| |
| 1. 2606024 - Uppbygging barnaverndarþjónustu | |
Til máls tók: Ingibjörg.
Formlegt samtal um innleiðingu er hafið. Sveitarstjórn leggur til að gert verði ráð fyrir þeim kostnaði sem fellur til vegna inngöngu Dalabyggðar í Barnaverndarþjónustu Vesturlands í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027. Lagt er upp með að samstarfið geti hafist fljótlega á nýju ári.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 2. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV | |
Til máls tóku: Ingibjörg, Lilja Björg, Ingibjörg (annað sinn).
Samtals hækkar kostnaður A-sjóðs um 4.841.000kr.- sem kemur til lækkunar á handbæru fé. Samtals hækkar kostnaður B-sjóðs um 5.119.000kr.- sem kemur til lækkunar á handbæru fé. Samtals hækkar kostnaður A- og B- sjóðs því um 9.960.000kr.- sem kemur til lækkunar á handbæru fé. Sveitarstjóri og starfsfólk Dalabyggðar hafa nú rýnt allar deildir með það í huga að ná fram hagræðingu og draga úr rekstrarkostnaði án þess að það hafi áhrif á þjónustu við íbúa og telja að það markmið hafi náðst þó mikilvægt sé að sýna ráðdeild áfram út árið.
Viðauki IV lagður fram til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða. | | Viðauki_4.pdf | | |
|
| 3. 2609024 - Farsældarráð Vesturlands 2026 | |
Sveitarstjórn staðfestir bókun félagsmálanefndar og leggur auk þess til að Berghildur Pálmadóttir verði skipuð sem varafulltrúi fagaðila Dalabyggðar í Farsældarráð Vesturlands.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 | |
Til máls tók: Lilja Björg.
Sveitarstjórn samþykkir framlögð drög að uppfærðri samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar og felur sveitarstjóra að senda drögin til innviðaráðuneytisins til yfirferðar fyrir seinni umræðu.
Samþykkt samhljóða. | | Samthykktir_stjorn_Dalabyggdar_14102026.pdf | | |
|
| 5. 2610001 - Endurnýjuð undanþága frá skilyrðum um lágmarksíbúafjölda vegna barnaverndarmála | |
Erindið er móttekið en unnið er að innleiðingu Dalabyggðar inn í Barnaverndarþjónustu Vesturlands og gert verður ráð fyrir því í fjárhagsáætlun næsta árs. Vonir standa til þess að innleiðingarvinnan klárist um áramót. Athygli er vakin á röngu ártali í bréfi frá ráðuneytinu en rétta dagsetningin á veittum fresti er til 31. janúar 2027. Um er að ræða bersýnilega villu og hefur sveitarstjóri þegar kallað eftir uppfærðu skjali.
Samþykkt samhljóða. | | Scan_Áslaug Magnúsdóttir_14_33_29-09-2026.pdf | | |
|
| 6. 2610016 - Stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga | |
Til máls tóku: Valdís, Lilja Björg.
Sveitarstjórn samþykkir aðild Dalabyggðar sem stofnaðila að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga, enda liggja fyrir verulegir hagsmunir sveitarfélagsins af landbúnaði og tengdri starfsemi.
Samþykkt samhljóða. | | Árgjald.pdf | | Drög_Samþykktir_SLS_drög 1.10.2026.pdf | | Fjárhagsáætlun 2026-2028.pdf | | |
|
| 7. 2607005 - Jafnréttisáætlun 2026-2030 | |
Til máls tók: Ingibjörg.
Sveitarstjórnir skulu að afloknum sveitarstjórnarkosningum sjá til þess að innan hvers sveitarfélags verði gerð áætlun fyrir nýtt kjörtímabil um markmið og aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun.
Lagt til að sveitarstjórn staðfesti framlagða tillögu að uppfærðri áætlun.
Samþykkt samhljóða. | | Jafnrettisaaetlun_Dalabyggd_uppfaersla2026.pdf | | |
|
| 8. 2610015 - Ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála | |
Til máls tók: Ingibjörg.
Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 samþykkir sveitarstjórn að við gerð fjárhagsáætlunar og ákvörðun gjaldskráa fyrir árið 2027 verði hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins að hámarki 2,5%.
Samþykkt samhljóða. | | Ályktuntillandsþings-AlmarGuðmundsson-1-.pdf | | yfirlysing-rikisstjornar-ai-sa-samabandsins.pdf | | |
|
| 9. 2610014 - Fækkun lögregluumdæma | |
Til máls tók: Ingibjörg.
