Til bakaPrenta
Sveitarstjórn Dalabyggðar - 184

Haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal,
12.12.2019 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti,
Ragnheiður Pálsdóttir varaoddviti,
Sigríður Huld Skúladóttir aðalmaður,
Einar Jón Geirsson aðalmaður,
Þuríður Jóney Sigurðardóttir aðalmaður,
Pálmi Jóhannsson aðalmaður,
Kristján Sturluson sveitarstjóri,
Anna Berglind Halldórsdóttir varamaður,
Magnína G Kristjánsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Magnína Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri
Lagt til að eftirfarandi málum verði bætt á dagskrá:
1910002F - Fundargerð 94. fundar fræðslunefndar Dalabyggðar sem verði dagskrárliður 25.
1910011F -Fundargerð 99. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar sem verði dagskrárliður 26.
1912017 Gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands hf., mál til kynningar, sem verði dagskrárliður 33.
Aðrir dagskrárliðir færast til í samræmi við þessa breytingu.
Samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1806011 - Kosning í nefndir skv. A-hluta 48 gr. samþykkta Dalabyggðar
Eva Sigurðardóttir aðalmaður í fræðslunefnd hefur látið af setu sem aðalfulltrúi í nefndinni.
Tillaga um Heiðrúnu Söndru Grettisdóttur sem aðalmann í fræðslunefnd.
Samþykkt samhljóða.
2. 1903025 - Gjaldskrár 2020
Gjaldskrár vegna 2020 lagðar fram. Gjaldskrár hækka um 2,5%. Álagningarhlutfall fráveitu og vatnsgjald lækkar þannig að hækkun verði í samræmi við þessa breytingu.

Gjaldskrár vegna Íþróttamiðstöðvarinnar á Laugum, hundahalds og Slökkviliðs Dalabyggðar verða afgreiddar á fundi sveitarstjórnar í janúar. Stjórn Dalaveitna ehf. tekur ákvörðun um gjaldskrá þess félags.

Tóku til máls: Kristján, Anna Berglind, Eyjólfur.

Gjaldskrá fyrir hirðingu, eyðingu og mótttöku sorps í Dalabyggð.
Samþykkt með 6 (EJG,SHS,ÞJS,EIB,RP,PJ) atkvæðum einn á móti (ABH).

Gjaldskrá fyrir hafnir Dalabyggðar
Samþykkt samhljóða.

Gjaldskrá félagsheimila
Samþykkt samhljóða

Gjaldskrá - byggingarleyfis-, framkvæmda-, skipulags- og þjónustugjöld í Dalabyggð.
Samþykkt samhljóða.

Gjaldskrá fyrir Silfurtún
Samþykkt samhljóða.

Gjaldskrá Auðarskóla
Samþykkt samhljóða.

Gjaldskrá vatnsveitu
Samþykkt samhljóða

Gjaldskrá fráveitu
Samþykkt samhljóða
GJALDSKRÁ fyrir hirðingu-móttöku og eyðingu sorps í Dalabyggð 2020 - breytt eftir fund byggðarráðs 6_12_2019.pdf
Gjaldskrá hafnir Dalabyggðar 2020.pdf
Gjaldskrá félagsheimila 2020.pdf
GJALDSKRÁ - byggingarleyfis- framkvæmda- skipulags - og þjónustugjöld í Dalabyggð.pdf
Gjaldskrá fyrir Silfurtún 2020.pdf
Gjaldskrá Auðarskóla 2020.pdf
Gjaldskrá vatnsveitu 2020.pdf
GJALDSKRÁ fráveitu í Dalabyggð 2020.pdf
3. 1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023, síðari umræða
Frá 237. fundi byggðarráðs 28.11.2019, dagskrárliður 1:
1.
Gjaldskrár:
Hækka um 2,5%. Hlutfall fráveitu og vatnsgjald lækkar þannig að hækunn verði í samræmi við þetta.
Grunngjald vegna dýrahræja verður kr. 18.000 miðað við 20 kindur eða 5 stórgripi eða minna. Vinna við þessa gjaldskrá er enn í gangi
Breytingatillögur:
Heilbrigðismál hækka vegna aukins kostnaðar við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.
Aðgangseyrir Byggðasafns tekinn út þar sem safnið verður ekki opið næsta sumar.
Kostnaður vegna byggðasamlags um slökkvilið færist úr A í B hluta.
Breytingar í framhaldi af ákvörðun um skuld Silfurtúns við aðalsjóð.
Hætt verður að senda álagningar- og greiðsluseðla á pappír.
Fjárfestingar í heild óbreytt upphæð en kostnaður lækkar við suma liði en hækkar við aðra.
Verður tekið til afgreiðslu á fundi byggðarráðs 6. desember.
Ingibjörg Jóhannsdóttir aðalbókari og Viðar Ólafsson verkstjóri sátu fundinn undir dagskrárlið 1.

Frá 238. fundi byggðarráðs 6.12.2019, dagskrárliður 10:
1903025 - Fjárhagsáætlun 2020-2023
Til viðbótar við það sem tilgreint var á fundinum 28. nóv. sl. koma til útgjöld vegna jafnlaunavottunar (kr. 2.000.000), ráðgjafaverkefna (umferðarmál o.fl. kr. 300.000) og kynningarmála (kr. 500.000). Fjárfestingar hækka um kr. 1.000.000 (undirbúningur íþróttamannvirkja)
Byggðarráð samþykkir samhljóða að leggja fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn til síðari umræðu með framangreindum breytingum og þeim breytingatillögum sem bókaðar voru á fundi ráðsins 28. nóv. sl.


Tók til máls: Kristján, Einar Jón,
Einar Jón lagði fram eftirfarandi tvær tillögur:
Fyrri tillaga Einars Jóns: Sveitarsjórn Dalabyggðar samþykkir að unnið verði að því að selja eða bjóða út rekstur allra félagsheimila í eigu sveitarfélagsins, eftir að eignarhald á þeim hefur verið skilgreint.
Tóku til máls: Anna Berglind, Ragnheiður, Sigríður, Þuríður, Einar Jón, Eyjólfur.
Einar Jón dregur tillögu sína til baka.

Önnur tillaga Einars Jóns: Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir að jörðin Sælingsdalstunga verði sett á sölu.
Tóku til máls: Ragnheiður, Sigríður, Eyjólfur, Þuríður, Einar Jón.
Einar Jón dregur tillögu sína til baka.

Breytingatillögur byggðarráðs lagðar fram.
Samþykkt samhljóða.

Greinargerð og tillaga að fjárhagsáætlun lögð fram.
Samþykkt samhljóða.
Fjárhagsáætlun 2020 6_12_2019.pdf
Greinargerð með fjárhagsáætlun 2020-2023.pdf
4. 1911022 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki VI
Úr fundargerð 237. fundar byggðarráðs 28.11.2019, dagskrárliður 3:
1911022 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki VI
Dalabyggð fær 6 milljónir vegna íbúðabygginga sbr. viljayfirlýsingu sem var undirrituð 8. nóvember sl. Viðauka þarf til þess að hægt sé að yfirfæra þetta fé til Hvamma hses.
Samþykkt samhljóða að leggja viðauka fyrir sveitarstjórn.

Tók til máls: Kristján.
Lögð fram breytingartillaga um að Dalabyggð hafi heimild til að lána Bakkahvammi hses allt að kr. 5.500.000.-
Samþykkt samhljóða
Tillagan lögð fram í heild.
Samþykkt samhljóða.
R. Yfirlit viðauka 2019_Dalabyggð VI.pdf
5. 1911029 - Blönduhlíð - umsókn um vegsvæði
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 4:
1911029 - Blönduhlíð - umsókn um vegsvæði
Umsókn um stofnun vegsvæða vegna uppbyggingar Snæfellsvegar um Skógarströnd.
Nefndin samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að umsóknin verði samþykkt.

Umsókn um vegsvæði - Blönduhlíð.
Samþykkt samhljóða.
Umsókn vegsvæði Blönduhlíð Dalabyggð.pdf
6. 1911027 - Bugðustaðir - umsókn um vegsvæði
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 5:
1911027 - Bugðustaðir - umsókn um vegsvæði
Umsókn um stofnun vegsvæða vegna uppbyggingar Snæfellsvegar um Skógarströnd.
Nefndin samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að umsóknin verði samþykkt.

Bugðustaðir - umsókn um vegsvæði.
Samþykkt samhljóða.
umsókn vegsvæði Bugðustaðir Dalabyggð.pdf
7. 1911030 - Ketilsstaðir - umsókn um vegsvæði
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 6:
1911030 - Ketilsstaðir - umsókn um vegsvæði
Umsókn um stofnun vegsvæða vegna uppbyggingar Snæfellsvegar um Skógarströnd.
Nefndin samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að umsóknin verði samþykkt.

Ketilsstaðir - umsókn um vegsvæði.
Samþykkt samhljóða.
Umsókn vegsvæði Ketilsstaðir Dalabyggð.pdf
8. 1912001 - Miðbraut 15 - Breyting á notkun húss
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 7:
1912001 - Miðbraut 15 - Breyting á notkun húss
D9 ehf. óskar eftir því að breyta notkun hússins úr skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að húsnæðið uppfylli skilyrði byggingarreglugerðar um íbúðarhúsnæði.

Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.
ByggingarleyfisumsóknMiðbraut15.pdf
9. 1909001 - Umsókn um byggingarleyfi - breyting (Dalakot í Hörðudal).
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 9:
1909001 - Umsókn um byggingarleyfi - breyting
Sótt var um breytingu á notkun núverandi íbúðarhúss í Dalakoti. Svæðið er ekki deiliskipulagt og fór því fram grenndarkynning á breytingunni.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Grenndarkynning vegna breyttrar notkunar hússins fór fram og voru engar athugasemdir gerðar.

Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.
Breyting á notkun núverandi sumarhúss í íbúðahús í Dalakot í Dalabyggð.pdf
10. 1909003 - Umsókn um breytingu á notkun sumarhúss í íbúðahús (Bergsstaðir í Haukadal).
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 10:
1909003 - Umsókn um breytingu á notkun sumarhúss í íbúðahús
Umsókn um breytingu á notkun sumarhúss í íbúðarhús. Grenndarkynning á breytingunni hefur farið fram.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Grenndarkynning vegna breyttrar notkunar hússins fór fram og voru engar athugasemdir gerðar.

Samþykkt samhljóða.

Samþykkt samhljóða.
Umsókn um breytingu á notkun sumarhúss í íbúðahús.pdf
11. 1910024 - Skógrækt á jörðinni Hóli í Hvammssveit - umsókn
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 11:
1910024 - Skógrækt á jörðinni Hóli - umsókn
Frestað frá síðasta fundi. Fyrir liggur umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að ákvörðun um málið verði frestað þar til mótuð hefur verið stefna hjá sveitarfélaginu varðandi notkun á landi tengt landbúnaði samfara nýju aðalskipulagi en vinna við endurskoðun þess hefst fljótlega í byrjun næsta árs.

Samþykkt samhljóða.

Tóku til máls: Einar Jón, Eyjólfur, Ragnheiður.
Einar Jón leggur fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðunni Hóli í Hvammssveit, með fyrirvara um samþykki eigenda aðliggjandi jarða og Minjastofnunnar.
Tóku til máls: Eyjólfur, Anna Berglind:
Tillagan felld með 5 atkvæðum (PJ, EIB, SHS, RP, ABH) gegn einu (EJG) og einn sat hjá (ÞJS).

Tillaga umhverfisnefndar lögð fram.
Samþykkt með sex atkvæðum (PJ, ABH, SHS, EIB, RP, ÞJS), einn situr hjá(EJG).

