Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 76

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
14.09.2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Hörður Hjartarson formaður,
Eyjólfur Ingvi Bjarnason aðalmaður,
Halla S. Steinólfsdóttir aðalmaður,
Sæmundur G. Jóhannsson aðalmaður,
Valdís Gunnarsdóttir aðalmaður,
Bogi Kristinsson Magnusen skipulags- og byggingarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Valdís Gunnarsdóttir, 


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1708019 - Reiðvegur hjá Laxárósi
Þórður Ingólfsson, fyrir hönd Hestamannafélagsins Glaðs, sækir um að færa reiðveginn við ósa Laxár.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsóknina, með fyrirvara um samþykki Veiðifélags Laxár.
2. 1709006 - Umsókn um framkvæmdaleyfi í Hvolsdal
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi vegna breikkunar og endurbóta á Vestfjarðavegi um Hvolsdal.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að framkvæmdaleyfið verði veitt, en ekki er unnt að leyfa efnistöku úr Húsá nema að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar.
3. 1709012 - Gefum selum lengra líf
Svavar Garðarsson sækir um leyfi til að fá selkópa úr Fjölskyldu- og húsdýragarðinum til dvalar og uppeldis á hafnarsvæðinu í Búðardal. Um er að ræða tilraunaverkefni þessara aðila.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að leyfið verði veitt til 1. maí 2018.
5. 1709016 - Umferðaröryggismál í Búðardal
Kristján Ingi Arnarsson, umsjónarmaður framkvæmda í Dalabyggð, sækir um leyfi fyrir nýja gangbraut yfir Vesturbraut á móts við Brekkuhvamm.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að leyfið verði veitt, með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
4. 1708001 - Vilja- og samstarfsyfirlýsing
Fyrirtækið Storm orka ehf áformar að koma upp vindorkugarði í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð ef tilskilin leyfi fást og hefur óskað eftir samstarfi við Dalabyggð varðandi skipulagsmál o.fl. Fyrir liggja drög að vilja- og samstarfsyfirlýsingu.
Sveitarstjórn fjallaði um erindið á 150. fundi og tók jákvætt í hugmyndir Storm orku ehf en vísaði málinu til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd á erfitt með að taka afstöðu til verkefnisins, þar sem gögn vantar, svo sem afstöðumynd, stærð og fjölda vindmylla og flatarmál vindorkugarðsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei