| |
| 1. 1802018 - Deiliskipulag Hvammar | |
| Skipulagsfulltrúa falið að sjá til þess að brugðist verði við athugasemdum frá Skipulagsstofnun. Endurbætt gögn verða í kjölfarið lögð fram til afgreiðslu sveitarstjórnar á næsta fundi. | | |
|
| |
| 2. 1810005 - Drög að matsáætlun | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemd við lið 3.6 og fer fram á að gerð verði nánari grein fyrir förgun vindmylla og undirstöðum þeirra. Nefndin gerir einnig athugasemd við lið 4.1.6.1 og óskar eftir því að gerð verði frekari grein fyrir rannsóknum sem framkvæmdar voru árið 2018 og þeim sem eru fyrirhugaðar árið 2019.
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur áherslu á að vandað verði til verka í jafn viðamiklu verkefni.
| | |
|
| 3. 1904025 - Samkomulag vegna lagningar jarðstrengja | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 4. 1904015 - Umsagnarbeiðni - Seljaland - rekstrarleyfi | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.
| | |
|
| 5. 1905001 - Umsókn um byggingu smáhýsa - gestahús | |
| Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gefin verði út byggingarleyfi fyrir þrjú smáhýsi í Gildubrekkum. | | |
|