Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 183

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
14.11.2019 og hófst hann kl. 16:02
Fundinn sátu: Ragnheiður Pálsdóttir varaoddviti,
Skúli Hreinn Guðbjörnsson aðalmaður,
Sigríður Huld Skúladóttir aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir aðalmaður,
Pálmi Jóhannsson aðalmaður,
Kristján Sturluson sveitarstjóri,
Anna Berglind Halldórsdóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Kristján Ingi Arnarson, Umsjónarmaður framkvæmda
Ragnheiður Pálsdóttir varaoddviti stýrði fundi.

Í fundarboði var fundargerð stjórnar Silfurtúns sögð nr. 26 en rétt er að þar er fundargerð nr. 27 sem á að leggja fyrir þennan fund.
Lagt er til að mál eftirtalin mál verði tekin á dagskrá fundarins:
1902027 - Dalaveitur, fundargerðir stjórnar 2019 (fundargerð til kynningar), verði dagskrárliður 14,
1911008 - Fráveita í Búðardal, landlagnir (mál til kynningar), verði dagskrárliður 18.
Aðrir dagskrárliðir færast til í samræmi við framangreint.
Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1910036 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki V (Silfurtún, Vínlandssetur og HeV))
Úr fundargerð 236. fundar byggðarráðs 11.11.2019, dagskrárliður 1:
1910036 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki V (Silfurtún, Vínlandssetur og HeV)
Haraldur Reynisson endurskoðandi sveitarfélagsins og Ragnheiður Pálsdóttir og Einar Jón Geirsson fulltrúar í stjórn Silfurtúns mæta á fundinn.
Haraldur fór yfir áhrif þess að færa niður skuld Silfurtúns við Aðalsjóðs. A hluti verður með halla á árinu 2019 en samstæðan (A B) kemur út á núlli.
Viðauki V:
Allt að 300 m.kr. framlag Aðalsjóðs til Silfurtúns.
Fjárfesting vegna Vínlandsseturs lækkar úr 110 m.kr. í 70 m.kr.
Framlag til Heilbrigðiseftirlits Vesturlands hækkar um 408 þús.kr., á móti er lækkun á 04.
Samþykkt samhljóða að leggja viðauka fyrir sveitarstjórn.

Til máls tók: Kristján
Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki V lagður fram til samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
R. Yfirlit viðauka 2019_Dalabyggð V.pdf
2. 1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023
Úr fundargerð 236. fundar byggðarráðs 11.11.2019, dagskrárliður 4:
1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023
Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignaskatts.
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að álagningarhlutfall útsvars og fasteignaskatts verði óbreytt milli áranna 2019 og 2020. Viðmiðunartekjur vegna afsláttar aldraðra og lífeyrisþega vegna fasteignaskatts hækki sem nemur breytingu á launavísitölu milli áranna 2017 og 2018.
Samþykkt samhljóða.

Samkvæmt tillögunni verður álagningarhlutfall útsvars 2020 14,52% og álagningarhlutfall fasteignaskatts a) 0,50% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 umtekjustofna sveitarfélaga. b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995. Afsláttur af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 og reglur Dalabyggðar hækkar sem nemur breytingu á launavísitölu milli áranna 2017 og 2018 eða um 5,99% og upphæðir síðan námundaðar niður að næsta þúsundi.

Til máls tóku: Kristján, Einar, Skúli

Samþykkt samhljóða.
Tillaga um álagningarhlutfall útsvars og fasteignagjalda 2020 - námundun viðmiðunar leiðrétt.pdf
3. 1911006 - Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar
Staðfesting fyrri ákvörðunar, stofnskrá lögð fram og stjórn kosin samkvæmt henni.
Til máls tóku: Skúli, Kristján

Staðfest fyrri ákvörðun sveitarstjórnar um stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar vegna leiguíbúða í Dalabyggð.
Dalabyggð er stofnandi húsnæðissjálfseignarstofnunarinnar og staðfestir sveitarstjórn samþykktir hennar.
Í samræmi við samþykktirnar kýs sveitarstjórn eftirtalda aðila í stjórn stofnunarinnar sem situr þar til ársfundur hefur verið haldinn.
Samþykkt samhljóða

Aðalmenn í fimm manna stjórn:
Einar Jón Geirsson
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
Ragnheiður Pálsdóttir
Þuríður Jóney Sigurðardóttir
Skúli Hreinn Guðbjörnsson

Varamenn í stjórn (tveir skv. samþykktunum):
Jón Egill Jóhannsson
Boga Kristín Thorlacius

