Skúli H. Guðbjörnsson starfsaldursforseti setti fundinn.
Í upphafi fundar skipti stjórnin með sér verkum. Þuríður Jóney Sigurðardóttir kjörin formaður stjórnar og tekur við stjórn fundarins.
Dagskrá:
Almenn mál
1. 2201044 - Rekstur Silfurtúns 2022
Búið er að ráða í öll störf vegna sumarafleysinga. Framkvæmdir við baðherbergi standa yfir. Úttekt vegna vinnuverndar, í samræmi við fyrirmæli Vinnueftirlitsins, hefst 9. júní.
2. 2110023 - Samstarf um rekstur öldrunarheimilis.
Ákveðið að óska eftir fundi með stjórn Barmahlíðar.