| |
1. 1609021 - Sala eigna - Laugar og Sælingsdalstunga | |
Til máls tóku: Sigurður Bjarni, Valdís, Eyþór, Þorkell, Ingveldur, Oddviti hefur f.h. sveitarstjórnar móttekið eftirfarandi ályktun: "Í samræmi við 64. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar óskum við undirrituð eftir því að almenn atkvæðagreiðsla fari fram um mál nr. 1609021 - sala eigna - Laugar og Sælingsdalstunga sbr. tillögu Arnarlóns ehf. frá 13. maí sl. um lausn á málinu. Við erum á móti því að Dalabyggð veiti seljendalán."
Undir þetta hafa ritað 213 íbúar sveitarfélagsins.
Tillaga: Sveitarstjórn telur að tillaga Arnarlóns ehf. frá 13. maí sl. með viðbótum frá 18. maí sé ágætlega til þess fallin að ljúka sölunni og þar með renna stoðum undir uppbyggingu íþróttamannvirkja við Auðarskóla eins og stefnt hefur verið að. Í ljósi umræðu í samfélaginu og á samfélagsmiðlum og nýfenginna undirskrifta er hins vegar lagt til að málinu verði vísað til afgreiðslu nýrrar sveitarstjórnar sem tekur við stjórn sveitarfélagsins þann 10. júní næstkomandi.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
2. 1805001 - Bréf UMFÍ vegna Lauga í Sælingsdal | |
Tillaga: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara bréfi UMFÍ með tilvísun í 1. lið fundargerðarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
3. 1802033 - Opnun minningarreits - Sturla Þórðarson | |
Tillaga: Sveitarstjórn heimilar sveitarstjóra að undirrita samninginn f.h. Dalabyggðar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
4. 1712011 - Sameiginleg lögreglusamþykkt fyrir sveitarfélögin á Vesturlandi | |
Til máls tóku: Sveinn Tillaga: Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu og heimilar sveitarstjóra að undirrita hana f.h. Dalabyggðar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
5. 1805010 - Sjálfboðavinnuverkefni 2018 | |
Til máls tók: Valdís, Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir öll verkefnin en fer fram á að skilti við steina Vestfjarðavíkinga verði útfærð í samráði við ferðamálafulltrúa.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
6. 1804010 - Tjaldsvæðið Búðardal | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir samninginn.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
7. 1805021 - Fjósar - aðstaða vegna hestaleigu | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir samninginn.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
8. 1804040 - Fjárhagsáætlun 2018 - Viðauki 2 | |
Til máls tók: Sveinn Helstu breytingar í viðaukanum er að gert er ráð fyrir rekstri og viðhaldi íþróttamiðstöðvar að Laugum allt árið, starfshlutfall í áhaldahúsi og á endurvinnslustöð aukið og gert ráð fyrir aukinni opnun á endurvinnslustöð. Þá er gert ráð fyrir úrbótum á tjaldsvæðum á Laugum og í Búðardal m.a. stækkun bílastæðis í Búðardal vegna aukinna vetrarnota húsbíla. Tekjuauki rekstrarreiknings 12,3 millj. kr. en útgjaldaauki 20 millj. kr. og nettóáhrif á rekstrarreikning neikvæð um 7,7 millj. kr. sem mætt er með lækkun á handbæru fé. Gert er ráð fyrir hækkun eignfærðra framkvæmda við Leifsbúð vegna Vínlandseturs um 85 millj. kr. og hækkun styrkja frá upphafsáætlun um 55 millj. kr. Nettókostnaðarauki er 30 millj. kr. sem mætt verður með lántöku en áfram verður leitað annarrar fjármögnunar. Tillaga: Lagt til að sveitarstjóra verði falið að ganga frá viðaukaáætlun í samræmi við þetta og senda Hagstofu.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
9. 1805024 - Tónlistarnám - grunnnám | |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís, Þorkell, Eyþór Samkvæmt samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms frá 2011 leggur ríkið fram fjármagn til tónlistarnáms á framhaldsstigi en kennsla á grunnstigi er á höndum sveitarfélaga. Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er heimilt að veita sveitarfélögum framlög vegna nemenda sem þurfa af gildum ástæðum að sækja tónlistaskóla utan síns sveitarfélags enda liggi fyrir staðfesting á að námið verði metið til eininga í framhaldsskóla. Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir umsóknina enda liggi fyrir staðfesting á að námið verði metið til eininga í framhaldsskóla. Áætlaður kostnaður á árinu 2018 kr. 400.000,- og framlag frá Jöfnunarsjóði kr. 200.000,- fært af lið 04511.
