Tónleikar í Dalíu
26jún20:00Tónleikar í DalíuTónleikar
Nánari upplýsingar
Þetta unga og hæfileikaríka fólk, m.a. Alvilda Eyvör, dóttir Elmars Gilbertssonar mun halda tónleika í Dalíu 26. júní kl. 20:00. Aðgangseyrir við innganginn, kr. 2.000 Alvilda Eyvör Elmarsdóttir (2004) er lýrísk
Nánari upplýsingar
Þetta unga og hæfileikaríka fólk, m.a. Alvilda Eyvör, dóttir Elmars Gilbertssonar mun halda tónleika í Dalíu 26. júní kl. 20:00. Aðgangseyrir við innganginn, kr. 2.000
Alvilda Eyvör Elmarsdóttir (2004) er lýrísk sópransöngkona. Hún hóf að læra klassískan söng 16 ára gömul við Menntaskóla í tónlist og útskrifaðist 2024 með viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á framhaldsprófi. Alvilda hefur komið fram sem einsöngvari með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og árið 2023 söng hún Miðnæturmessu Hallgrímskirkju á aðfangadagskvöld. Með Kammerkórnum Aurora söng Alvilda 98 sýningar af söngleiknum 9líf í Borgarleikhúsinu. Nú stundar hún nám við Sibeliusar-akademíuna í Helsinki og mun útskrifast þaðan með bakkalárgráðu í klassískum söng vorið 2027 og með meistaragráðu frá sama skóla veturinn 2029
Erlendur Snær Erlendsson (2004) hefur stundað píanónám frá 8 ára aldri. Auk þess hefur hann lagt stund á tónsmíðar við Listaháskóla Íslands en einbeitir sér nú að píanóleik. Hann leggur mikla áherslu á tjáningu og samvinnu sér í lagi með söngvurum. Hann mun útskrifast með bakkalárgráðu frá LHÍ árið 2028
Matthildur Traustadóttir (2004), lofuð fyrir að búa yfir óvenjulegum þroska og ástríðufullri tjáningu í fiðluleik, hóf fiðlunám sjö ára. Hún fæddist á Ítalíu en ólst upp á Spáni þar sem hún hóf tónlistarnám. Árið 2020 flutti Matthildur til Íslands og byrjaði fiðlunám hjá Guðnýju Guðmundsdóttur. Matthildur lauk burtfararprófi frá MÍT sem dúx en hún útskrifaðist einnig af náttúrufræðibraut frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Matthildur hefur hlotið fjölmörg verðlaun fyrir fiðluleik í Evrópu og Bandaríkjunum.
Jakob Arnar Baldursson (2002) hóf fyrst nám í píanóleik um sex ára aldur en hann fékk kennara í Japan árið 2019, þar sem hann var í skiptinámi. Hann útskrifaðist frá Menntaskóla í tónlist 2024. Síðan hefur hann stundað nám við Listaháskóla Íslands og stefnir á útskrift í maí 2027. Jakob hefur komið fram sem píanóleikari á ýmsum tónlistarhátíðum, meðal annars á Amalfi Piano Festival árið 2022 og BIP Festival árið 2025 í Rovigo á Ítalíu.
Meira
Klukkan
26. júní, 2026 20:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Dalía
Miðbraut 15