Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 79

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
15.02.2018 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Hörður Hjartarson formaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Halla S. Steinólfsdóttir aðalmaður,
Valdís Gunnarsdóttir aðalmaður,
Kristján Ingi Arnarsson ,
Bogi Kristinsson Magnusen skipulags- og byggingarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Valdís Gunnarsdóttir, 


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1802008 - Laugar- stofnun frístundalóða 1-6, 9-14 og 16
Dalabyggð og Bergljót S Kristjánsdóttir, eigendur jarðarinnar Lauga, sækja um stofnun og landskipti frístundarlóða nr. 1-6, 9-14 og 16 sbr. samþykkt deiliskipulag frá 2016 og lóðarblaði frá Steinsholti dags. 11.10.2016 (breytt 13.02.2018).
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðanna og landskiptin, með fyrirvara um undirskrift beggja landeigenda. (EIB situr hjá)
F-550_Laugar lóð 6.pdf
Laugar lóðablað-frístundalóðir.pdf
Umsókn um landskipti_Laugar 16.pdf
F-550_Laugar 16.pdf
F-550_Laugar 1-5 og 9-14 - óundirritað.pdf
Landskipti_Laugar 1-6 og 9-14 - óundirritað.pdf
2. 1802009 - Laugar- stækkun frístundalóðar nr. 8
Dalabyggð og Bergljót S Kristjánsdóttir, eigendur jarðarinnar Lauga, sækja um stækkun frístundarlóðar nr. 8 sbr. samþykkt deiliskipulag frá 2016.
Einnig er sótt um landskipti fyrir stækkaða lóð.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stækkun lóðarinnar og landskipti lóðar eftir stækkun. (EIB situr hjá)
F-550_Laugar lóð 8b.pdf
Umsókn um landskipti_lóð 8.pdf
3. 1802006 - Laugar- stofnun frístundalóðar nr. 16
Dalabyggð og Bergljót S Kristjánsdóttir, eigendur jarðarinnar Lauga, sækja um landskipti frístundarlóða nr. 7 (L.199558) og 15 (L.137728) sbr. samþykkt deiliskipulag frá 2016.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir landskiptin, með fyrirvara um undirskrift beggja landeigenda. (EIB situr hjá)
Landskipti_Laugar 7 og 15 - óundirritað.pdf
4. 1802007 - Sælingsdalstunga - stækkun lóðar um vatnsból
Dalabyggð, eigandi Sælingsdalstungu, sækir um stofnun á 25 ha stækkun á lóð (L.192202) um vatnsból á Svínadal úr jörðinni Sælingsdalstungu (L.137737), sjá lóðarblað dags. 09.02.2018.
Fyrir er lóðin 5 ha og verður því alls 30 ha. Hún er öll í hlíð austan þjóðvegar beggja megin og ofan við brunn vatnsbóls.
Eigandi jarðar sækir einnig um landskipti stækkaðrar lóðar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir stofnun lóðarinnar og landskipti, með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar. (EIB situr hjá)
F-550_Sælingsdalstunga_vatnsból-stækkun.pdf
Landskipti_sælingsdalstunga_192202-vatnsból.pdf
Sælingsdalstunga vatnsból-192202_lóðarblað.pdf
5. 1802010 - Breyting á deiliskipulagi Ólafsdals
Sótt er um breytingu á deiliskipulagi Ólafsdals að frumkvæði Minjaverndar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu að breytingu skv. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Greinargerð.pdf
Teikningar af tillöguninni um breytingar.pdf
6. 1708016 - Aðalskipulag Dalabyggðar 2004-2016, breyting
Fyrir liggja tillögur að breytingum á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, íbúðarsvæði í Búðardal, stækkun verslunar- og þjónustusvæðis í Búðardal og frístundasvæði í landi Hlíðar í Hörðudal.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögur að breytingum á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, en gerir eftirfarandi athugasemdir við tillögur er varða íbúðarsvæði í Búðardal:
- Felldur verði út reitur sem er merktur Efstihvammur á skipulagstillögunni.
- Skipulagi við Bakkahvamm verði skipt í tvo úthlutunaráfanga.
Umsögn frá Landvernd.pdf
Umsögn frá Umhverfisstofnun.pdf
1708016 - Aðalskipulag - breytingartilaga.pdf
7. 1802012 - Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði
Skipulags- og matslýsing að breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 var auglýst í byrjun desember 2017. Fjallað var um 7 atriði þar á meðal vindorkugarð í landi Hróðnýjarstaða og stækkun byggðalínu. Skipulags- og matslýsing var einnig kynnt á íbúafundi 31. janúar 2018.
Borist hafa umsagnir og athugasemdir frá nokkrum aðilum þar á meðal Landvernd, Umhverfisstofnun, Skipulagsstofnun og lögfræðistofunni Lögskil f.h. eigendar jarða í nágenni Hróðnýjarstaða.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að áður en ákvörðun verði tekin um framhald breytinga á gildandi aðalskipulagi varðandi nýtingu vindorku og stækkun byggðalínu, verði mótuð stefna um nýtingu vindorku í sveitarfélaginu. Verkefnið verði tengt heildarendurskoðun aðalskipulags sem sveitarstjórn áformar að hefja á árinu og óskað verði stuðnings Skipulagsstofnunar/Skipulagssjóðs vegna þessa. Breytingu á aðalskipulagi vegna iðnaðarlóðar (gagnavers) verði einnig frestað þar til ofangreind stefna hefur verið mótuð.
Umsögn frá Landvernd.pdf
Umsögn frá Umhverfisstofnun.pdf
Umsögn Skipulagsstofnunar.pdf
Lögskil - Athugasemdir við Skipulags- og matslýsingu - Vindorkugarður.pdf
Um-skipulag-og-vindorkunytingu.pdf
Ekki til dreifingar-Snæfellsbær-Vindorka.pdf
Ekki til dreifingar-Snæfellsbær-samantektvindorkukosta.pdf
Ekki til dreifingar - Vindorka í aðalskipulagi Rangárþings ytra.pdf
Almenn mál - umsagnir og vísanir
8. 1510002 - Svæðisskipulags
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemd við gerð svæðisskipulags Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitarstjóri og fulltrúar Dalabyggðar í svæðisskipulagsnefnd sjái til þess að tekið verði skýrt fram í svæðisskipulaginu, að kort sem þar koma fram verði ekki bindandi á neinn hátt fyrir aðalskipulagsgerð sveitarfélaganna.
Mál til kynningar
9. 1802017 - Deiliskipulag við Borgarbraut
Lagt fram til kynningar.
Deiliskipulag - teikningar.pdf
Greinargerð.pdf
10. 1802018 - Deiliskipulag Hvammar
Lagt fram til kynningar.
Deiliskipulag - teikningar.pdf
Greinargerð.pdf
11. 1801014 - Samantekt umræðna 2017
Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að birta samanteknina á vef Dalabyggðar.
Samantekt umræðna frá 20. ársfundi Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:15 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei