Ágúst, 2021

12ágú20:00Flamenco tónleikar Reynis del NorteFlamenco tónleikar Reynis del Norte

Nánari upplýsingar

Flamenco tónleikar Reynis del Norte í Vínlandssetrinu þann 12. ágúst kl.20:00

Reynir Hauksson er fæddur og uppalinn á Hvanneyri en hefur búið um árbil í Granada, Spáni þar sem hann vinnur sem Flamenco listamaður.
Hann hefur sett upp ótal tónleika hér á Íslandi og á Spáni með Flamenco hljómsveitum eða sem einleikari. Reynir er þekktur fyrir orkumikinn og tilfinningaríkan flutning í bland við skemmtilegar sögur og spjall á mili laga um líf hans í Andalúsíu.
Reynir del Norte gaf út sína fyrstu sólóplötu, El Reino de Granada, í desember 2019 sem jafnframt er fyrsta íslenska Flamenco hljómplatan. Platan inniheldur 8 tónsmíðar Reynis sem fluttar voru af honum sjálfum í samstarfi við nokkra af færustu Flamenco listamönnum Granada.
Lög plötunnar verða flutt á tónleikunum sem og nokkur þekkt íslensk dægur-og þjóðlög útsett af Reyni fyrir Flamenco gítar. Þema tónleika verður því Íslenskt Flamenco.

Viðburður á Facebook: Flamenco tónleikar Reynis del Norte í Vínlandssetrinu

Meira

Klukkan

(Fimmtudagur) 20:00

X
X