunar Vesturlands 2026 | |
| Fundarboð aðalfundar SorpVest 25. mars 2026..pdf | | |
|
| 11. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra | | Til máls tók: Bjarki | | 265 fundur 12. mars 2026.pdf | | |
|