Heim í Búðardal 2026

02júlAllann daginn05Heim í Búðardal 2026

Nánari upplýsingar

Fimmtudagurinn 2. júlí

Kl. 21:00 – Okkar eina sanna Nikkólína með tónleika í Dalabúð ásamt Félagi harmonikkuvina á Vesturlandi. Fólk er hvatt til að taka dansskóna með og liðka sig fyrir sumarið.

Föstudagurinn 3. júlí

Kl. 18:00 – 19:30 – Karaókíveisla fyrir alla fjölskylduna sem Sandra Barilli karaókírottning Íslands heldur í Dalíu. Öll velkomin.

Kl. 20:00 – Söngveisla í Dalabúð. Fjölbreytt söngdagskrá, allt frá óperuperlum til sönglaga. Fram koma: Hallveig Rúnarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Elmar Gilbertsson, Ólafur Rúnarsson og Matthildur Anna Gísladóttir. Nýr flygill vígður, aðgangseyrir rennur óskiptur í flygilsjóð. Miðaverð 5.500 kr.- en frítt fyrir 14 ára og yngri. Miðasala við inngang og posi á staðnum.

Laugardagurinn 4. júlí

Kl. 10:00 – 12:00 – Tapas námskeið í Dalíu. Ókeypis aðgangur. Skráning á Facebook: Bæjarhátíð í Búðardal.

KI. 12:00-15:00 – Skottsala við Stjórnsýsluhúsið. Mætum á svæðið, opnum skottið og höfum fjölbreyttan varning til sölu. Skráning á Facebook: Bæjarhátíð í Búðardal.

Kl. 12:00 – 14:00 – Veltibíllinn við Stjórnsýsluhúsið. Alltaf klassík og góð áminning á mikilvægi bílbelta!

Kl. 14:00 – Dalabyggð í sókn, frumsýning á kynningarefni um Dalina. Frumsýningin verður haldin í félagsheimilinu Dalabúð þar sem verður sannkölluð bíóstemning. Popp og kók í boði fyrir gesti. Allir velkomnir og ókeypis inn.

Kl. 15:00 – Pramma/báta rallý í höfninni. Brettum upp ermar og skellum í álitlega fararskjóta. Mæting þátttakenda er kl. 14:45.

Kl. 16:00 – Mikilhvellur í Dölunum – skapandi óreiða í friðsælli sveit. Rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson og Sigríður Hagalín mæta með bókmenntapartý í Dalíu og draga hvergi af sér.

Kl. 17:00 – Leir á Víkingaöld. Erindi í tengslum við Eiríksstaðahátíð, haldið í Reynisstofu í Vínlandssetrinu.

Kl. 18:00 – 19:30 – Kjötsúpurölt í Búðardal. Endurvekjum hið skemmtilega kjötsúpurölt, tökum á móti gestum og gangandi í ilmandi súpu. Sjá gestgjafa á Facebook: Bæjarhátíð í Búðardal.

Kl. 20:00 – 22:00 – Brekkusöngur og varðeldur niðri í fjöru, vestan við Vínlandssetrið.

Sunnudagurinn 5. júlí

Kl. 13:00 – Dagskrá í Stóra-Vatnshornskirkju. 65 ára saga saumaklúbbs Haukadalskvenna. Daladætur þær Dallilja Sæmundsdóttir og Jónína Björg Magnúsdóttir, syngja og skemmta. Anna Ekielska leikur listir sínar á þverflautu. Kaffiveitingar að hætti saumaklúbbskvenna. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Viðburðurinn er styrktur af DalaAuði.

Kl. 12:00 – 15:00 – Rapp og ritmi með Steinunni og Gnúsa Yones. Tónlistarfólkið Steinunn Jónsdóttir og Gnúsi Yones leiða áhugasöm börn og unglinga inn í spennandi heim lagasmíða. Þau hafa getið sér gott orð með hljómsveitunum Amabadama, Reykjavíkurdætrum og Subterranean og miðla nú reynslu sinni til næstu kynslóðar tónlistarfólks. Smiðjan er frábær grunnur fyrir verðandi laga- og textahöfunda. Börnin þurfa bara brennandi áhuga á því að prófa sig áfram. Takmarkaður fjöldi, skráning á Facebook: Bæjarhátíð í Búðardal.

Kl. 14:00 – 17:00 – Sundlauga þrautabraut í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þetta verður bæði blautt og gaman!

Meira

Klukkan

2. júlí, 2026 - 5. júlí, 2026 (Allann daginn)(GMT+00:00)

Leiðarvísir