Samþykkt samhljóða.
Drög að samþykktum fyrir DB hses.pdf
Svar við beiðni um undanþágu frá fjölda í fulltrúaráði.pdf
Fundargerð undirbúningsstjórnar 7_11_2019.pdf
Viljayfirlýsing um fjölgun íbúða í Dalabyggð í gegnum tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs.pdf
Samkomulag vegna HSES.pdf
4. 1906005 - Jafnréttisáætlun og framkvæmdaáætlun
Jafnréttisstofa gerir athugasemdir við nokkur atriði í jafnréttisáætlun Dalabyggðar.
Tillaga:
Sveitarstjórn felur byggðarráði að gera breytingar í samræmi við athugasemdir Jafnréttisstofu og staðfesta áætlunina fyrir hönd Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða.
Tölvupóstur - athugasemdir við jafnréttisáætlun.pdf
5. 1910014 - Beiðni um nafnabreytingu, Krossland verði Skjön
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 4:
1910014 - Beiðni um nafnabreytingu, Krossland verði Skjön
Eigendur Krossland 211-6773 senda inn beiðni um að nafninu verði breytt í Skjön.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við nafnabreytinguna.
Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.
Beiðni undirrituð af öllum eigendum.pdf
Umsögn - Árnastofnun.pdf
6. 1910023 - Sjóvörn við Ægisbraut - framkvæmdaleyfi
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 6:
1910023 - Sjóvörn við Ægisbraut
Vegagerðin sækir hér með um framkvæmdarleyfi til Dalabyggðar skv. 13. málsgrein skipulagslaga 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi fyrir ofangreint verk
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - undirritað.pdf
Grunnmynd/snið.pdf
Sjóvörn við Ægisbraut og efnisvinnsla 2019 - umsókn um framkvæmdarleyfi.pdf
7. 1910029 - Umsókn um lögbýli á Gautastöðum
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 5:
1910029 - Umsókn um lögbýli á Gautastöðum
Umsókn um að Gautastaðir landnr. 137917 verði skráð lögbýli
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.
Umsögn frá Búnaðarsamtökum Vesturlands.pdf
8. 1909024 - Minningargarðar í Dalabyggð
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 3:
1909024 - Minningargarðar í Dalabyggð
Óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til stofnun grafreitar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað.
Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku: Einar, Ragnheiður

Tillaga lögð fram:
Sveitarstjórn Dalabyggðar þakkar forsvarsmönnum Tré Lífsins fyrir erindið og felur umsjónarmanni framkvæmda hjá Dalabyggð að ræða við forsvarsmenn verkefnisins og afla frekari gagna.
Samþykkt af sex fulltrúum (EJG, SHG, SHS, RP; PJ, ÞJS), einn situr hjá (ABH)
Bréf til að kanna áhuga Dalabyggðar á Minningargörðum og afstöðu til þess að opna slíkan garð í sveitarfélaginu.pdf
Minnisblað_08.10.2019.pdf
9. 1910030 - Vindbú í Garpsdal - skipulags- og matslýsing
Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 7:
1910030 - Vindbú í Garpsdal - skipulags- og matslýsing
Óskað er umsagnar vegna fyrirhugaðs vindbús í Garpsdal í Reykhólahreppi.
Nefndin gerir ekki athugasemd við skipulags- og matskýrsluna.
Samþykkt samhljóða

Samþykkt samhljóða.
UmsagnarbeiðniGarpsdalurDalabyggð.pdf
SKIPULAGS- .pdf
10. 1811005 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Hróðnýjarstaða
Vísað er til fundargerðar 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliðar 8. Niðurstaða nefndarinnar er "Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ráðist verði í breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Hróðnýjarstöðum.
Samþykkt samhljóða."

Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 8:
1811005 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Hróðnýjarstaða
Breyting á aðalskipulagi Dalabyggðar.
Alls bárust 10 umsagnir frá stofnunum og aðilum og voru þær lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd.
Í áliti Skipulagsstofnunar segir að í áformum um vindorkuver í sveitarfélaginu séu vindmyllur staðsettar í minna en tveggja km fjarlægð frá frístundabyggð. Það stangist á við skýrslu um stefnumótun í vindorkumálum í Dalabyggð sem gefin var út árið 2018.
Skipulagsnefnd bendir á að skýrslan er ekki stefna sveitarstjórnar og hefur ekki fengið afgreiðslu sem slík og er einungis vinnuplagg. Endanleg ákvörðun um fjarlægð vindmylla frá frístundabyggð verður tekin á seinni stigum skipulagsferlis, m.a. í deiliskipulagsvinnunni.
Skiplagsstofnun setur auk þess út á að þrátt fyrir að sveitarfélagið hafi samþykkt að ráðast í gerð lýsingar vegna tveggja vindorkuvera er í hvorugri lýsingunni vikið að því hversu ákjósanlegt sé að reisa tvö slík ver í grennd hvors annars m.t.t. umhverfisáhrifa eða möguleika á orkuflutningi né lagt til að metin verði möguleg samlegðaráhrif vindorkuveranna á umhverfið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að bæði verkefnin eru staðsett nálægt tveimur aðskildum tengivirkjum og þá hefur Landsnet hafið undirbúning á aukinni flutningsgetu kerfisins í framtíðinni. Því er ekkert sem bendir til þess að nálægð þessarra tveggja vindorkuvera muni hafa áhrif á möguleika í orkuflutningi. Með tilliti til umhverfisáhrifa þessara verkefna þá mun í umhverfisskýrslu með aðalskipulagsbreytingunum verða skoðuð áhrif á umhverfisþætti. Auk þess mun breytingin á aðalskipulaginu gangast undir umhverfismat áætlana.
Í áliti Skipulagsstofnunar kemur ennfremur fram að standi vilji sveitarfélagsins til að halda áfram með breytingu á gildandi aðalskipulagi, bendir stofnunin á nokkur atriði sem þurfi að hafa til skoðunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að farið verður eftir ábendingum skipulagsstofnunnar ef sú leið verður farin.
Lögskil fyrir hönd hagsmunaaðila jarðanna Glerárskóga, Ljárskóga, Ljárkots, Vígholtsstaða og frístundabyggðar í landi þeirrar jarðar gerði einnig athugasemdir.
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísar í minnisblað Hjalta Steinþórssonar, lögmanns, sem farið hefur yfir athugasemdir Lögskila.
Umsagnir bárust auk þess frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Minjastofnun, Strandabyggð, Húnaþingi Vestra, atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Heilbrigðisteftirliti Vesturlands.
Tekið verður tillit til ábendinga þessarra stofnanna við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Einnig barst athugasemd frá einum einstaklingi, Bjarna V. Guðmundssyni.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ráðist verði í breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Hróðnýjarstöðum.
Samþykkt samhljóða.
_____________________________________________________

Samþykkt samhljóða.
Minnisblað um bréf Lögskila, skannað.pdf
Minnisblað um bréf Lögskila.pdf
Tölvupóstur frá UAR vegna vindorku og rammaáætlunar 15_10_2019.pdf
Minnisblað til ráðherra vegna vindorku.pdf
Minnisblað - 1811005- fundur sveitarstjórnar með Stormorku.pdf
Bre?f til sveitarstjo?rnar 21082019.pdf
UmsögnStrandabyggðarHróðnst.pdf
UmsögnRáðuneytisHróðnýjarstaðir.pdf
UmsögnHúnaþingsVestraHróðnýjarst.pdf
UmsögnHEVHróðnýjarst.pdf
UmsögnfráSkipulagsstofnunLýsing_Hróðnýjarstaðir.pdf
Umsögn - Hróðnýjarstaðir.pdf
Umsögn - Hróðnýjarstaðir, breyting á aðalskipulagi.pdf
Athugasemdir við vindmyllugarð á Hróðnýjarstöðum í Dalabyggð.pdf
Hrodnyjarstadir Dalabyggd Lysing.pdf
Athugasemdir frá Lögskil dags. 28.6.2019 og annað skjal dags. 2.2.2018.pdf
Umsögn frá Minjastofnun.pdf
Hróðnýjarstaðir, skipulagslýsing-uppfærð.pdf
Dalabyggð v Lo¨gskila.pdf
11. 1902037 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Sólheima
Vísað er til fundargerðar 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliðar 9. Niðurstaða nefndarinnar er "Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ráðist verði í breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Sólheimum.
Samþykkt samhljóða."

