Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 168

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
26.11.2018 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti,
Ragnheiður Pálsdóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Sigríður Huld Skúladóttir aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir aðalmaður,
Kristján Sturluson sveitarstjóri,
Svana Hrönn Jóhannsdóttir varamaður,
Magnína G Kristjánsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Kristján Sturluson, sveitarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1810003 - Fjárhagsáætlun 2019 - 2022, önnur umræða.
Breytingatilögur byggðarráðs við fjárhagsáætlun lagðar fram.

Úr fundargerð 213. fundar byggðarráðs 20. nóvember 2018:
Fjárhagsáætlun 2019 - 2022 - 1810003

Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda samþykkt og verður lögð fyrir sveitarstjórn.
Breytingartillögur við fjárhagsáætlun samþykktar og verða lagðar fyrir sveitarstjórn.

Tóku til máls: Kristján, Einar Jón.

Breytingartillögur byggðarráðs við fjárhagsáætlun lagðar fram.

Samþykkt samhljóða.

Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda verði óbreytt milli ára.
Viðmiðunarmörk vegna afsláttar fasteignagjalda hækki um 6.8% (breyting vísitölu launa milli 2016-2017)

Samþykkt samhljóða.
2. 1811018 - Dalaveitur - rekstur
Úr fundargerð byggðarráðs 20. nóvember 2018:

Dalaveitur - rekstur - 1811018
Mál frá stjórnarfundi Dalaveitna ehf.
Dalaveitur skulda Dalabyggð 58 m.kr. sem veldur því að lausafjárstaða sveitarfélagsins er þung.

Styrkir vegna framkvæmda berast að stórum hluta eftir að framkvæmdum er lokið.

Dalabyggð þarf fram til maí 2019 að hafa möguleika á yfirdrætti þó að reynt verði að nýta hann sem minnst. Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að veitt verði heimild til að nota yfirdrátt allt að 30 m.kr.

Úr fundargerð byggðarráðs 20. nóvember 2018:
Dalaveitur - rekstur - 1811018
Dalabyggð vegna Dalaveitna ehf. sæki um í átaksverkefni Fjarskiptasjóðs, Ísland ljóstengt 2019, vegna styrkhæfra staða sem ekki hafa hlotið styrk en frestur til að skila gögnum vegna A-hluta er til kl. 13 þann 23. nóvember.
Umsóknin er vegna síðasta hluta ljósleiðaravæðingar í Dalabyggð, á Skarðsströnd og Fellsströnd, milli Lyngbrekku og Tjaldaness, og frá Ólafsdal að Kleifum.
Að auki er lagt til að viðræður verði hafnar við Borgarbyggð á grundvelli B-hluta verkefnisins.

Samþykkt samhljóða að lögð verði inn umsókn.
Málið verður lagt fyrir sveitarstjórn sem tekur lokaákvörðun varðandi umsóknina.

Tóku til máls: Skúli, Eyjólfur

Oddiviti ber upp tillögu Byggðarráðs um að veitt verði heimild til að nota yfirdrátt allt að 30 m. kr.vegna skuldar Dalaveitna við Dalabyggð.

Samþykkt samhljóða.

Dalabyggð vegna Dalaveitna ehf. sæki um í átaksverkefni Fjarskiptasjóðs, Ísland ljóstengt 2019, vegna styrkhæfra staða sem ekki hafa hlotið styrk en frestur til að skila gögnum vegna A-hluta er til kl. 13 þann 23. nóvember.
Umsóknin er vegna síðasta hluta ljósleiðaravæðingar í Dalabyggð, á Skarðsströnd og Fellsströnd, milli Lyngbrekku og Tjaldaness, og frá Ólafsdal að Kleifum.
Að auki er lagt til að viðræður verði hafnar við Borgarbyggð á grundvelli B-hluta verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.
3. 1809013 - Laugar í Sælingsdal, staða og framtíð
Lögð fram stutt fundargerð íbúafundar frá 6. nóvember 2018.

Bréf lögmanns Arnarlóns ehf. frá 5. nóvember 2018 lagt fram.

Tóku til máls: Einar Jón, Ragnheiður, Skúli, Svana, Sigríður.

Sveitarstjórn samþykkir að fela lögmanni Dalabyggðar að funda með fulltrúum Arnarlóns. Ef tilefni gefst til, verði í framhaldi af því skipulagður fundur fulltrúa sveitarstjórnar með Arnarlóni. Fyrir hönd Dalabyggðar sitji fundinn oddviti, Formaður byggðarráðs, sveitarstjóri, sveitarstjórnarfulltrúarnir Einar Jón Geirsson og Ragnheiður Pálsdóttir og aðrir sem sveitarstjórn metur að nauðsynlegt séu á fundinum. Gefist tilefni til er stefnt verði að því að fundurinn fari fram í byrjun desember.

Samþykkt í einu hljóði.
4. 1807001 - Hljóð- og myndupptökur á sveitarstjórnarfundum
Úr fundargerð 209. fundar byggðarráðs Dalabyggðar 25.10.2018:

1807001 - Hljóð- og myndupptökur á sveitarstjórnarfundum
Lagt fram minnisblað um hljóð- og myndupptökur á sveitarstjórnarfundum og fylgigögn með fundargerðum sveitarstjórnar og byggðaráðs.
Byggðarráð vísar málinu til sveitarstjórnar.

Tók til máls: Ragnheiður

Oddviti leggur til að tillögur sem fram koma í minnisblaðinu verði samþykktar.

Samþykkt með 6 atkvæðum einn situr hjá RP.
5. 1511031 - Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa
Úr fundargerð byggðarráðs 20. nóvember 2018:

Embætti skipulags- og byggingarfulltrúa - 1511031
Tillaga:
1. Dalabyggð, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Árneshreppur og Kaldrananeshreppur geri með sér samstarfssamning um embætti skipulagsfulltrúa annars vegar og bygginagarfulltrúa hins vegar.
2. Vinnustöð skipulagsfulltrúa verði í Búðardal og byggingarfulltrúa á Hólmavík.
3. Staða skipulagsfulltrúa verði auglýst svo fljótt sem verða má.
4. Sveitarstjóra falið að gera samkomulag við samstarfssveitarfélögin í samræmi við ofangreint.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að tillagan verði samþykkt.

Tóku til máls: Einar Jón, Kristján,

Tillaga um embætti skipulags og byggingarfulltrúa borin upp.

Samþykkt samhljóða.
6. 1810011 - Ráðning slökkviliðsstjóra
Úr fundargerð byggðarráðs 20. nóvember 2018:

Ráðning slökkviliðsstjóra - 1810011
Tillaga:
1. Stofnað verði byggðasamlag um sameinað slökkvilið fyrir Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Árneshrepp og Kaldrananeshrepp.
2. Auglýst verði starf slökkviliðsstjóra. Starfið verði fullt starf og hluti af því verði að sinna eldvarnareftirliti á svæðinu.
3. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samstarfi við samstarfssveitarfélögin.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að tillaga um stofnun byggðasamlags og ráðningu slökkviliðsstjóra verði samþykkt.


Tóku til máls: Kristján, Ragnheiður, Einar Jón

Tillaga um stofnun byggðasamlags og ráðningu slökkviliðsstjóra borin upp.

Samþykkt í einu hljóði.


7. 1806035 - Styrkur vegna tónlistarnáms.
Úr fundargerð byggðarráðs 20. nóvember 2018:

Styrkur vegna tónlistarnáms. - 1806035
Sveitarstjórn samþykkti greiðslu á ákveðinni upphæð en kostnaður sem viðkomandi tónlistarskóli gaf upp er hærri.

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að upphæð styrks verði jöfn skólakostnaði að þessu sinni.

Tóku til máls: Kristján,

Sveitarstjórn samþykktir að upphæð styrks verði jöfn skólakostnaði að þessu sinni en nemandi greiði skólagjöld sem samsvara skólagjöldum við Tónlistarskóla Dalabyggðar.

Samþykkt samhljóða.
8. 1810032 - Fjárhagsáætlun HeV 2019
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Fjárhagsáætlun HeV 2019 - 1810032
Heilbrigðiseftirlit Vesturland hefur sent fjárhagsáætlun ársins 2019 til sveitarfélaga á starfssvæði þess.

Nefndin leggur til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt.

