| |
1. 2002053 - Endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar | |
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur yfirfarið umsögn Skipulagsstofnunar dags. 19.4.2022 um tillögu að aðalskipulagi Dalabyggðar og samþykkir að aðalskipulagstillagan og umhverfisskýrsla hennar verði auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, að gerðum þeim lagfæringum sem lýst er í minnisblaði dags. 24.4.2022 með fyrirvara um afgreiðslu sveitarstjórnar um aðalskipulagsbreytingar vegna vindorkuvera í landi Hróðnýjarstaða og Sólheima.
Samþykkt samhljóða.
| Aðalskipulag_Dalabyggðar_yfirferð skipulagsstofnunar (ID 272895).pdf | ASK-Dalabyggdar 2020-2032-GRG-tillaga (ID 176795).pdf | | |
|
2. 2106005 - Ærslabelgur í Búðardal | |
Nefndin tekur vel í erindið og leggur til að strandblaksvöllurinn verði skoðaður sem fyrsti valkostur fyrir ærslabelg þar sem kostnaður við undirlag verður í lágmarki.
Samþykkt samhljóða. | Ærslabelgur.pdf | Búðardalur - Ærslabelgir - 2021.pdf | | |
|
3. 2204021 - Stofnun lóðar í Giljalandi | |
Nefndin gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar.
Samþykkt samhljóða. | Giljaland-skemma-lóðamynd-1.01-2022.04.03.pdf | | |
|
| |
4. 2003041 - Sólheimar - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Nefndin tekur undir með ráðherra um óhóflegar tafir á afgreiðslu málsins hjá Skipulagsstofnun.
Þar sem fyrir liggur ákvörðun ráðherra um synjun á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers í landi Sólheima leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að umrætt iðnaðarsvæði verði skilgreint sem varúðarsvæði.
Samþykkt samhljóða. | Ákvörðun ráðherra í máli IRN22011084 varðandi breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar.pdf | | |
|
5. 2003042 - Hróðnýjarstaðir - breyting á aðalskipulagi vegna vindorkuvers | |
Nefndin tekur undir með ráðherra um óhóflegar tafir á afgreiðslu málsins hjá Skipulagsstofnun.
Þar sem fyrir liggur ákvörðun ráðherra um synjun á breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers í landi Hróðnýjarstaða leggur skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að umrætt iðnaðarsvæði verði skilgreint sem varúðarsvæði.
Samþykkt samhljóða. | Ákvörðun ráðherra í máli IRN22011084 varðandi breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar.pdf | | |
|