Úr fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 01.11.2019, dagskrárliður 9:
1902037 - Iðnaðarsvæði fyrir vindlund á jörð Sólheima
Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar.
Alls bárust 6 umsagnir frá stofnunum og aðilum og voru þær lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd.
Í áliti Skipulagsstofnunar segir að í áformum um vindorkuver í sveitarfélaginu séu vindmyllur staðsettar í minna en tveggja km fjarlægð frá frístundabyggð. Það stangist á við skýrslu um stefnumótun í vindorkumálum í Dalabyggð sem gefin var út árið 2018.
Skipulagsnefnd bendir á að skýrslan er ekki stefna sveitarstjórnar og hefur ekki fengið afgreiðslu sem slík og er einungis vinnuplagg. Endanleg ákvörðun um fjarlægð vindmylla frá frístundabyggð verður tekin á seinni stigum skipulagsferlis, m.a. í deiliskipulagsvinnunni.
Skipulagsstofnun setur auk þess út á að þrátt fyrir að sveitarfélagið hafi samþykkt að ráðast í gerð lýsingar vegna tveggja vindorkuvera er í hvorugri lýsingunni vikið að því hversu ákjósanlegt sé að reisa tvö slík ver í grennd hvors annars m.t.t. umhverfisáhrifa eða möguleika á orkuflutningi né lagt til að metin verði möguleg samlegðaráhrif vindorkuveranna á umhverfið.
Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að bæði verkefnin eru staðsett nálægt tveimur aðskildum tengivirkjum og þá hefur Landsnet hafið undirbúning á aukinni flutningsgetu kerfisins í framtíðinni. Því er ekkert sem bendir til þess að nálægð þessarra tveggja vindorkuvera muni hafa áhrif á möguleika í orkuflutningi. Með tilliti til umhverfisáhrifa þessara verkefna þá mun í umhverfisskýrslu með aðalskipulagsbreytingunum verða skoðuð áhrif á umhverfisþætti. Auk þess mun breytingin á aðalskipulaginu gangast undir umhverfismat áætlana.
Í áliti Skipulagsstofnunar kemur ennfremur fram að standi vilji sveitarfélagsins til að halda áfram með breytingu á gildandi aðalskipulagi, bendir stofnunin á nokkur atriði sem þurfi að hafa til skoðunar.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að farið verður eftir ábendingum Skipulagsstofnunnar ef sú leið verður farin.
Umsagnir bárust auk þess frá Landgræðslunni, Strandabyggð, Húnaþingi vestra, Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun.
Tekið verður tillit til ábendinga þessarra stofnanna við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að ráðist verði í breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Sólheimum.
Samþykkt samhljóða.
______________________________________________________________

Samþykkt samhljóða.
Tölvupóstur frá UAR vegna vindorku og rammaáætlunar 15_10_2019.pdf
Minnisblað til ráðherra vegna vindorku.pdf
Minnisblað - 1902037 - fundur sveitarstjórnar með Quadran.pdf
Quadran_svör við umsögnum_Sólheimar.pdf
UmsögnNáttúrufræðistofnunSólheima.pdf
UmsögnfráSkipulagsstofnunLýsing_Hróðnýjarstaðir og Sólheimar, vindorkuver.pdf
Umsögn Umhverfisstofnunnar.pdf
Umsögn frá Húnaþingi vestra.pdf
Umsögn - Sólheimar, Landgræðslan.pdf
UmsögnfraStrandabyggd.pdf
Kynning_Vindorkugardur_Dalabyggd.pdf
Kynning_Vindorkugardur_Solheimar_Dalabyggd.pdf
Figure 1.1_Project Location.pdf
Kynning_Vindorkugardur_Dalabyggd.pdf
Fundargerð
12. 1910012F - Byggðarráð Dalabyggðar - 236
Til máls tóku: Einar, Skúli
Fundargerð samþykkt samhljóða.
13. 1910004F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 27
Fundargerð samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til kynningar
14. 1902027 - Dalaveitur - fundargerðir stjórnar 2019
Fundargerð 20. fundar stjórnar Dalaveitna frá 11. nóvember sl. lögð fram.
15. 1812008 - Fundargerðir Minningarsjóðs hjónanna Ólafs Finnssonar og Guðrúnar Tómasdóttur frá Fellsenda 2018
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð 17.10.2019 - 2.pdf
16. 1902003 - Fundargerðir Sambands ísl. sveitarfélaga 2019
Fundargerðir frá 30. ágúst, 27. september og 25. október lagðar fram til kynningar.
Fundargerð 873 - 30.08.2019.pdf
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 875.pdf
Fundargerð 874 - 27.09.2019.pdf
17. 1805007 - Fundargerðir Öldungaráðs 2018 - 2022
Fundargerð frá 5. nóvember sl. lögð fram.
Fundargerð 9 fundar 5 nóv 2019.pdf
Mál til kynningar
18. 1911008 - Fráveita í Búðardal, landlagnir.
Verkið var boðið út með tilboðsfresti til 12. nóvember. Engin tilboð bárust í verkið.
Til máls tók: Kristján
Fundargerð frá opnun tilboða.pdf
19. 1901014 - Skýrsla frá sveitarstjóra.
Til máls tók: Kristján
Minnisblað - 1901014 - skýrsla sveitarstjóra nóvember 2019.pdf
Dalabyggð - Verkefnatjóri -16 nóv 2019 - 6x17.pdf
20. 1909009 - Trúnaðarbók sveitarstjórnar
Fært í trúnaðarbók vegna persónuverndar.
Næsti fundur sveitarstjórnar verður 12. desember.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei