|  | |  | 
| | Jón Egill Jónsson íþrótta- og tómstundafulltrúi sat fundinn undir lið 1 og 2. 
 |  | 1. 2408005 - Tómstundir/íþróttir skólaárið 2024-2025 |  |
 | Jón Egill íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir það starf sem boðið verður upp á í haust og búið er að skipuleggja. Fræðslunefnd lýsir ánægju með það framboð af tómstundum sem í boði verður.
 |  | Íþróttir og tómstundir haust 2024.pdf |  |  |  |  | 
 | 
| | 2. 2408002 - Ungmennaráð 2024-2025 |  |
 | Lögð fram drög að auglýsingu eftir framboðum í ungmennaráð. Auglýsingin var samþykkt með á orðnum breytingum og íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að koma auglýsingu og kynningarefni á framfæri til ungmenna. Framboðsfrestur er til og með 9. september n.k. 
 |  |  |  |  | 
 | 
| | 3. 2305001 - Skólaþjónusta |  |
 |  |  |  | 
 | 
| | 4. 2408003 - Auðarskóli, málefni grunnskóla 2024-2025 |  |
 | Varðandi skólalóð, öryggismál og leiksvæði, þá óskar fræsðlunefnd eftir því að byggingarnefnd/byggðarráð taki umræðu um þennan mikilvæga þátt við framkvæmdaaðilann sem og eftirlitsaðilann sem sér um byggingarstjórn og eftirlit með verkinu er varðar aðstöðu nemenda grunnskólans samanber minnisblað skólastjóra. 
 Varðandi leiktæki á skólalóð þá mælist fræðslunefnd til að það verði skoðað hvað helst vanti á núverandi lóð í samráði við skólastjórnendur.
 
 Rætt um kynningarfund sem haldinn verður þann 4. september n.k. í Dalabúð þar sem Menntastefna Dalabyggðar verður kynnt. Fræðslunefnd hvetur alla áhugasama til að mæta á fundinn sem haldinn verður í Dalabúð kl. 17:30.
 |  | Minnisblað skólastjóra-Til fræðslunefndarfund 27.8.2024.pdf |  |  |  |  | 
 | 
| | 5. 2408004 - Auðarskóli, málefni leikskóla 2024-2025 |  |
 | Ljóst er að börnum er að fjölga á leikskólanum þegar líður á haustið, eru 23 börn nú en stefnir í að verði 27 börn í nóvember.  Rætt um mönnum og stöðu hennar. |  |  |  |  | 
 | 
|  | 
| | 7. 2403007 - Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 |  |
 | Varðandi viðbótartillögur sem vísað var til fræðslunefndar þá var rætt um hvaða möguleikar væru til staðar. Fræðslunefnd óskar eftir við byggðarráð að þeir þættir sem tilgreindir eru í viðbótartillögum starfshópsins verði hafðir til hliðsjónar við gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar fyrir komandi ár. |  | Skýrsla starfshóps, undirrituð..pdf |  |  |  |  | 
 |