ÚttektSkógrækt.pdf
Skógrækt á Hóli - greinargerð með umsókn.pdf
Skýrsla um skógrækt á Hóli í Hvammssveit.pdf
Umsókn um framkvæmdaleyfi - skógrækt á Hóli.pdf
12. 1912007 - Sumarhús á Reynikeldu II á Skarðsströnd
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 12:
1912007 - Sumarhús á Reynikeldu II á Skarðsströnd
Umsókn um byggingarleyfi fyrir sumarhús á Reynikeldu II á Skarðsströnd
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt með fyrirvara um að öll gögn og leyfi liggi fyrir í málinu áður en framkvæmdir hefjast.

Samþykkt samhljóða.

Tillagan samþykkt samhljóða.
Greinagerð-skráning, tafla og snið A102.pdf
Grunnmynd-útlit A101.pdf
13. 1912008 - Iðjubraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 13:
1912008 - Iðjubraut 2 - Umsókn um byggingarleyfi
RARIK OHF. sækir um að setja upp einingahús á lóð RARIK að Iðjubraut 2.
Nefndin gerir ekki athugasemd við erindið.

Samþykkt samhljóða.

Tillagan samþykkt samhljóða.
190423-Iðjubraut-2-Skráningartafla-MHL-02 í PDF formi.pdf
Byggingaleyfisumsókn Dalabyggð.pdf
14. 1910012 - Veiðihús í Ytra-Fellslandi - 2117710
Úr fundargerð 100. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar 06.12.2019, dagskrárliður 3:
1910012 - Veiðihús í Ytra-Fellslandi - 2117710
Ósk um niðurrif veiðihúss í Ytra Fellslandi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindið gegn skriflegu samþykki landeigenda.

Tillagan samþykkt samhljóða.
Svar frá Þjóðskrá Íslands við fyrirspurn vegna veiðihúss í Ytra-Fellslandi, F211771.pdf
Umsókn um niðurrif mannvirkja.pdf
Gögn varðandi veiðihús í Ytra-Fellslandi - 211-7710.pdf
Skipunarbréf frá Héraðsdómi Austurlands.pdf
Pálmi víkur af fundi
15. 1905013 - Skoðun á sameiginlegu mötuneyti Silfurtúns og Auðarskóla.
Úr fundargerð 28. fundar stjórnar Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns, 03.12.2019, dagskrárliður 2:
"Samningur um mötuneyti Silfurtúns rennur út um mánaðarmótin maí/júní á næsta ári. Stjórnin leggur til við sveitarstjórn að skoðaðir verði möguleikar á einu mötuneyti fyrir Silfurtún og Auðarskóla.
Samþykkt samhljóða."

Tóku til máls: Ragnheiður, Þuríður.

Tillagan samþykkt samhljóða.
Pálmi kemur inn á fund.
16. 1912006 - Styrkur vegna tónlistarnáms utan sveitarfélags
Fært í trúnaðarbók vegna persónuverndar.
17. 1809023 - Skólastefna Dalabyggðar
Úr fundargerð 94. fundar fræðslunefndar 04.12.2019, dagskrárliður 1:
1809023 - Skólastefna Dalabyggðar
Kynning á drögum um skólastefnu Dalabyggðar
Fræðslunefnd samþykkir skólastefnu 2019-2022 og leggur hana fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða

Tók til máls: Sigríður.

Skólastefnan samþykkt samhljóða.
Skólastefna lokaskjal til samþykktar 2.12.2019.pdf
18. 1911026 - Starfsáætlun Auðarskóla 2019-20
Úr fundargerð 94. fundar fræðslunefndar 04.12.2019, dagskrárliður 2:
1911026 - Starfsáætlun Auðarskóla 2019-20
Kynning á starfsáætlun Auðarskóla vegna starfsársins 2019-20
Uppfæra þyrfti starfsmanna- og skólaakstursstefnur Dalabyggðar.

Samþykkt samhljóða

Tóku til máls: Kristján, Sigríður.
Tillaga um að uppfæra starfsmanna- og skólaskstursstefnur Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða.
Starfsáætlun_allir 2019-2020 loka.pdf
19. 1912011 - Byggðasafn Dalamanna - Staðarfell
Erindi frá menningarmálanefnd um að Staðarfell verði skoðað sem framtíðarhúsnæði fyrir Byggðasafn Dalamanna.
Tóku til máls: Einar Jón, Ragnheiður, Kristján, Eyjólfur.