Samþykkt í einu hljóði.
Tillaga að bókun: Sveitarstjórn óskar eftir að stjórnendur tónlistarskóladeildar Auðarskóla leggi fram greinargerð um stöðu nemenda í grunnnámi tónlistarnáms við lok grunnskólanáms síðustu 2 skólaár.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
10. 1805022 - Ráðningarsamningur sveitarstjóra - starfslok | |
Sveitarstjóri víkur af fundi og Þorkell tekur við ritun fundargerðar. Til máls tóku: Eyþór, Halla
Í viðaukasamningnum er gert ráð fyrir að fráfarandi sveitarstjóri fái greidd út biðlaun skv. ráðningarsamningi óháð hugsanlegri ráðningu í annað starf. Jafnframt tekur fráfarandi sveitarstjóri að sér að sinna starfi sveitarstjóra að hluta þar til eftirmaður hefur verið ráðinn þó að hámarki til 31. ágúst 2018. Á þessum tíma sinni fráfarandi sveitarstjóri ákveðnum verkefnum sem hafa verði í gangi s.s. húsnæðisáætlun og Vínlandssetur en aðstoðar einnig nýja sveitarstjórn við undirbúning og frágang funda verði þess óskað.
Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir viðaukasamninginn og felur oddvita og varaoddvita að undirrita hann.
Samþykkt í einu hljóði.
Sveitarstjóri kemur inn á fundinn og tekur við ritun fundargerðar. | | |
|
| |
11. 1805013 - Lóðir Iðjubraut 2-4, Miðbraut 15 | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslu nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði.
Lagður fram viðaukasamningur við lóðarleigusamning fyrir Iðjubraut 2 og endurnýjaður lóðarleigusamningur fyrir Miðbraut 15. Lagt til að sveitarstjórn staðfesti samningana.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
12. 1802014 - Sveitarstjórnarkosningar 2018 | |
Til máls tóku: Íbúi í Dalabyggð hefur sent Þjóðskrá fyrirspurn vegna eins aðila sem flutt hefur lögheimli sitt í Dalabyggð og boðið sig fram til setu í sveitarstjórn. Svar hefur ekki borist frá Þjóðskrá og aðrar athugasemdir hafa ekki borist.
Tillaga. Sveitarstjórn staðfestir fram lagða kjörskrá. Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna sveitarstjórnakosninganna 26. maí nk.
Samþykkt í einu hljóði.
Á kjörskrá eru 495. | | |
|
13. 1804029 - Frumvörp til umsagnar | Eftirfarandi frumvörp og þingsályktunartillögur lagðar fram: - Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun 2018-2024, 480. mál. - Frumvarp til laga um Póst- og fjarskiptastofnun o.fl. (gjaldtaka fyrir tíðnir og alþjónusta), 454. mál. - Tillaga til þingsályktunar um stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018 - 2029, 479. mál. - Frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, 425. mál. - Frumvarp til laga um mat á umhverfisáhrifum (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.), 467. mál.
Lagt fram til kynningar.
| | |
|
14. 1804036 - Fyrirspurn um leigulóð | |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að bjóða fyrirtækinu lóðina Iðjuvellir 4 í Búðardal til afnota með eftirtöldum skilyrðum: - Lóðahafi greiði stofngjald 2 millj. kr. og árlegt afnotagjald 0,5 millj .kr. og greidd verði þrjú ár fyrirfram. - Lóðarhafi gangi frá yfirborði lóðarinnar og girði með mannheldri girðingu s.b.r. girðingu um endurvinnslusvæði. - Gámar verði allir málaði í sama lit (jarðlitir)
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
15. 1512012 - Brunavarnaáætlun | |
Tillaga: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir að áfram verði unnið að gerð sameiginlegrar brunavarnaráætlunar fyrir sveitarfélögin í samræmi við fram lögð drög.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
16. 1511031 - Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa | |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís Tillaga: Sveitarstjórn lýsir yfir vonbrigðum með afgreiðslu sveitarstjórnar Strandabyggðar og leggur til að næsta sveitarstjórn taki núverandi samstarf um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa til endurskoðunar og endurskipulagningar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
17. 1301018 - Húsaleigusamningur | Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir að afskrifa kröfur vegna húsaleigu að því gefnu að leigjandi undirriti nýjan leigusamning fyrir 15. júní nk.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
18. 1805014 - Girðingarhólf á Reykjadal | |
Til máls tóku: Eyþór, Valdís. Tillaga: Sveitarstjórn gerðir ekki athugasemdir við ákvörðun fjallskilanefndar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
19. 1805012 - Hróðnýjarstaðir - Umsókn um uppsetningu á 3 möstrum | |
Til máls tóku: Sveinn, Valdís, Eyþór. Greinargerð: Gera má ráð fyrir að tilvitnuð skýrsla Eflu liggi fyrir lok júnímánaðar. Verði þá farið að fjalla um leyfi fyrir uppsetningu á rannsóknarmöstrum er ólíklegt að hægt verði að koma þeim upp á þessu ári þó leyfi fáist. Þá tapast heilt ár í öflun rannsóknargagna sem geta nýst við endanlega ákvörðun sveitarstjórnar um hvort leyfa beri vindmyllugarð eða ekki. Tillaga: Sveitarstjórn vísar málinu aftur til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt með 6 atkvæðum. Einn situr hjá (VG).
