| |
Guðrún Björg Bragadóttir, kemur sem gestur á fund nefndarinnar undir dagskrárlið 1.
| 1. 2303025 - Ferðaþjónusta í Dalabyggð 2023 | |
Það er í gangi mikil uppbygging bæði á gistimöguleikum og afþreyingu og meira væntanlegt.
Nefndin tekur undir að skoða þurfi salernismál fyrir ferðamenn í héraðinu og vegamálin sem er sameiginlegt baráttuefni Dalamanna.
Nefndin þakkar Guðrúnu kærlega fyrir komuna og samtalið.
| | |
|
2. 2208004 - Vegamál | |
Nefndin hefur vinnu við forgangsröðun vegaframkvæmda. Fram að næsta fundi verði tekin saman gögn, tölur og fleira sem gagnast til úrvinnslu við að setja fram forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð. Hlutir sem horft verður til eru m.a. áætluð dagsumferð, slysatíðni, umferðaróhöpp, ófærðardagar, staða framkvæmda, búseta í sveitarfélaginu, leiðir skólabíla, hverskonar fyrirtækjarekstur, framkvæmdir síðustu ára í sveitarfélaginu, samgönguáætlun stjórnvalda, samgöngu- og innviðaáætlun SSV o.s.frv. Unnið verði skjal sem verður birt opinberlega fyrir samráð við íbúa Dalabyggðar og í framhaldið metið hvort kalla þurfi saman vinnufund íbúa áður en endanleg forgangsröðun er send stjórnvöldum. | | |
|
3. 2210026 - Uppbygging innviða | |
Erindisbréf vinnuhóps lagt fram til kynningar. Breyting hefur orðið frá síðasta fundi nefndarinnar að styrkur SSV sem fékkst úr C1 verði greiddur áfram til Dalabyggðar. Í ljósi þess að við hlutverk hópsins bætist gerð tillögu um nýtingu fjármunanna kemur formaður atvinnumálanefndar inn í vinnuhópinn. | Erindisbref_atvinnuhusnaedi_til_stadfestingar.pdf | | |
|
| |
4. 2301054 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2023 | |
Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar í Dalabyggð var 2. | | |
|