Tillaga um að fjárhagsáætlun HeV 2019 - 18010032 verði samþykkt.

Samþykkt samhljóða
9. 1810030 - Endurskoðun þjónustusamninga
Úr fundargerð 50. fundar félagsmálanefndar Dalabyggðar 14. nóvember 2018:

Endurskoðun þjónustusamninga - 1810030

Erindi frá Borgarbyggð um endurskoðun á þjónustusamningi.
Lagt fram bréf frá Borgarbyggð um endurskoðun þjónustusamnings vegan félagsþjónustu, barnaverndar og fötlunarmála.
Þann 1. október síðastliðinn tóku gildi breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 sem hafa í för með sér breytingar varðandi velferðarþjónustu.
Samþykkt að leggja til við sveitarstjórn að teknar verði upp viðræður við Borgarbyggð um endurnýjun þjónustusamnings. Jafnframt verði skoðaðir möguleikar á samstarfi við Félagsþjónustu Strandabyggðar og Reykhólahrepps varðandi þjónustu vegna velferðarmála.


Samþykkt samhljóða.
10. 1811005 - Breyting á aðalskipulagi vegna áætlaðs vindorkugarðs
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Breyting á aðalskipulagi vegna áætlaðs vindorkugarðs - 1811005

Nefndin leggur til við sveitarstjórn að heimila að vinna við breytingar á aðalskipulagi vegna vindorkugarðs á Hróðnýjarstöðum geti hafist.
Nefndin bendir á að þetta er aðeins fyrsta skrefið í ferli breytinga.

Tóku til máls: Eyjólfur.

Oddviti leggur til að málinu verði frestað og haldinn sameiginlegur fundur sveitarstjórnar og umhverfis- og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.
11. 1811006 - Aðalskipulag - drög - Ós á Skógarströnd
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Aðalskipulag - drög - Ós á Skógarströnd - 1811006

Nefndin telur að um sé að ræða óverulega breytingu á aðalskipulagi, sem hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för mér sér, hefur ekki áhrif á stórt svæði, né hafi mikil áhrif á einstaka aðila. Nefndin samþykkir erindið í samræmi við 2. málsgrein 36. greinar skipulagslaga.


Samþykkt í einu hljóði
12. 1809032 - Laxárdalsvegur - umsókn um framkvæmdaleyfi
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Laxárdalsvegur - umsókn um framkvæmdaleyfi - 1809032

Nefndin samþykkir erindið og heimilar efnistöku í námu A við Leiðólfsstaði og námu B við Selhöfða. Náma C er ekki inni í aðalskipulagi og því ekki hægt að veita heimild til efnistöku þar. Nefndin hvetur til náins samráðs um framkvæmdir Vegagerðarinnar á skipulagsstigi.


Samþykkt samhljóða.
13. 1810029 - Umsókn um leyfi til að leggja lögn út í sjó
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Umsókn um leyfi til að leggja lögn út í sjó - 1810029

Nefndin samþykkir erindið, með því skilyrði að haft verði samráð við skipulagsfulltrúa um lengd og legu lagnarinnar.

Samþykkt samhljóða
14. 1810028 - Tillaga um endurskoðað aðalskipulag Eyja- og Miklaholtshrepps
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Tillaga um endurskoðað aðalskipulag Eyja- og Miklaholtshrepps - 1810028

Nefndin gerir ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.

Tillagan samþykkt samhljóða.
15. 1805012 - Umsókn um uppsetningu á 3 möstrum
Úr fundargerð 87. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 9. nóvember 2018:

Umsókn um uppsetningu á 3 möstrum - 1805012

Niðurstaða frá síðasta fundi Umhverfis- og skipulagsnefndar: Nefndin tekur jákvætt í erindið en kallar eftir betri gögnum: Uppdrætti með nákvæmri staðsetningu vegaslóða og mastra, ásamt því að gögn séu á íslensku.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi (rannsóknarleyfi) til tveggja ára.

Samþykkt samhljóða.
16. 1809037 - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilsins Silfurtúni - erindisbréf
Úr fundargerð 19. fundar stjórnar Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns:

Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilsins Silfurtúni - erindisbréf - 1809037

Tekið upp frá síðasta fundi.
Uppfært og sent til sveitarstjórnar

Samþykkt samhljóða.
17. 1810015 - Vandi sauðfjárbænda - sérstaða Dalabyggðar
Úr fundargerð 5. fundar atvinnumálanefndar Dalabyggðar 6. nóvember 2018:

Vandi sauðfjárbænda - sérstaða Dalabyggðar - 1810015

Úr fundargerð sveitarstjórnar Dalabyggðar 18.10.2018.
Tóku til máls. Einar Jón, Skúli, Sigríður, Pálmi, Eyjólfur.
Einar Jón leggur fram eftirfarandi ályktun:
Sveitarsjórn Dalabyggðar lýsir yfir stuðningi við sauðfjárbændur í sveitarfélaginu og hvetur þá til enn meiri samstöðu í sínum baráttumálum. Ennfremur skorum við á stjórnvöld að taka tillit til sérstöðu Dalabyggðar á sviði sauðfjárræktar. Það er ljóst að árviss skerðing á tekjum sauðfjárbænda kemur sérstaklega illa við Dalabyggð þar sem um helmingur íbúa er með einum eða öðrum hætti beintengdur afkomu í greininni.
Eyjólfur leggur til að ályktun Einars Jóns verði vísað til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.
Samþykkt í einu hljóði.

Atvinnumálanefnd styður ályktunina eins og hún kemur fyrir. Jafnframt leggur hún til að sveitarstjórn boði til fundar með þeim aðilum sem geta komið að sértækri aðstoð við þetta vandamál. Svo sem landbúnaðarráðherra, SSV, Byggðastofnun, Bændasamtökin og Framleiðnisjóð landbúnaðarins. Nefndin leggur til að unnin verði aðgerðaáætlun til að vinna að framtíðarstuðningi við sauðfjárrækt í héraðinu og afleiddum störfum. Janframt hyggst nefndin kalla fulltrúa FSD á sinn næsta fund til að ræða málið áfram.

Tóku til máls: Ragnheiður, Eyjólfur, Einar Jón,

Ragnheiður lagði fram eftirfarandi bókun:
Bendi á nauðsyn þess að vita hvað aðgerðaráætlun feli í sér og hvað gerð hennar komi til með að kosta áður en áætlunin er samþykkt. Aðgerðaráætlunin má aldrei innihalda neitt sem verði til óeiningar í greininni en ef hún gæti orðið til að efla samheldni væri fengur í slíkri vinnu.

Oddviti lagði til að málið verði áfram til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.

Samþykkt í einu hljóði.
18. 1808006 - Fjallskil 2018
Sveitarstjórn hefur til umfjöllunar álagningarseðla og fundargerðir fjallskiladeilda í Dalabyggð. Borist hafa álagningarseðlar frá öllum fjallskiladeildum en fundargerðir vantar frá fjallskiladeild Suðurdala.
Sveitarstjórn samþykkir fundargerðir og álagningarseðla fyrir fjallskiladeildir Skógarstrandar, Laxárdals, Hvammssveitar, Fellsstrandar, Skarðsstrandar og Saurbæjar.

Tillagan samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til staðfestingar
19. 1809008F - Byggðarráð Dalabyggðar - 209
Samþykkt samhljóða.
20. 1810007F - Byggðarráð Dalabyggðar - 210
Samþykkt samhljóða
21. 1811002F - Byggðarráð Dalabyggðar - 211
Samþykkt samhljóða.
22. 1811003F - Byggðarráð Dalabyggðar - 212
Samþykkt samhljóða.
23. 1810009F - Byggðarráð Dalabyggðar - 213
Tóku til máls: Einar Jón, Kristján,

Fundargerðin samþykkt samhljóða.
24. 1811005F - Byggðarráð Dalabyggðar - 214
Samþykkt samhljóða.
25. 1810005F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 87
Samþykkt samhljóða
26. 1811001F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 19
Samþykkt samhljóða.
27. 1810004F - Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 5
Samþykkt samhljóða.
28. 1810002F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 87
Samþykkt samhljóða.
29. 1810003F - Félagsmálanefnd Dalabyggðar - 50
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til kynningar
30. 1803028 - Fundargerðir HeV 2018
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei