| |
1. 2308003 - Auðarskóli málefni grunnskóla 2023-2024 | |
Skólastjóri fer yfir dagskrá skólaársins og tillögur að breytingum. M.a. rætt um fyrirkomulag skíðaferðar. Miðað við óbreytta stöðu verður fækkun í grunnskóla næsta skólaár. Unnið er að skipulagi stoðþjónustu og farsældar fyrir börn, m.a. hafa verið sett á stofn lausnateymi. Skólapúlsinn - starfsmenn á dagskrá núna og foreldrar næsta ár. Munum þurfa að auglýsa eftir starfsfólki á bæði leikskóla- og grunnskóladeild skólans. Foreldrahús kemur með fyrirlestur 12. mars.
Fræðslunefnd leggur til við byggðarráð að gert verði ráð fyrir stöðu talmeinafræðings í fjárhagsáætlun/viðauka fyrir starfsemi Auðarskóla. Tillaga nefndarinnar er að fenginn verði talmeinafræðingur í 100% stöðu við skólann frá og með haustinu 2024. | | |
|
2. 2308004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2023-2024 | |
Skólareglur Auðarskóla eru í rýniferli hjá starfsfólki leikskóladeildar. Að öll óbreyttu fækkar börnum á leikskóladeild Auðarskóla á næsta ári. Námsvísar eru að virka vel. Komið fjármagn frá Slysavarnadeild Dalasýslu til að bæta leikskólalóð, verður farið í það með vorinu.
| | |
|
3. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 | |
Nefndin gerir ekki athugasemd við drög að erindisbréfi.
Nefndin tilnefnir Guðrúnu B. Blöndal fulltrúa fræðslunefndar í starfshópnum. | Erindisbref_starfshops_ithrotta_aeskulyds_tomstunda_2024.pdf | | |
|
4. 2301027 - Skólaakstur 2024-2027 | |
Vinna við útboðsgögn er á lokametrum í samstarfi við Ríkiskaup og stefnt að því að auglýsing fari í loftið á næstu dögum. | | |
|
Jón Egill Jónsson situr fundinn undir dagskrárliðum 5, 6, og 7.
| 5. 2304010 - Félagsmiðstöðin ungmenna | |
Engin umsókn hefur borist vegna auglýsingar enn sem komið er.
| | |
|
Jón Egill Jónsson situr fundinn undir dagskrárliðum 5, 6, og 7.
| 6. 2208010 - Tómstundir í Dalabyggð | |
Staðan kynnt. | | |
|
Jón Egill Jónsson situr fundinn undir dagskrárliðum 5, 6, og 7.
| 7. 2401041 - Ungmennaráð 2024 | |
Fræðslunefnd staðfestir fundargerð ungmennaráðs Dalabyggðar. | 1. fundargerð 2024 staðfest í tölvupósti.pdf | | |
|
8. 2403009 - Erindi vegna námskeiðs um einhverfu fyrir nemendur og starfsfólk Auðarskóla | |
Erindi tekið til umfjöllunar og nefndin sammála um að þörf er á slíkri fræðslu. Skólastjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|