Sveitarstjórn Dalabyggðar leggst eindregið gegn áformum dómsmálaráðherra eins og þau eru í dag, um að leggja niður embætti lögreglustjórans á Vesturlandi og sameina það embættum lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra og Vestfjörðum.
Sveitarstjórn telur að fyrirhugaðar breytingar gangi gegn hagsmunum íbúa á Vesturlandi og feli í sér óæskilega miðstýringu opinberrar þjónustu og mikilvægra öryggismála. Íbúar Dalabyggðar eiga rétt á öflugri, aðgengilegri og skilvirkri löggæslu í sínu nærumhverfi sem verður ekki séð að náist með boðuðum breytingum.
Þarfagreining og viðmið ríkislögreglustjóra segja að í Dalabyggð þyrftu að vera á bilinu fjórir til níu starfandi lögreglumenn. Meðal viðmiða ríkislögreglustjóra er að um 90% íbúa séu innan 45 mínútna aksturs frá næstu lögreglustöð. Áætlaður viðbragðstími frá Búðardal og í Borgarnes, Hólmavík, Hvammstanga og Reykhóla er á bilinu 43-46 mínútur. Undantekningin í þessu tilviki er Stykkishólmur þar sem er 54 mínútna viðbragðstími.
Fyrirhugað sameinað embætti myndi ná yfir víðfeðmt landsvæði, með ólíkar þarfir og aðstæður. Sameining eingöngu leiðir ekki af sér betri þjónustu né eykur hagkvæmni. Vesturland hefur takmarkaða samleið með stórum hluta þess svæðis sem hið nýja embætti myndi ná til. Aukin fjarlægð milli stjórnenda og þess samfélags sem þjónustan beinist að, getur þvert á móti dregið úr staðbundinni þekkingu og getu til að bregðast hratt við þörfum íbúa.
Að mati sveitarstjórnar Dalabyggðar hafa ekki verið færð fram fullnægjandi rök fyrir því hvernig fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Vesturlandi. Loforð og yfirlýsingar um að starfsstöðvum og starfsfólki verði ekki fækkað eru ekki nægjanleg trygging fyrir bættri þjónustu á svæðinu.
Aðstoðarlögreglustjórar hafa ekki sömu valdheimildir og lögreglustjórar, og því getur flutningur yfirstjórnar haft áhrif á ákvarðanatöku, forgangsröðun verkefna og ráðstöfun fjármuna. Reynslan af sameiningu opinberra stofnana sýnir jafnframt að þegar yfirstjórn er færð fjær byggðarlögum getur það haft áhrif á staðsetningu starfa og þróun þjónustu til lengri tíma.
Sveitarstjórn Dalabyggðar tekur undir með öðrum sveitarfélögum sem hafa kallað eftir faglegu mati á kostnaði, ávinningi og áhrifum breytinganna sem boðaðar eru, ásamt nánara samráði við sveitarfélög á Vesturlandi. Hagræðing sem þessi verður ekki talin réttlætanleg nema sýnt sé fram á að hún skili raunverulegum ávinningi og tryggi áframhaldandi öfluga löggæslu á landsbyggðinni.
Búðardalur liggur mjög miðlægt gagnvart Vesturlandi, Vestfjörðum og vestari hluta Norðurlands, á mikilvægum samgönguás milli þessara svæða. Ef horfa á til stækkunar lögregluumdæma gerir sveitarstjórn Dalabyggðar kröfu um að horft verði á hin augljósu tækifæri í Dalabyggð. Ástæða er til að skoða vandlega þann möguleika að við endurskipulagningu sé sérstaklega skoðað að efla löggæslu í Búðardal, að staðsetja þar stjórnunar- og samræmingarhlutverk innan hins nýja embættis og vinna þar sérhæfð verkefni sem ekki eru bundin við stærstu þéttbýliskjarnana og með því nýta Búðardal sem viðbragðsmiðju fyrir svæði sem nú liggja á mörkum Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands vestra.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 10. 2610010 - Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2027 | |
Sveitarstjórn Dalabyggðar þakkar beiðnina en getur ekki orðið við henni að svo stöddu.
Samþykkt samhljóða. | | Bréf til sveitafélaga fyrir 2027.pdf | | |
|
| 11. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026 | |
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá umsögn vegna málsins ef þörf er talin á.
