| Sveitarstjórn Dalabyggðar - 274 |
Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
12.11.2026 og hófst hann kl. 16:00 | | Fundinn sátu: Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti,
Guðbrandur Tumi Gíslason varaoddviti,
Guðlaug Kristinsdóttir aðalmaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir aðalmaður,
Ingveldur Guðmundsdóttir aðalmaður,
Skjöldur Orri Skjaldarson aðalmaður,
Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri,
Guðrún Erna Magnúsdóttir varamaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri. | | Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Staðgengill sveitarstjóra og verkefnastjóri | | Lagt er til að máli nr. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 7. Lagt er til að máli nr. 2608018 - Breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 8. Lagt er til að mái nr. 2611019 - Þjónustustefna í byggðum og byggðarlögum sveitarfélaga, verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 9. Lagt er til að fundargerð 2611001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 358 verði bætt á dagskrá og verði dagskrárliður 15.
Aðrir dagskrárliðir raðist í samræmi við það.
Samþykkt samhljóða. | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 | |
Til máls tóku: Lilja Björg, Ingibjörg.
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2027-2030 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Byggðaráð tók tillöguna til meðferðar á 358 fundi sínum þann 10.nóv sl. og vísaði tillögunni til fyrri umræðu í sveitarstjórn
Samkvæmt tillögunni sem hér er lögð fram er gert ráð fyrir að heildar skatttekjur A og B hluta ársins 2027 verði 706,7 millj.kr., framlag jöfnunarsjóðs 503,4 millj.kr. og aðrar tekjur 265,3 millj.kr.
Gjalda megin er gert ráð fyrir að í laun og launatengd gjöld verði varið 671,8 millj.kr., annar rekstrarkostnaður verði 618,9 millj.kr., fjármagnskostnaður verði 104,1 millj.kr. og afskriftir 75,6 millj.kr.
Rekstrarniðurstaða verði samkvæmt því 3,9 millj.kr. í rekstrarafgang
Heildarfjárfesting ársins 2027 er áætluð 58,9 millj.kr.
Fjárhagsáætlun vísað til seinni umræðu.
Samþykkt samhljóða. | | Fjárhagsáætlun 2027-2030 - fyrri umræða 12.okt 2026.pdf | | |
| | 2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 | |
Til máls tóku: Ingibjörg, Skjöldur.
Byggðarráð leggur til að gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- framkvæmda- skipulags- og þjónustugjöld komi til afgreiðslu þegar tengd vísitala liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutfall útsvars árið 2027 verði 14,97%.
Sveitarstjórn tekur það til greina og leggur til að álagningarhlutfall fasteignaskatts verði eftirfarandi:
a) 0,60% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. c) 1,65% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
Álagningahlutfall fasteignaskatts á a)- og c)- hluta er ákveðið með heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Sveitarstjórn áréttar að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða og álagningarhlutfallið verður tekið til endurskoðunar þegar að ári með það að markmiði að lækka það á ný.
Staðgreiðsluafsláttur fasteignagjalda verði líkt og á árinu 2026 eða 5%, þó að hámarki 30.000kr.-
Nú er það svo að elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og fráveitugjaldi, sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu og hafi ekki af því leigutekjur. Upplýsingar Tryggingastofnunar (TR) um tekjuviðmið hafa ekki verið birtar þegar fyrirliggjandi gögn voru unnin og því lagt til við sveitarstjórn að viðmið fyrir afslátt ellilífeyrisþega og öryrkja verði birt á heimasíðu Dalabyggðar þegar tilkynnt er um álagningu fasteignagjalda 2027 ef viðmiðin verða ekki komin fyrir fund sveitarstjórnar í desember nk.
Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega getur þó að hámarki verið 85.000kr.- árið 2027.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá söfnun og eyðing dýraleifa :
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá félagsheimila:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá félagsheimila (Dalabúð og Tjarnarlundur) 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Þó hækkar ekki gjald fyrir afnot af vottuðu eldhúsi, leiga skjávarpa eða trygging fyrir lán á búnaði úr húsi.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir litla matvælavinnslu í Tjarnarlundi:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir litla matvælavinnslu í Tjarnarlundi verði óbreytt 2027.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fráveitu:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir gæludýrahald í Dalabyggð:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir gæludýrahald í Dalabyggð taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá hafna:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir hafnir Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Héraðsbókasafns Dalasýslu:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að árskort á Héraðsbókasafn Dalasýslu 2027 kosti ekkert frá 1. janúar til 31. desember 2027. Lagt er til að sektargjald hækki um 1 krónu og millilánasafn um 100 krónur, sem er í raun 2,5% hækkun en þó rúnað af.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar 2027, þ.e. kostnaður vegna prentunar og ljósritunar, taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Dalaveitna:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir hitaveitu á Laugum í Sælingsdal 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá beitar- og ræktunarlands:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá beitar- og ræktunarlands í eigu Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarstofu - Nýsköpunarseturs:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá standi að mestu óbreytt, þ.e. hækki ekki. Þó verði bætt við sér flokki fyrir leigu á lokaðri skrifstofu, skilmálum og forgangsröðun þar að lútandi.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarskóla:
Byggðarráð fór yfir tillögu frá 154. fundi Fræðslunefndar varðandi gjaldskrá Auðarskóla og leggur eftirfarandi til við sveitarstjórn: Lagt er til að gjaldskrá Auðarskóla hækki ekki fyrir árið 2027 líkt og Fræðslunefnd lagði til. Jafnframt er lagt til að afsláttum sé breytt á eftirfarandi hátt: - Systkinaafsláttur af dvalargjaldi leikskóla verði 30% fyrir annað barn, 75% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn. Hæsti afsláttur gildi fyrir yngsta barn. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börn. - 25% sérstakur afsláttur af dvalargjaldi á leikskóla og grunnvistgjaldi lengdrar viðveru fyrir einstaklinga með heildartekjur undir 6.000.000 kr.- eða hjón/sambúðarfólk undir 9.000.000 kr.- skv. skattaframtali. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börn. Dalabyggð setur sér verklagsreglur varðandi umsóknir um sérstakan afslátt.
Með þessum afslætti er verið að grípa alla tekjulága foreldra, óháð aðstæðum eða ástæðum og þannig er jafnræðis gætt til muna m.v. fyrra fyrirkomulag. Aðrir afslættir falla niður frá og með gildistöku þessarar gjaldskrár. Auk þess eru samræmdar upplýsingar milli gjaldskrár, reglna og eyðublaða er varða leikskólavist.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna sorphirðu:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Til viðbótar þessari tillögu byggðarráðs: Gjaldliðir C.3 og C.4 í töflu fjarlægðir, ekki boðið uppá þessar ílátastærðir fyrir plast. Heiti D.1 fyrir lífrænt lagfært.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Slökkviliðs:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn breytingu á gjaldskrá Slökkviliðs Dalabyggðar 2027, að hún verði ekki tengd neysluvísitölu áfram, hún taki því mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar taki eftirfarandi breytingum: Verð vegna barna, þ.e. undir 18 ára taki ekki breytingum 2027. Verð vegna leigu á sal taki ekki breytingum 2027 en tekin verði út möguleiki á hálfum sal þar sem ekki er til búnaður til að skipta upp salnum, að svo stöddu. Í stað þess verði boðið upp á klst leigu og svo hálfan dag í öllum salnum. Almennt verð og vegna 67 ára og eldri hækki í sléttum tölum þar sem alla jafna er tekið mið af 2,5%
Þó eru einstaka liðir sem munu hækka meira m.t.t. reksturs íþróttamiðstöðvar þetta fyrsta rekstrarár. Lagt er upp með ofangreindar hækkanir, í þeirri von að ekki þurfi að hækka gjaldskrá á næsta ári. Enda eigum við, eftir þær, að vera á svipuðum stað og aðrar íþróttamiðstöðvar sem bjóða upp á sömu þjónustu og gæði.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vatnsveitu:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að gjaldskrá Vatnsveitu Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Jafnframt komi inn ákvæði er varða tengingar við vatnsveitu á svæðum þar sem aðal- og dreifiæðar eru ekki til staðar eða aðstæður óvenjulegar sem og áskilnaður um lokun á heimtaug við sérstakar aðstæður.
Samþykkt samhljóða.