| | |
|
20. 1805015 - Silfurtún - Samningur um eldhúsrekstur | |
Lagður fram samningur við Dalakot ehf. sem gildir til tveggja ára. Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir samninginn.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
21. 1805019 - Fundargerð 17. fundar fjallskilanefndar Saurbæjar | |
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar og samþykkir að ráðstafa allt að kr. 300.000,- af fjárhagslykli 1322 til viðhalds Brekkuréttar á árinu.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
22. 1804004F - Byggðarráð Dalabyggðar - 202 | |
Á fundinum var m.a. fjallað um framkvæmdir ársins, umsókn í styrkvegasjóð, refa- og minkaveiði og viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
23. 1805004F - Byggðarráð Dalabyggðar - 203 | |
Til máls tóku: Á fundinum var kjörskrá Dalabyggðar vegna sveitarstjórnarkosninganna yfirfarin og samþykkt með fyrirvara.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð nefndarinnar.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
24. 1804001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 82 | |
Til máls tóku: Á fundinum var m.a. fjallað um umsókn um uppsetningu tilraunamastra til vindmælinga og samþykkt að skipta lóðinni Iðjubraut 2 í tvær lóðir, Iðjubraut 2 og 4. Tillaga: Sveitarstjórn hefur fyrr á fundinum fjallað um ákveðin mál úr fundargerðinni en lagt til að sveitarstjórn staðfesti fundargerðina að öðru leyti.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
25. 1801012 - Fundargerðir 11. og 12. fundar Eiríksstaðarnefndar | |
Á fyrri fundinum var farið yfir nýjustu útfærslu arkitekta á Leifsbúð og sýningarrýminu og aðgengismál fatlaðra. Einnig stöðu framleiðslu sýningarinnar. Á 12. fundi var farið yfir stöðu fjármögnunar og lagðar fram tvær áætlanir um breytingar á Leifsbúð þar sem önnur gerir ráð fyrir viðbyggingu. Fram kom að nefndin hafi áhuga á að starfa áfram að verkefninu þar til það er í höfn. Eftirfarandi tillögur koma fram: 1. Nefndin leggur til að framkvæmdir við breytingar á Leifsbúð verði hafnar í haust, um leið og sumaropnun lýkur (í septemberlok). Þá liggi fyrir hvort byggt verði við húsið eða ekki. 2. Hönnun breytinga verði haldið áfram í sumar og útboðsgögn og vinnuteikningar liggi fyrir í lok ágústmánaðar. 3. Nefndin fái heimild til að skipa framkvæmdaráð úr sínum röðum og starfsmanna Dalabyggðar til að flýta töku ákvarðana fyrst og fremst varðandi framleiðslu sýningarinnar. 4. Mun Dalabyggð styrkja verkefnið frekar með beinum fjárframlögum? 5. Haldið verði áfram að leita fjárframlaga til verkefnisins.
Tillögur samþykktar í einu hljóði.
Nefndin hefur leitað til Ólafs Sveinssonar, atvinnuráðgjafa SSV varðandi tillögur að formi rekstrarfélags og liggja fyrstu drög fyrir.