Samþykkt samhljóða. | | Til umsagnar 156. mál frá nefnda- og greiningarsviði skrifstofu Alþingis..pdf | | |
|
| 12. 2610008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar og styrkingar á Jaðarsbraut í Saurbæ | |
Til máls tóku: Guðbrandur Tumi, Lilja Björg.
Sveitarstjórn staðfestir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 13. 2610009 - Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna breikkunar og styrkingar á veg 60, Haukadalsá-Erpsstaðir | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 14. 2610007 - Umhverfismatsskýrsla skógrækt í landi Ljárskóga | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | Umsögn_Dalabyggðar_um umhverfismat_skógræktar_í_landi_Ljárskóga..pdf | | Umhverfismatsskýrsla skógrækt í landi Ljárskóga - 31. ágúst 2026.pdf | | |
|
| 15. 2609007 - Umsókn um framkvæmdarleyfi - fiskiteljari í Laxá | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 16. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi.
Sveitarstjórn staðfestir bókun umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| |
| 17. 2609006F - Byggðarráð Dalabyggðar - 356 | | Lögð fram til kynningar. | 17.1. 2609008 - Fjárhagsáætlun 2026 - Viðauki IV (4) Farið yfir forsendur vegna viðauka IV. Starfsfólki Dalabyggðar falið að vinna málið áfram. Byggðarráð beinir til allra deilda mikilvægi þess að standa áfram við áætlanir sem og leita svigrúms til hagræðinga vegna 2026. | 17.2. 2602031 - Vatnsveita Byggðarráð tekur jákvætt í erindi sem barst frá eigendum Höskuldsstaða um mögulega tengingu við Vatnsveitu Dalabyggðar. Verkefnastjóra eigna- og umhverfissviðs og staðgengli sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og kynna fyrir umsækjendum þær forsendur sem unnið er með. Endurskoða þarf reglur og gjaldskrá veitunnar, verður það unnið samhliða fjárhagsáætlunargerð. | 17.3. 2609015 - Eftirlitsskýrsla vegna Guðrúnarlaugar Byggðarráð leggur til að kannað verði með hvaða hætti hægt sé að bregðast við athugasemdum sem koma fram í skýrslu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Starfsfólki Dalabyggðar falið að fylgja málinu eftir. | 17.4. 2609016 - Viðverustefna Dalabyggðar 2026 Byggðarráð samþykkir drög að viðverustefnu Dalabyggðar. Sveitarstjóra falið að uppfæra gögn til framlagningar hjá sveitarstjórn. | 17.5. 2609017 - Erindi frá VR, LÍF og Fagfélögum Byggðarráð hyggst leita allra leiða til að halda hækkunum í hófi en um leið horfa til þess að mæta nauðsynlegum útgjöldum sveitarfélagsins. Í Dalabyggð er framboð lóða gott, hvort sem verið er að horfa á íbúðir eða iðnaðarhúsnæði. Þá eru lóðir Dalabyggðar í Búðardal leigulóðir svo byggingaraðilar þurfa ekki að leggja út fyrir kostnaði vegna kaupa á lóðum. Ekki er þörf á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla í Dalabyggð þar sem 12 mánaða gömul börn fá inni á leikskóla og um þessar mundir er ekki biðlisti á leikskólann. Dalabyggð hefur reynt að koma til móts við íbúa sl. ár með ýmsum öðrum hætti til að létta undir með rekstri heimila s.s. með að fella niður vistunargjald í leikskóla hjá elsta árgangi í leikskóla hverju sinni, boðið upp á frí afnot af líkamsræktaraðstöðu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, árskort á bókasafnið verið gjaldfrjálst og svo einnig styrkt við hin ýmsu félög sem sinna íþrótta- og tómstundastarfi til að kostnaður falli ekki alfarið á foreldra barna sem það nýta. | 17.6. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Tillögur kynntar að gjaldskrárbreytingum. | 17.7. 2609018 - Samningur um beitarland 2026 Sveitarstjóra og staðgengli falið að vinna málið áfram. | | 17.9. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026 Byggðarráð felur staðgengli sveitarstjóra að undirbúa drög að umsögn við málið. | 17.10. 2609021 - Þjóðarsátt um verðstöðugleika Byggðarráð hyggst leita allra leiða til að halda hækkunum í hófi en um leið horfa til þess að mæta nauðsynlegum útgjöldum sveitarfélagsins. | 17.11. 2609022 - Vínlandssetur 2026 Byggðarráð staðfestir móttöku á uppsögn rekstraraðila á samningi við Dalabyggð um rekstur Vínlandsseturs og leggur til við sveitarstjórn að samningi við núverandi samningsaðila ljúki um næstu áramót, að beiðni rekstraraðila. | | |
|
| 18. 2609001F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 61 | | Lögð fram til kynningar. | 18.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Forsendur ræddar, tillögur nefndnarinnar eru: nefnin stefnir að 10 fundum á næsta ári, kynningarkostnaður verði 1,2 milljónir, ekki verði gert ráð fyrir kaupum á þjónustu við hátíðarhöld næsta ár, dregið verði saman í rekstri nýsköpunarseturs í samræmi við tillögur verkefnisstjóra.
Nefndinni þykir tilefni til að taka upp samþykktir hafna Dalabyggðar og skoða hvernig megi hafa meiri tekjur af þeim. | 18.2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Nefndin leggur til að hækkanir á hafnartengdum gjöldum verði ekki umfram vísitölubreytingar.
Nefndin leggur til að gjöld verði óbreytt á nýsköpunarsetri, en tekið verði gjald fyrir lokaða viðburði sem haldnir eru, 10 þúsund krónur. Einnig má skoða hvort ekki sé hægt að kynna betur möguleika á skrifstofuaðstöðu á sumrin fyrir utanaðkomandi.
Nefndin leggur til að gjaldskrá fyrir matvælasmiðju verði ekki hækkuð. | 18.3. 2609022 - Vínlandssetur 2026 Móttekið. | 18.4. 2603015 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2026 Nefndin ræddi málið. Skv. tölum Vinnumálastofnunar er Dalabyggð undir landsmeðaltali hvað atvinnuleysi varðar en nefndin mun fylgjast áfram með þróun þess. | | |
|
| 19. 2609002F - Menningarmálanefnd Dalabyggðar - 52 | | Lögð fram til kynningar. | 19.1. 2609030 - Stofnun hljómlistarfélags Sigurbjörg I. Kristínardóttir kemur á fund nefndarinnar og ræðir stofnun hljómlistarfélags. Formanni menningarmálanefndar falið að boða til opins fundar. | 19.2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Nefndin leggur til að hækkanir verði ekki umfram vísitölu. | 19.3. 2604006 - Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026 Nefndin fagnar framtakinu og leggur til að Dalabyggð komi til móts við viðburðahaldara um húsnæði, ef sóst verður eftir því. | 19.4. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030 Nefndin hyggst boða til opins fundar um framtíð menningarhátíða og menningarhús fimmtudaginn 8. október. Formanni falið að undirbúa fundinn. | | |
|
| 20. 2607006F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 81 | | Lögð fram til kynningar. | 20.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og stöðu vinnunnar. | 20.2. 2609024 - Farsældarráð Vesturlands 2026 Félagsmálanefnd leggur til við sveitarstjórn að fulltrúar Dalabyggðar í farsældarráði Vesturlands verði sem aðalmaður formaður félagsmálanefndar Skjöldur Orri Skjaldarsson og varmaður hans verði varaformaður félagsmálanefndar Ingibjörg Þóranna Steinudóttir.
Samþykkt samhljóða og vísað til sveitarstjórnar til staðfestingar. | 20.3. 2607005 - Jafnréttisáætlun 2026-2030 Uppfærð jafnréttisáætlun lögð fram og rædd. Sveitarstjóra falið að uppfæra áætlunina með tilliti til umræðna og athugasemda á fundi og leggja svo áætlunin fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða
| | |
|
| 21. 2607005F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 153 | | Lögð fram til kynningar. | 21.1. 2608012 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2026-2027 Skólastjóri fer yfir stöðu leikskóladeildar Auðarskóla. Ljóst að stór hópur barna kemur inn í skólann á næsta ári og horfa þarft til þess við mönnun skólans á næsta ári. | 21.2. 2608011 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2026-2027 Skólastjóri fer yfir skólastarfið þar sem af er hausti. Í grunnskóladeild Auðarskóla í vetur eru 67 nemendur og kennt í 6 hópum. | 21.3. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar ársins 2027 og stöðu vinnunnar.
| 21.4. 2609016 - Viðverustefna Dalabyggðar 2026 Lögð fram drög að mannauðsstefnu Dalabyggðar, Siðareglum starfsmanna Dalabyggðar, viðbragðsáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi og viðverustefnu Dalabyggðar.
Rætt um reglurnar og inntak þeirra.