Lagt er til að fresta afgreiðslu gjaldskrár fyrir Fjósa og vísa henni til byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. | | Gjaldskrá - Félagsheimila 2027.pdf | | Gjaldskrá - Þjónusta skrifstofu 2027.pdf | | Gjaldskrá - Vatnsveita 2027.pdf | | Gjaldskrá - Tjarnarlundur - lítil matvælavinnsla 2027.pdf | | Gjaldskrá - Sorp Úrgangur 2027.pdf | | Gjaldskrá - Slökkviliðs Dalabyggðar 2027.pdf | | Gjaldskrá - Nýsköpunarseturs Dalabyggðar 2027.pdf | | Gjaldskrá - Leiga beitar- og ræktunarlands 2027.pdf | | Gjaldskrá - Íþróttamiðstöð í Búðardal 2027.pdf | | Gjaldskrá - hitaveita Laugum 2027.pdf | | Gjaldskrá - Héraðsbókasafn 2027.pdf | | Gjaldskrá - hafnir 2027.pdf | | Gjaldskrá - gæludýrahald í Dalabyggð 2027.pdf | | Gjaldskrá - fráveitugjald og rotþrær 2027.pdf | | Gjaldskrá - dýraleifar 2027.pdf | | Gjaldskrá - Auðarskóli 2027.pdf | | |
| | 3. 2405012 - Farsældarráð Vesturlands | |
Lagt er til að Helga María Harðardóttir, verkefnastjóri fjölskyldumála verði aðalfulltrúi fagaðila Dalabyggðar í Farsældarráði Vesturlands.
Samþykkt samhljóða. | | |
| | 4. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings | |
Til máls tók: Lilja Björg.
Samþykkt samhljóða. | | |
| | 5. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags | |
| Samþykkt samhljóða. | | DRÖG_Reglur_utan_lögheimilis_börn_skólavist.pdf | | |
| | 6. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030 | |
Til máls tóku: Bjarnheiður og Ingibjörg.
Lagt til að rekstur Vínlandsseturs verði auglýstur laus til umsóknar sem fyrst. Verkefnastjóra og formanni atvinnumálanefndar falið að móta auglýsinguna.
Samþykkt samhljóða. | | |
| | 7. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða. | | |
| | 8. 2608018 - Breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal | |
Til máls tók: Guðbrandur Tumi.
Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar og að fyrirliggjandi breytingartillaga hafi verið uppfærð með tilliti til ábendinga nefndarinnar. Skipulagsfulltrúa verði falið að afgreiða breytingartillöguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.
| | |
| | 9. 2611019 - Þjónustustefna í byggðum og byggðarlögum sveitarfélaga | |
Við gerð og mótun stefnunnar skal sveitarstjórn hafa samráð við íbúa sveitarfélagsins og því verður stefnan tekin til umræðu á kynningarfundunum fjárhagsáætlunar þann 17. nóvember nk. Íbúar eru hvattir til að kynna sér núverandi stefnu og mæta á kynningarfundi sem verða þriðjudaginn 17. nóvember kl. 17 og kl. 20
Samþykkt samhljóða. | | Kynningarfundir - Fjárhagsáætlun 2027-2030 og þjónustustefna - Dalabyggð.pdf | | Þjónustustefna Dalabyggðar - DRÖG 2026-2030.pdf | | |
| | | | 10. 2609008F - Byggðarráð Dalabyggðar - 357 | | Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | 10.1. 2609015 - Eftirlitsskýrsla vegna Guðrúnarlaugar Huga þarf að merkingum og rennsli. Verkefnastjóra og verkstjóra áhaldahúss falið að vinna málið áfram. | 10.2. 2604012 - Fjallskil 2026 Skýrslur um fjallskil 2026 bárust frá fjallskilanefndum Skógarstrandar, Hvammssveitar, Laxárdals, Suðurdala, Fellsstrandar og Saurbæjar.
Byggðarráð þakkar fjallskilanefndum fyrir skýrslurnar.
Sveitarstjóra og starfsfólki falið að fara yfir fjármagn vegna viðhalds rétta í samræmi við upplýsingar í skýrslum nefndanna. Sveitarstjóra falið að senda tilkynningar um álagningar vegna vangoldinna dagsverka í samræmi við upplýsingar í skýrslum nefndanna. | 10.3. 2610003 - Staða á viðskiptakröfum haust 2026 Tekið til umræðu útistandandi kröfur og næstu skref varðandi þær kröfur. Sveitarstjóra og starfsfólki falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | 10.4. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags Minnisblað verkefnastjóra var tekið fyrir á síðasta fundi fræðslunefndar og er hér lagt fram fyrir byggðarráð.