Oddviti bar upp tillögu frá Menningarmálanefnd.
Sveitarstjórn samþykkir að leita eftir formlegum viðræðum við ríkið um að Dalabyggð fái eignirnar á Staðarfelli til fullra umráða til langs tíma, með það að markmiði að koma þar upp Menningarsetri Dalasýslu, sem m.a. myndi hýsa Byggðasafn Dalamanna og eftir hentugleikum, skjalasafn og annað það sem fallið getur með þeirri starfsemi.
Samþykkt samhljóða.
erindi til sv.st. des 2019 v húsnæðismál staðarfell.pdf
gögn vegna hugarflugsfundar.pdf
Greinagerð um byggingar á Staðarfelli.pdf
20. 1912005 - Breyting á samþykktum Dalabyggðar vegna lagabreytinga
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur öll sveitarfélög, þar sem við á, að laga samþykktir sínar í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum
Tók til máls: Kristján.
Byggðarráði falið að endurskoða samþykktir um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar.
Samþykkt samhljóða.
Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp vegna laga og reglugerða um mat á umhverfisáhrifum.pdf
21. 1901005 - Mál frá Alþingi til umsagnar - 2019
Frumvarp til laga um um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð), 383. mál.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum (viðaukar). 436. mál.
Frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar, málsmeðferð, endurupptaka o.fl.), 317. mál.
Tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024, 434. mál.
Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034, 435. mál.

Tók til máls: Sigríður.
Tillaga um að sveitarsjóri sendi inn umsögn um þingsályktun um samgönguáætlun.
Samþykkt samhljóða.
Frumvarp til laga um um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr 125_1999 (öldungaráð) 383 mál.pdf
Tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024 434 mál.pdf
Frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar- málsmeðferð endurupptaka o_fl) 317 mál.pdf
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr 7_1998, með síðari breytingum (viðaukar) 436 mál.pdf
22. 1908001 - Val á verktaka vegna aðalskipulagsvinnu
Tilboð vegna örútboðs voru opnuð 11. desember. Fjögur tilboð bárust.
Dalabyggð mun fara að tillögu Ríkiskaupa og mun tilkynning um val tilboðs verða send bjóðendum í útboðskerfi stofnunarinnar.
Samþykkt samhljóða.
Heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Dalabyggðar RK.pdf
Fundargerð
23. 1911004F - Byggðarráð Dalabyggðar - 237
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
24. 1911006F - Byggðarráð Dalabyggðar - 238
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
25. 1910002F - Fræðslunefnd Dalabyggðar - 94
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
26. 1910011F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 99
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
27. 1911001F - Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar - 100
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
28. 1911003F - Stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns - 28
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
29. 1905009 - Fundargerðir Eiríksstaðanefndar 2019
Fundargerð 16. fundar Eiríksstaðanefndar, 18. nóvember 2019.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
Eiríksstaðanefnd 18_11_19.pdf
Fundargerðir til kynningar
30. 1911021 - Fundargerðir stjórnar Bakkahvamms hses
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
Hvammar hses - 2.pdf
Hvammar hses - 1.pdf
Hvammar hses - 3.pdf
31. 1902027 - Dalaveitur - fundargerðir stjórnar 2019
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Dalaveitur ehf 21.pdf
32. 1902003 - Fundargerðir Sambands ísl. sveitarfélaga 2019
Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfél. 29.11.2019 lögð fram.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 876.pdf
Mál til kynningar
33. 1912017 - Gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands hf.
Gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands hf lögð fram til kynningar.
Gjaldskrá Sorpurðunar Vesturlands 2020.pdf
34. 1901014 - Skýrsla frá sveitarstjóra.
Lögð fram til kynningar.
Minnisblað 1901014 - Skýrsla sveitarstjóra - desember 2019.pdf
Fundargerð lesin yfir, samþykkt og undirrituð.

Næsti fundur sveitarstjórnar verður 16. janúar 2020.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei