| |
Margrét Björk Björnsdóttir kemur inn á fundinn í gegnum fjarfundabúnað, undir dagskrárlið 1.
| 1. 2302008 - Gestastofa í Dalabyggð | |
Margrét fór yfir starf Markaðs- og áfangastaðastofu Vesturlands ásamt því að fara yfir verklag og tímalínu við uppbyggingu gestastofu í Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshrepp. Komið er að því að vinna nýja áfangastaðaáætlun í haust sem tekur gildi 2024.
Nefndin þakkar Margréti fyrir kynninguna og samtalið. | | |
|
Vilhjálmur Hörður Guðlaugsson kemur inn á fundinn undir dagskrárlið 2.
| 2. 2302014 - Atvinnurekstur í Dalabyggð 2023 | |
KM þjónustan er fjölskyldurekið fyrirtæki sem býður upp á fjölbreytta þjónustu. Ein af nýjungum þeirra í þjónustu eru bílaþrif og þá hefur fyrirtækið einnig tekið inn fleiri verkfæri og vörur til sölu nýlega.
Nefndin þakkar Vilhjálmi fyrir komuna og samtalið.
| | |
|
3. 2210026 - Uppbygging innviða | |
Frá 34. fundi atvinnumálanefndar 23.02.2023: 5. 2210026 - Uppbygging innviða Frá 230. fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar: 2. 2210026 - Uppbygging innviða Til máls tóku: Garðar, Skúli. Tillaga lögð fram til afgreiðslu: Með vísan í umræðu á íbúaþingi vorið 2022 þá leggur sveitarstjórn Dalabyggðar til við atvinnumálanefnd sveitarfélagsins að hún hlutist til um að stofnaður verði starfshópur til þess að halda utan um undirbúning á byggingu Iðngarða í Búðardal. Mikil þörf er til staðar fyrir einyrkja og minni fyrirtæki á svæðinu fyrir bættan húsakost. Ekki hefur verið byggt iðnaðarhúsnæði í Búðardal síðan upp úr árinu 1980, fyrir utan endurbætur og viðbætur við húsnæði MS, og mikilvægt að hugað verði að þessu aðkallandi verkefni af fullri alvöru til eflingar atvinnulífs í Dalabyggð. Í því ljósi að Dalabyggð er þátttakandi í verkefninu Brothættar byggðir má skoða í því samhengi hvort sækja mætti í opinbera sjóði verkefninu til stuðnings. Samþykkt samhljóða. Atvinnumálanefnd leggur til að haldinn verði opinn kynningarfundur á Iðngörðum í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar fyrri hluta febrúar. Verkefnastjóra falið að vinna áfram að málinu.
-----
Haldinn var opinn fundur 13. febrúar sl. um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í Búðardal sem var vel sóttur. Í framhaldi af fundinum var kallað eftir áhugasömum aðilum í starfshóp um uppbygginguna.
Starfshópurinn mun hafa það verkefni að eiga samtal við áhugasama byggingaraðila/kaupendur að atvinnuhúsnæði, framkvæma þarfagreiningu út frá samtölum og taka saman gögn um framkvæmdarsvæðið og mögulegar útfærslur framkvæmda/byggingar. Hópurinn starfar undir atvinnumálanefnd.
Alls bárust erindi frá 8 áhugasömum aðilum til að taka sæti í starfshópi um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í Búðardal. Nefndin þakkar fyrir sýndan áhuga. Lagt til að starfshópurinn verði skipaður af eftirtöldum aðilum: Bjarnheiður Jóhannsdóttir sem fulltrúi atvinnumálanefndar, Sigmundur Hagalín Sigmundsson og Sigurður Ólafsson. | | |
|
| |
4. 2301054 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2023 | |
Lagt fram til kynningar. | atvinnuleysi_jan-23-toflur.pdf | | |
|