Byggðarráð styður tillögu fræðslunefndar um að unnar verði reglur um viðmið varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags á grundvelli þeirra sjónarmiða og tillagna sem fram koma í framlögðu minnisblaði. | 10.5. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Farið yfir forsendur og fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2027-2030.
Byggðarráð leggur til að áætlun verði unnin áfram í samræmi við umræður á fundinum og verði tekin fyrir á auka fundi byggðarráðs 5. nóvember nk. | 10.6. 2610026 - Beiðni um kaup á lyftustólum Beiðni frá Silfurtúni um að keyptir verði lyftustólar fyrir heimilið.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samstarfi við hjúkrunarforstjóra. | 10.7. 2610018 - Staða bílaflota BDRS | 10.8. 2510013 - Íbúðir í Búðardal Byggðarráð fagnar frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Búðardal. | 10.9. 2511013 - Skipurit skrifstofu Dalabyggðar | 10.10. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda á árinu 2027:
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutfall útsvars árið 2027 verði 14,97% og álagningarhlutfall fasteignaskatts eftirfarandi:
a) 0,60% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
Álagningahlutfall fasteignaskatts á A-hluta er ákveðið með heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Byggðarráð áréttar að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða og álagningarhlutfallið verður tekið til endurskoðunar þegar að ári með það að markmiði að lækka það á ný.
Staðgreiðsluafsláttur fasteignagjalda verði líkt og á árinu 2026 eða 5%
Nú er það svo að elli- og örorkulífeyrisþegar, með lögheimili og búsetu í Dalabyggð, njóta afsláttar af fasteignaskatti og fráveitugjaldi, sem lagt er á íbúðarhúsnæði í eigu viðkomandi enda hafi hann þar búsetu og hafi ekki af því leigutekjur. Upplýsingar Tryggingastofnunar (TR) um tekjuviðmið hafa ekki verið birtar þegar fyrirliggjandi gögn voru unnin og því lagt til við sveitarstjórn að viðmið fyrir afslátt ellilífeyrisþega og öryrkja verði birt á heimasíðu Dalabyggðar þegar tilkynnt er um álagningu fasteignagjalda 2027 ef viðmiðin verða ekki komin fyrir fund sveitarstjórnar í desember nk.
Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega getur þó að hámarki verið 85.000kr.- árið 2027.
Samþykkt samhljóða.
Í samræmi við bókun 273. fundar sveitarstjórnar þann 15.10.2026 muni gjaldskrár sem ekki hækka samkvæmt vísitölu eða öðrum lögbundnum viðmiðum, ekki hækka um meira en 2,5%
Samþykkt samhljóða.
| 10.11. 2610027 - Erindi vegna Dalabúðar - nýting og aðstaða Byggðarráð þakkar fyrir erindir og vísar því til menningamálanefndar sem er að skoða nýtingu menningarhúsa í eigu sveitarfélagsins. | 10.12. 2610013 - Húsnæði félagsstarfs í Dalabyggð Lýðheilsufulltrúa falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | 10.13. 2610029 - Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kílómetragjald á ökutæki nr. 1002025 (lagaumgjörð og innheimta gjaldsins) | 10.14. 2606002 - Endurnýjun lóðarleigusamnings Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka samtal við málsaðila um að gengið verði frá samningi í samræmi við umræður á fundinum, út frá þeim drögum sem liggja fyrir fundinum. | 10.15. 2610030 - Samkomulag um samnýtingu bílastæðis Byggðarráð leggur til að Dalabyggð verði aðili að samkomulagi um nýtingu bílastæða við Staðarfellskirkju en ekki er um fjárhagslega skuldbindingu að ræða, aðeins afnotarétt. | 10.16. 2610025 - Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga Sveitarstjóra falið að klára umsögn og skila inn í samráðsgátt. | 10.17. 2601027 - Mál til umsagnar frá alþingi 2026 Sveitarstjóra falið að skila inn umsögn sveitarfélagsins í samráðsgátt. | 10.18. 2609029 - Fyrirhuguð niðurfelling Hjarðarholtsvegar af vegaskrá | 10.19. 2610004 - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Ketilsstaðavegur (5807-01) af vegaskrá | 10.20. 2610005 - Tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu Stóra-Holtsvegar (5978-01) st, 610-660 af vegaskrá | | |
| | 11. 2610001F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 62 | Til máls tók: Bjarnheiður um fundargerðina í heild.
Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | 11.1. 2608017 - Forgangsröðun innviðamála í Dalabyggð Nefndin fór yfir núverandi skýrslu á fundinum. Að mestu leyti stendur hún fyrir sínu, en afla þarf upplýsinga og uppfæra miðað við núverandi stöðu. Formanni falið að fara yfir og lagfæra minni háttar atriði, en nefndin leggur til að starfsmönnum sveitarféalgsins verði falið að afla uppfærslugagna.
Nefndin mun vinna áfram áherslupunkta sem nýtast sveitarstjóra og sveitarstjórn við hagsmunagæslu og kynningu á stöðu innviða. | 11.2. 2606029 - Stefna atvinnumálanefndar 2026 - 2030 Nefndin leggur til við sveitarstjórn að rekstur Vínlandsseturs verði auglýstur laus til umsóknar sem fyrst. Leggur nefndin til að verkefnastjóra og formanni nefndarinnar verði falið að móta auglýsinguna. | 11.3. 2603015 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2026 | | |
| | 12. 2610003F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 82 | Til máls tók: Skjöldur um fundargerðina í heild.
Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | 12.1. 2610011 - Fjárhagsaðstoð 2026 Bókað í trúnaðarbók | 12.2. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Félagsmálanefnd leggur áherslu á að tryggt sé að fjármagn og mönnun fylgi við innleiðingu á Barnaverndarþjónustu Vesturlands og að tekið sé mið að þeim breytingum í fjárhagsáætlun næsta árs.
Samþykkt samhljóða | 12.3. 2609002 - Hvítbók um endurhæfingarþjónustu Lagt fram til kynningar | 12.4. 2606027 - Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar - uppfærsla 2026 Farið yfir þær breytingar sem gera þarf á samþykktum Dalabyggðar vegna Barnaverndarþjónustu Vesturlands. Tryggja þarf að fullnaðarafgreiðslheimildir séu til staðar í samþykktum og hefja þarf vinnu við viðauka vegna þjónustusamnings við Borgarbyggð.
Samþykkt samhljóða | 12.5. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við að almennar gjaldskrár hækki ekki umfram 2,5% í fjárhagsáætlun næsta árs. | 12.6. 2610010 - Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2027 Félagsmálanefnd telur því miður ekki forsendur fyrir því að veita framlag til Stígamóta að svo stöddu en óskar samtökunum velfarnaðar í störfum sínum.
Samþykkt samhljóða | 12.7. 2610021 - Beiðni um stuðning til starfsemium karlaathvarf Félagsmálanefnd telur því miður ekki forsendur fyrir því að veita framlag til karlaathvarfs að svo stöddu en óskar samtökunum velfarnaðar í störfum sínum.
Samþykkt samhljóða | | |
| | 13. 2610005F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 154 | Til máls tók: Skjöldur um fundargerðina í heild.
Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | 13.1. 2601012 - Auðarskóli, málefni Tónlistarskóla 2026 Farið yfir stöðuna á skólastarfinu þar sem af er skólaárinu. | 13.2. 2610024 - Reglur um skólasókn barna utan lögheimilissveitarfélags Farið yfir minnisblað verkefnastjóra dags. 26.10.2026 þar sem helstu sjónarmið reglna og viðmiða um námsvist utan lögheimilissveitarfélaga. Fræðslunefnd leggur til að unnar verði reglur um viðmið varðandi námsvist utan lögheimilissveitarfélags á grundvelli þeirra sjónarmiða og tillaga sem fram koma í minnisblaði og umræður á fundi.
Samþykkt samhljóða | 13.3. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Lagt fram minnisblað verkefnastjóra dags. 27.10.2026 varðandi breytingar á gjaldskrám.
