Til bakaPrenta
Atvinnumálanefnd Dalabyggðar - 30

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
24.08.2022 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Garðar Freyr Vilhjálmsson formaður,
Jón Egill Jóhannsson aðalmaður,
Sigrún H. Sigurðardóttir aðalmaður,
Bjarnheiður Jóhannsdóttir aðalmaður,
Sigurður Bjarni Gilbertsson aðalmaður,
Jóhanna María Sigmundsdóttir Verkefnastjóri ,
Fundargerð ritaði: Jóhanna María Sigmundsdóttir, Verkefnastjóri atvinnu- kynningar- og menningarmála
Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri sat fundinn undir dagskrárlið 2 og 3.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2208002 - Kosning varaformanns atvinnumálanefndar
Bjarnheiður Jóhannsdóttir er kjörin varaformaður nefndarinnar.

Samþykkt samhljóða.
2. 2202022 - Verkefnisstjórn fyrir Brothætta byggð
Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Dala-Auðar kemur á fund nefndarinnar og fer yfir verkefnið.
Linda fer yfir verkefnið DalaAuður ásamt framkvæmd íbúafundar 23.08.2022.
Opnað verður fyrir umsóknir í frumkvæðissjóð um mánaðarmót.
Nefndin fylgist áfram með framvindu verkefnisins og leggur til aðstoð eftir þörfum.
Linda Guðmundsdóttir var gestur nefndarinnar undir dagskrárlið 2.
3. 2206017 - Samantekt um stöðu sauðfjárræktar
Svavar M. Jóhannsson, formaður Félags sauðfjárbænda í Dölum, kemur á fund nefndarinnar.
Svavar fer yfir stöðu og framtíðarhorfur í sauðfjárrækt í Dalabyggð.
Umræður m.a. um rekstrarkostnað, rekstrarforsendur, sláturverð, sláturleyfishafa, loftslagsmál og fl.
Staðan er alvarleg þrátt fyrir þær hækkanir á afurðaverði sem komið hafa fram.
Svavar M. Jóhannsson var gestur nefndarinnar undir dagskrárlið 3.
4. 2208003 - Stefna atvinnumálanefndar 2022-2026
Nefndin ræðir stefnu og verkáætlun nefndarinnar 2022-2026
Nefndin ræðir samþættingu stefnu við áherslur og verkefni í DalaAuði, uppsetningu námskeiða/fræðsluerindi vegna atvinnumála í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar, gestkomur á fundi nefndarinnar, samráðsvettvang atvinnurekenda í Dalabyggð.
Nefndin vinnu áfram með stefnuna.
Fundir nefndarinnar verði miðaðir við mánudag í 4. viku hvers mánaðar.
Mál til kynningar
5. 2208005 - Upplýsingar um atvinnuleysi 2022
Atvinnuleysistölur fyrir júlí 2022.
Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar í Dalabyggð voru 3.

Lagt fram til kynningar
Atvinnuleysi-juli-22-toflur.pdf
atvinnuleysi_2022_jan-jul.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:40 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei