| |
1. 2007010 - Fjárhagsáætlun 2020. Viðauki V. | |
Sveitarstjóra falið að ganga frá viðauka sem lagður verður fyrir sveitarstjórn. Í viðaukanum verður lækkun á rekstrarliðum kr. 6.200.000 (ýmis viðhaldsverkefni, sjálfboðaverkefni og tryggingar), lækkun fjárfestinga kr. 6.500.000 (vatnsveita Laugum og gatnagerð). hækkun rekstrarkostnaðar kr. 5.500.000 (valkostagreining vegna sameiningar og eftirgjöf vaxta vegna Bakkahvamms hses), hækkun fjárfestinga kr. 16.000.000 (Dalaveitur 14.000.000 og aukið stofnfé Bakkahvamms 2.000.000) og hækkun tekna kr. 21.688.278 (stærstu liðir framlag vegna ljósleiðara 12.500.000 og styrkur vegna valkostagreiningar 4.400.000). Samþykkt samhljóða. | | |
|
2. 1911006 - Uppgjör vegna íbúða Bakkahvamms hses. | |
Byggðarráð fellst á erindi Bakkahvamms hses og gert verður ráð fyrir þeim framlögum sem óskað er eftir í tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2020. Samþykkt samhljóða.
| | |
|
3. 2002040 - Flutningur dýrahræja til förgunar - útboð | |
Byggðarráð staðfestir framlögð gögn vegna auglýsingar eftir tilboðum í flutninga á dýrahræjum. Samþykkt samhljóða. | | |
|
4. 1904034 - Sorphreinsun - útboð 2020 - 2022 | |
Útboðsgögn staðfest með áorðnum breytingum. Samþykkt samhljóða. | | |
|
5. 2007005 - Stjórnsýslukæra vegna gjaldskrár fyrir hirðingu, móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð | |
Drög að svari staðfest. Samþykkt samhljóða. | Gjaldskrá 2020.pdf | Gjaldskrá 2018.pdf | Gjaldskrá 2019.pdf | Gjaldskrá 2017.pdf | | |
|
6. 2005027 - Nýsköpunarsetur í Dalabyggð | |
Byggðarráð felur sveitarstjóra að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Vesturlands vegna frumkvöðla- og nýsköpunarseturs. Samþykkt samhljóða. | Bréf til SSV v frumkvöðlaseturs.pdf | Bréf til nýsköpunarráðherra v frumkvöðlaseturs.pdf | | |
|
7. 2005001 - Staða varðandi frístundasvæði í Sælingsdalstungu. | |
Formanni byggðarráðs og sveitarstjóra falið að funda með lóðarhafa. Samþykkt samhljóða. | | |
|
8. 2004016 - Endurskoðun á innkaupareglum | |
Byggðarráð vísar tillögu að innkaupareglum til afgreiðslu í sveitarstjórn. Samþykkt samhljóða. | Tillaga að innkaupareglum og -stefnu fyrir Dalabyggð - drög 22_07_2020.pdf | | |
|
9. 2001037 - Skólavist utan lögheimilssveitarfélags. | |
Beiðni staðfest. Afgreiðsla færð í trúnaðarbók byggðarráðs. | | |
|
| |
10. 1911021 - Fundargerðir stjórnar Bakkahvamms hses | |
Lagt fyrir byggðarráð í umboði sveitarstjórnar. | Undirrituð fundargerð 23.07.2020.pdf | | |
|
| |
|
12. 2008001 - Viðgerð á þaki Silfurtúns | |
| |
|
13. 2008004 - Breytingar á framlögum úr Jöfnunarsjóði | |
Fast 2020 yfirlit.pdf | | |
|
14. 2008003 - Bilun í fráveitu | |
| |
|
15. 2008002 - Gjaldskrá skjalasafna | |
Héraðsskjalasafn Dalasýslu er faglega sjálfstæð stofnun í eigu Dalabyggðar og samkvæmt sveitarstjórnarlögum er það sveitarstjórnar að setja því gjaldskrá. Byggðaráð Dalabyggðar leggur áherslu á mikilvægi þess að varðveita skjöl heima í héraði þannig að saga og menning þess sé aðgengileg íbúum sveitarfélagsins og öðrum áhugasömum. Samþykkt samhljóða. | Bréf frá ráðuneytinu dags. 17.07.2020.pdf | 20200806 Bref6agust2020.pdf | | |
|
16. 1901043 - Skólaakstur 2019 - 2022 | Málið kynnt. | | |
|