Tillaga: Sveitarstjórn óskar eftir að Ólafur útfæri tillögu sína nánar og leggi fyrir Eiríksstaðanefnd til umsagnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
26. 1804002F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 85 | |
Á fundinum var fjallað um skólastarf yfirstandandi skólaárs, samþykkt skóladagatöl fyrir komandi skólaár og rætt um starfsmannahald, lengda viðveru og Dalabúð. Fræðslunefnd samþykkti eftirfarandi tillögur: - að minnka kennslu í tónlistarskóla sem nemur 50% kennarastöðu vegna fækkunar nemenda. - að breyta reglum um lengda viðveru þannig að ef færri en 4 sæki um, pláss í lengdri viðveru falli hún sjálfkrafa niður. - að skólastjóra Auðarskóla verði falin full umsjón með Dalabúð frá 1. ágúst nk. og þar til ný íþróttamannvirki hafa verið tekin í notkun.
Tillaga: Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar með þeim frávikum að stöðugildi í tónlistarskóladeild minnki um 30% og að full umsjón með Dalabúð verði tilraunaverkefni til eins árs og verði þá endurmetið.
Samþykkt í einu hljóði.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina að öðru leyti.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
27. 1804005F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 15 | |
Á fundinum var rætt við hjúkrunarfræðings sem íhugaði að sækja um stöðu hjúkrunarforstjóra.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
28. 1805005F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 16 | |
Á fundinum var m.a. kynnt að gerður hafi verið ráðningarsamningur við Ínu Rúnu Þorleifsdóttur um stöðu hjúkrunarforstjóra Silfurtúns og að hún hefji störf 1. ágúst nk. Þá var fjallað um samning um eldhúsrekstur og gjafasjóð en heimilinu barst nýlega peningagjöf 1 millj. kr.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði.
| | |
|
29. 1804003F - Menningar- og ferðamálanefnd Dalabyggðar - 66 | |
Til máls tóku: Valdís Á fundinum var fjallað um bæjarhátíðina Heim í Búðardal.
Tillaga. Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
30. 1805003F - Dalaveitur ehf - 5 | |
Á fundinum var samþykkt ný gjaldskrá og viðskiptaskilmálar, fjallað um stöðu framkvæmda, verksamning og samning um ráðgjöf.
Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerð stjórnarinnar.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
31. 1711010F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 47 | |
Til máls tók: Þorkell Tillaga: Sveitarstjórn staðfestir fundargerðina.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
32. 1805007 - Fundargerð 6. fundar Öldungaráðs | |
Öldungaráð þakkar sveitarstjórnum góð viðbrögð við ósk ráðsins um hækkun viðmiðunarmarka vegna afsláttar af fasteignagjöldum og óskar eftir að ályktun félagsins verði vísað til næstu sveitarstjórna.
Tillaga að bókun: Sveitarstjórn samþykkir að vísa ályktun félagsins til næstu sveitarstjórnar og staðfestir fundargerðina að öðru leyti.
Samþykkt í einu hljóði. | | |
|
| |
33. 1802003 - Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 859. fundar. | Fundargerð 859. fundar lögð fram til kynningar. | | |
|
34. 1804020 - Veiðifélag Laxár í Hvammssveit - Fundargerð aðalfundar. | Fundargerð aðalfundar lögð fram til kynningar. | | |
|
| |
35. 1805002 - Breyting á lögum um verslun með áfengi og tóbak | Bréf Bindindissamtakanna IOGT á Íslandi dags. 22. mars 2018 lagt fram til kynningar. | | |
|
36. 1805004 - Framkvæmdaáætlun Breiðafjarðarnefndar 2018-2021 | Lögð fram til kynningar verndaráætlun fyrir Breiðafjörð sem Breiðafjarðarnefnd hefur unnið skv. lögum um vernd Breiðafjarðar í samvinnu við sveitarfélögin. | | |
|
37. 1501025 - Þjóðlendukrafa - Svæði 9A | Óbyggðanefnd hefur kveðið upp úrskurð í málum sem varða svæði 9a. Til kynningar. | | |
|
38. 1612043 - Svæðisskipulag Dala, Reykhóla og Stranda | |
Til máls tóku: Skipulagsstofnun hefur tilkynnt að skipulagstillagan sé hæf til staðfestingar og í gær 23. maí 2018 undirrituðu fulltrúar í svæðisskipulagsnefnd og sveitarstjórar skipulagið.
Til kynningar. | | |
|
39. 1801004 - Skýrsla sveitarstjóra | Sveitarstjóri flutti skýrslu sína og þakkaði sveitarstjórnarmönnum farsælt samstarf síðustu 8 árin. | | |
|