Fræðslunefnd leggur til að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar í Búðardal hækki um 2,5% á árinu 2027. Einnig leggur nefndin til að gjaldskrá Auðarskóla hækki ekki á næsta ári en að gjaldskráin breytist í samræmi við tillögur í minnisblaði verkefnastjóra fyrir utan eftirfarandi tillögur. Að báðir foreldrar séu með 75% örorku til að falla undir afsláttarreglur. Að einstæðir foreldrar fái áfram 40% afslátt uppfylli þeir skilyrði afsláttarreglna gjaldsskrár.
Samþykkt samhljóða | 13.4. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Farið yfir þjónustusamninga sem falla undir málaflokka Auðarskóla. Lögð fram drög að fjárhagsáætlun næsta árs vegna fræðslu- og uppeldismála með breytingum á milli ára og farið yfir beiðnir um viðbótarfjármagn inn í málaflokka vegna tækja- og búnaðarkaupa. Fræðslunefnd leggur áherslu á að unnar séu áætlanir um endurbætur á búnaði og að skýr forgangsröðun sé til staðar varðandi endurbætur á húsgögnum og tækjabúnaði til kennslu. Horft sé til þess að unnin sé fjögurra ára áætlun þannig hægt sé að áætla fjármagn til næstu ára sem dugar til þess að aðstaða sé viðunandi.
Samþykkt samhljóða | | |
| | 14. 2610006F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 168 | Til máls tók: Guðbrandur Tumi um dagskrárlið 4, 6, 7 og 8.
Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | 14.1. 2611003 - Skátalundur Nefndin tekur vel í erindið og tillögu að staðsetningu skátalundar. Samhliða þróun svæðisins þurfi að huga að öryggi gangandi með tilliti til umferðar á þjóðveginum. | 14.2. 2510031 - Deiliskipulag Tungu á Skógarströnd Skipulagsnefnd hefur fjallað um athugasemdir HMS, 10. september, við deiliskipulagstillögu í Tungu á Skógarströnd og yfirfarið uppfærða tillögu.
Nefndin áréttar að deiliskipulag Tungu á Skógarströnd tekur til eldri frístundabyggðar og telur að það samræmist stefnu Aðalskipulags Dalabyggðar. Ekki er gert ráð fyrir að þegar byggð hús verði færð eða þeim breytt vegna afgreiðslu skipulagsins. Nýbyggingar og framkvæmdir skulu samræmast skilmálum deiliskipulagsins og gildandi ákvæðum um fjarlægðir frá ám.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagið með umhverfisskýrslu, enda verði samræmi greinargerðar og uppdráttar tryggt og athugasemdir HMS um skilmála og byggingarreiti vegna framtíðaruppbyggingar. Skipulagsfulltrúa verði falið að leggja til endanlegrar samþykktar og afgreiðslu til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | 14.3. 2608018 - Breyting á deiliskipulagi af svæði norðan Miðbrautar í Búðardal Nefndin þakkar fyrir framkomnar athugasemdir og leggur til ákveðnar breytingar á tillögu að deiliskipulagsbreytingunni til að bregðast við þeim. Lóð fyrir spennistöð Rarik verði færð þannig að sjónlínur við Gunnarsbraut skerðist ekki. Útakstur til vinstri út á Gunnarsbraut af lóð verði ekki heimiluð. Með þessu telur nefndin að komið sé til móts við athugasemdir. | 14.4. 2610023 - Snæfellsnesvegur (54_21-22), ákvörðun um matsskyldu - umsagnarbeiðni Kynningarskýrslan er ítarleg og góð og samræmist gildandi Aðalskipulagi Dalabyggðar. Sækja skal um framkvæmdarleyfi til sveitarfélagsins áður en framkvæmdir hefjast. | 14.5. 2610020 - Gjaldskrá Sorpurðurnar Vesturlands 2027 Til kynningar. | 14.6. 2610019 - Umsókn um byggingarleyfi að Harastöðum, 240m2 geymsluhúsnæði Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | 14.7. 2610033 - Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Ljárskógaströnd 23 Nefndin gerir ekki athugasemd við áformin og felur byggingafulltrúa að afgreiða. | 14.8. 2611004 - Rammaáætlun, 6. áfangi - tillaga að flokkun vindorkuverkefna Formanni nefndar falið að ræða málið við sveitarstjórn. | | |
| | 15. 2611001F - Byggðarráð Dalabyggðar - 358 | | Fundargerð lögð fram til staðfestingar. | 15.1. 2608001 - Fjárhagsáætlun 2027-2030 Lagt til að leggja fram áætlun með áorðnum breytingum fyrir fyrri umræðu hjá sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Íbúar eru minntir á íbúafundi til kynningar á fjárhagsáætlun 2027-2030 þann 17. nóvember kl.17:00 og kl.20:00, nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.
| 15.2. 2609014 - Gjaldskrár - uppfærsla fyrir 2027 Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda á árinu 2027 var samþykkt á síðasta fundi byggðarráðs.
Gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- framkvæmda- skipulags- og þjónustugjöld kemur til afgreiðslu þegar tengd vísitala liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá söfnun og eyðing dýraleifa :
Lagt er til að gjaldskrá fyrir söfnun og eyðingu dýraleifa í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá félagsheimila:
Lagt er til að gjaldskrá félagsheimila (Dalabúð og Tjarnarlundur) 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Þó hækkar ekki gjald fyrir afnot af vottuðu eldhúsi, leiga skjávarpa eða trygging fyrir lán á búnaði úr húsi.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir litla matvælavinnslu í Tjarnarlundi:
Lagt er til að gjaldskrái fyrir litla matvælavinnslu í Tjarnarlundi verði óbreytt 2027.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Fjósum :
Leiga tekur breytingum byggingarvísitölu í september ár hvert, (grunnur 2009). Byggingarvísitala í september 2026 er 206,9.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fráveitu:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir stofngjald fráveitu, fráveitugjald og rotþróargjald í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir gæludýrahald í Dalabyggð:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir gæludýrahald í Dalabyggð taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá hafna:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir hafnir Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Héraðsbókasafns Dalasýslu:
Lagt er til að árskort á Héraðsbókasafn Dalasýslu 2027 kosti ekkert frá 1. janúar til 31. desember 2027. Lagt er til að sektargjald hækki um 1 krónu og millilánasafn um 100 krónur, sem er í raun 2,5% hækkun en þó rúnað af.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar:
Lagt er til að gjaldskrá vegna þjónustu skrifstofu Dalabyggðar 2027, þ.e. kostnaður vegna prentunar og ljósritunar, taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Dalaveitna:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir hitaveitu á Laugum í Sælingsdal 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá beitar- og ræktunarlands:
Lagt er til að gjaldskrá beitar- og ræktunarlands í eigu Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarstofu - Nýsköpunarseturs:
Lagt er til að gjaldskrá standi að mestu óbreytt, þ.e. hækki ekki. Þó verði bætt við sér flokki fyrir leigu á lokaðri skrifstofu, skilmálum og forgangsröðun þar að lútandi.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Auðarskóla:
Byggðarráð hefur yfirfarið tillögu frá 154. fundi Fræðslunefndar varðandi gjaldskrá Auðarskóla og gerir eftirfarandi tillögu: Lagt er til að gjaldskrá Auðarskóla hækki ekki fyrir árið 2027, líkt og Fræðslunefnd lagði til. Jafnframt er lagt til að afsláttum sé breytt á eftirfarandi hátt: - Systkinaafsláttur af dvalargjaldi leikskóla verði 30% fyrir annað barn, 75% fyrir þriðja barn og 100% fyrir fjórða barn. Hæsti afsláttur gildi fyrir yngsta barn. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börn. - 25% sérstakur afsláttur af dvalargjaldi á leikskóla og grunnvistgjaldi lengdrar viðveru fyrir einstaklinga með heildartekjur undir 6.000.000 kr.- eða hjón/sambúðarfólk undir 9.000.000 kr.- skv. skattaframtali. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börn. Dalabyggð setur sér verklagsreglur varðandi umsóknir um sérstakan afslátt.