Sveitarstjóra falið að kynna drögin fyrir stjórnendum og öðru starfsfólki sveitarfélagsins og ef engar efnislegar breytingar verða þá er reglunum vísað beint til sveitarstjórnar. | 21.5. 2609026 - Ályktanir ungmennaþings Ályktanir ungmennaþings Vesturlands lagðar fram til kynningar og vísar fræðslunefnd ályktunum til ungmennaráðs Dalabyggðar til umfjöllunar.
Fræðslunefnd lýsir yfir ánægju með vinnuframlag og áhuga ungmenna á Vesturlandi en ljóst er að mikil vinna liggur að baki þessum ályktunum. | 21.6. 2608013 - Ungmennaráð 2026-2027 Farið yfir umsóknir/framboð þeirra ungmenna sem hafa sýnt áhuga á að starfa í ráðinu.
Fræðslunefnd samþykkir að skipa Aðalheiði Rós Unnsteinsdóttur og Grétar Bæring Helguson í Ungmennaráð Dalabyggðar.
Fræðslunefnd þakkar fyrir framkomnar umsóknir/framboð.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 22. 2609003F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 167 | | Lögð fram til kynningar. | 22.1. 2609003 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir vindmyllu að Hömrum í Laxárdal Vindmyllan er innan stærðarviðmiða í aðalskipulagi. Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur skipulags- og byggingafulltrúa að afgreiða þegar ítarlegri gögn liggja fyrir. | 22.2. 2609023 - Umsókn um stofnun lóðar í Hundadal - Grímsbrekka Nefndin gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar. | 22.3. 2603013 - Haukabrekka, lóð C, óveruleg deiliskipulagsbreyting Umhverfis- og skipulagsnefnd telur með hliðsjón af nýjustu fáanlegu loftmyndum (google maps) að jarðraskið frá árinu 2025 nái aðeins út fyrir lóðarmörk lóðar C til austurs. Nefndin hvetur lóðareiganda lóðar C til að lagfæra jarðraskið utan lóðamarka.
Varðandi tilfærslu byggingareits, þá kemur fram í greinargerð breytingartillögu svohljóðandi rökstuðningur á ástæðu breytingarinnar: Á núverandi deiliskipulagi er byggingarreitur fyrir lóð C illa staðsettur vegna votlendis og halla í landi. Með breytingu deiliskipulags er byggingarreiturinn færður á þurrlendi og meiri flata. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að sjónræn áhrif breytingarinnar á lóð G séu ekki svo mikil eða neikvæð að hafna beri tilfærslu byggingareitsins. | 22.4. 2609007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - fiskiteljari í Laxá Nefndin gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdarleyfis og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið. | 22.5. 2610007 - Umhverfismatsskýrsla skógrækt í landi Ljárskóga Nefndin hefur kynnt sér skýrsluna og skipulagsfulltrúi fer yfir drög að umsögn. Skipulagsfulltrúa falið að klára umsögn og skila inn. | 22.6. 2610009 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar og styrkingar á veg 60, Haukadalsá-Erpsstaðir Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið þegar samþykki allra landeiganda liggur fyrir. | 22.7. 2610008 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar og styrkingar á Jaðarsbraut í Saurbæ Nefndin samþykkir framkvæmdaleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út leyfið þegar samþykki landeiganda liggur fyrir. | 22.8. 2608008 - Umsókn um byggingarleyfi Kaldakinn Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | 22.9. 2609019 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu að Stóra-Vatnshorni Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | 22.10. 2609028 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir 178.2 m2 skemmu að Hamri Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | 22.11. 2603003 - Refa og minkaveiði 2026-2028 Viðar Þór kemur fyrir fundinn og fer yfir stöðuna. Nefndin felur honum og formanni nefndar að kalla veiðimenn til fundar til að ræða fyrirkomulag og kjör. | 22.12. 2610006 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu að Þurranesi Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða þegar fullnægjandi gögn hafa borist. | | |
|
| |
| 23. 2610012 - Umsb. um tækifærisleyfi, áfengisveitingar vegna sviðaveislu 24. október | |
| Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu staðgengils sveitarstjóra á umsagnarbeiðni vegna sviðaveislu 24. október nk. | | |
|
|
| 25. 2610002 - Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum 2026 | |
| Lögð fram til kynningar. | | stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum - 92.pdf | | |
|
| 26. 2601007 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2026 | |
| Lögð fram til kynningar. | | 204_0924_samþykkt fundargerð.pdf | | |
|
| 27. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026 | |
| Til máls tók: Lilja Björg. | | Skýrsla sveitarstjóra okt 2026.pdf | | |
|