|  | 
| 1. 2408003 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2024-2025 |  |
 Farið yfir málin og verkefnin í grunnskólanum, jólaundirbúningur í fullum gangi, kaffihúsakvöld og danskennslu nýlokið svo eitthvað sé nefnt í því sem á dagana hefur drifið í skólastarfi undanfarnar vikur.
  Farið yfir útkomu nemendaþings fyrir 4. til 10. bekk Auðarskóla sem haldið var fyrir stuttu. Fræðslunefnd fagnar þessu framtaki. |   |   |  
  | 
| 2. 2408004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2024-2025 |  |
 Farið yfir málin og verkefnin í leikskólanum, jólaundirbúningur í fullum gangi svo eitthvað sé nefnt í því sem á dagana hefur drifið í skólastarfi undanfarnar vikur.
  24 börn eru í leikskólanum nú og útlit fyrir að í janúar og febrúar 2025 fjölgi þeim um þrjú. 
  Skólastjóri lagði fram ósk um að færa skipulagsdag leikskólans sem fyrirhugaður var 11. febrúar 2025 yfir á 12. febrúar 2025. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina fyrir sitt leiti. |   |   |  
  | 
| 3. 2304010 - Félagsmiðstöð ungmenna |  |
 | Sveitarstjóri kynnti stöðu mála, stefnt er að því að starfsemi félagsmiðstöðvar hefjist eftir jólafrí og verður það kynnt þegar nær dregur áramótum. |   |  Áheyrnarfulltrúar og skólastjóri viku af fundi eftir lið nr. 3.
  |   |  
  | 
| 4. 1811022 - Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni |  |
 | Formaður fór yfir framkomna tillögu að uppfærðum reglum varðandi frístundastyrk Dalabyggðar. Fræðslunefnd samþykkti reglurnar með áorðnum breytingum og vísaði til staðfestingar sveitarstjórnar.  |   |   |  
  | 
| 5. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 |  |
 | Farið yfir stöðu mála. |   |   |  
  | 
| 6. 2411021 - Erindi vegna tónlistarskóla |  |
 | Formanni fræðslunefndar og sveitarstjóra falið að fara yfir erindið með skólastjóra og afla frekari gagna varðandi starfsemi skólans og einstaka atriði í starfsemi hans. |   |   |  
  | 
| 7. 2412001 - Félagsmiðstöðin Gildran |  |
 | Fræðslunefnd vísar til bókunar undir lið 3 á dagskrá fundarins. Fræðslunefnd tekur undir ábendingar frá foreldrafélagi Auðarskóla varðandi það að mikilvægt er að starfsemi félagsmiðstöðvarinnar hefjist sem fyrst. |  | Erindi frá Foreldrafélagi.pdf |   |   |  
  |