Með þessum afslætti er verið að grípa alla tekjulága foreldra, óháð aðstæðum eða ástæðum og þannig er jafnræðis gætt til muna m.v. fyrra fyrirkomulag. Aðrir afslættir falla niður frá og með gildistöku þessarar gjaldskrár. Auk þess eru samræmdar upplýsingar milli gjaldskrár, reglna og eyðublaða er varða leikskólavist.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vegna sorphirðu:
Lagt er til að gjaldskrá fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð 2027 taki mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Slökkviliðs:
Lögð er til breyting á gjaldskrá Slökkviliðs Dalabyggðar 2027, að hún verði ekki tengd neysluvísitölu áfram, hún taki því mið af 2,5% hækkun.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar:
Lagt er til að gjaldskrá íþróttamiðstöðvar taki eftirfarandi breytingum: Verð vegna barna, þ.e. undir 18 ára taki ekki breytingum 2027. Verð vegna leigu á sal taki ekki breytingum 2027 en tekin verði út möguleiki á hálfum sal þar sem ekki er til búnaður til að skipta upp salnum, að svo stöddu. Í stað þess verði boðið upp á klst leigu og svo hálfan dag í öllum salnum. Almennt verð og vegna 67 ára og eldri hækki í sléttum tölum þar sem alla jafna er tekið mið af 2,5%
Þó eru einstaka liðir sem munu hækka meira m.t.t. reksturs íþróttamiðstöðvar þetta fyrsta rekstrarár. Lagt er upp með ofangreindar hækkanir, í þeirri von að ekki þurfi að hækka gjaldskrá á næsta ári. Enda eigum við, eftir þær, að vera á svipuðum stað og aðrar íþróttamiðstöðvar sem bjóða upp á sömu þjónustu og gæði.
Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá vatnsveitu:
Lagt er til að gjaldskrá Vatnsveitu Dalabyggðar 2027 taki mið af 2,5% hækkun. Jafnframt komi inn ákvæði er varða tengingar við vatnsveitu á svæðum þar sem aðal- og dreifiæðar eru ekki til staðar eða aðstæður óvenjulegar sem og áskilnaður um lokun á heimtaug við sérstakar aðstæður.
Samþykkt samhljóða.
| 15.3. 2011020 - Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð Farið yfir stöðu málsins og rædd framtíðaraform sveitarfélagsins. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram samkvæmt umræðum á fundi. | 15.4. 2611007 - Erindi til byggðarráðs - gatnagerðargjöld Sl. sumar ákvað byggðarráð að að veita 50% afslátt af gatnagerðargjaldi lóða sem standa við þegar uppbyggðar götur. Við ákvörðun á afslætti var sérstaklega rætt að afslátturinn ætti aðeins að ná til lóða fyrir íbúðarhúsnæði við tilbúnar götur, ekki af atvinnuhúsnæði eða öðrum lóðum utan tilbúinna gatna.
Sveitarstjóra falið að ræða við málsaðila. | 15.5. 2611010 - Auðarstofa - Nýsköpunarsetur Byggðarráð samþykkir að farið verði í þær framkvæmdir sem taka á fyrir í "1. fasa" og mótframlag Dalabyggðar verði samkvæmt fjárhagsáætlun.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka samtal við lögreglustjórann á Vesturlandi um mögulega aðstöðu í húsnæðinu.
Samþykkt samhljóða. | 15.6. 2611011 - Nafnasamkeppni íþróttamiðstöðvar Byggðarráð tekur vel í erindið og felur lýðheilsufulltrúa að vinna málið áfram. | 15.7. 2611015 - Umsókn um lóð Sunnubraut 18 Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn. | 15.8. 2611014 - Umsókn um lóð Gunnarsbraut 9-11 Byggðarráð samþykkir framlagða umsókn. | | |
| | | | | 17. 2602029 - Fundargerðir Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2026 | |
| Fundargerð lögð fram til kynningar. | | stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1004..pdf | | |
| | | | 18. 2611013 - Nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga | |
| Lagt fram til kynningar. | | Rammasamningur STEF - Samband íslenskra sveitarfélaga okt 2026 - undirritaður..pdf | | |
| | 19. 2611006 - Verum viðbúin - átak, haust 2026 | |
| Lagt fram til kynningar. | | verumvidbuin_islenska_01.pdf | | beprepared_english_01-1.pdf | | |
| | 20. 2601009 - Skýrsla sveitarstjóra 2026 | |
| Til máls tók: Lilja Björg. | | |
|
| | Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar verður haldinn fimmtudaginn 10. desember 2026.
Fundargerð yfirfarin, prentuð og undirrituð til staðfestingar. | |
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:24 |
|