| |
Viðar Þór Ólafsson, verkstjóri áhaldahúss kom á fund nefndarinnar undir dagskrárlið 1.
| 1. 2303025 - Ferðaþjónusta í Dalabyggð 2023 | |
Viðar kom inn á fundinn og nefndin ræddi fyrirkomulag á opnun á salernum í Skarðsstöð.
Nefndin er opin fyrir því að skoða möguleikann á opnun og jafnvel að aðeins annað salernið verði opið í einu á hverjum tíma. Nefndin leggur til að auglýst verði eftir aðila til að sjá um þrif og eftirlit með salernum í Skarðsstöð. Kostnaðargreina þarf verkefnið áður en það er auglýst, verkefnastjóra og verkstjóra falið að vinna greiningu fyrir tímabilið 1. júní til 30. september, sem lögð verði fyrir byggðarráð/sveitarstjórn. | | |
|
Kristján Ingi Arnarsson, umsjónarmaður framkvæmda kom á fund nefndarinnar undir dagskrárlið 2.
| 2. 2305015 - Hitaveita Rarik í Dölum - fyrispurn um viðhald og endurnýjun | |
Kristján kom inn á fundinn og nefndin ræddi ÍSOR skýrsluna og Hitaveitu Rarik í Dalabyggð sérstaklega.
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar óskar eftir ítarlegri upplýsingum frá Rarik varðandi ástand dreifikerfis hitaveitu í Dalabyggð ásamt því að fá upplýsingar varðandi hvernig faglegu utanumhaldi er háttað. Nefndin kallar einnig eftir því að fá upplýsingar um hvort til sé áætlun um endurbætur og endurnýjun dreifikerfis á næstu mánuðum/árum. Nefndin telur mikilvægt að komið sé í veg fyrir sóun í kerfinu s.s. vegna leka og mögulegar stórbilanir. Þá leggur nefndin áherslu á að til staðar sé búnaður og efni til viðgerða á dreifikerfi hitaveitunnar hjá starfsstöð í héraðinu, sérstaklega í neyð. | Skýrsla um hitaveitur_úrdráttur fyrir Dalabyggð.pdf | | |
|
3. 2208004 - Vegamál | |
Nefndin klárar að fylla inn í skjal sem notað verður til að útbúa greinargerð fyrir forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð. Einnig hafist handa við að rita greinargerð út frá áhrifaþáttum á forgangsröðun. Unnið áfram fram að næsta fundi. | | |
|
| |
4. 2301054 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2023 | |
Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar í Dalabyggð var 3. | atvinnuleysi_april-23-.pdf | | |
|
5. 2305020 - Út að hjóla - Fjallahjólaleiðir | |
Lagt fram til kynningar fyrir nefndina. | | |
|