Júlí, 2023

29júlAllann daginnPósthlaupið 2023Pósthlaup

Nánari upplýsingar

Pósthlaupið er 50 km utanvegahlaup frá Staðarskála í Hrútafirði yfir í Búðardal (600 m hækkun, 2 ITRA-stig). Í boði er einnig að hlaupa hálfa leið, um 26 km (1 ITRA-stig), eða síðasta spölinn í Búðardal, 7 km. Hlaupið fer fram laugardaginn 29. júlí.

Leiðarlýsing

Pósthlaupið er um 50 km utanvegahlaup sem hefst við minnismerki um landpósta við Staðarskála í Hrútafirði. Hlaupin er gömul landpóstaleið yfir Haukadalsskarð vestur í Haukadal og sem leið liggur niður dalinn, meðfram Haukadalsvatni, niður á reiðstíg við Vestfjarðaveg í Dölum og eftir honum og Vestfjarðavegi alla leið í Búðardal.

Fyrstu 15 km hlaupsins eru nokkuð á fótinn en eftir það er leiðin meira og minna niður á við eða flöt. Hækkunin er samtals um 600 m og hæsti punktur er í Haukadalsskarði.

Nokkurn veginn á miðri leið er Kirkjufellsrétt (nálægt bænum Smyrlhóli í Haukadal) og þar verður 26 km hlaupið ræst um það bil sem von er á hlaupurum úr Staðarskála.

Loks er hægt að velja síðasta legginn, um 7 km leið frá Búðardalsflugvelli á Kambsnesi yfir í Búðardal. Hlaupið verður ræst þegar von er á hlaupurum úr lengri hlaupunum.

Sætaferðir verða úr Búðardal að rásmörkum við Staðarskála, Kirkjufellsrétt og Búðardalsflugvöll. Á leiðinni verður boðið upp á drykkjarstöðvar og brautargæslu. Í marki verður boðið upp á hollar veitingar úr héraði.

Nánari upplýsingar og skráningu er að finna á HLAUP.is

 

Meira

Klukkan

Allann daginn (Laugardagur)

X
X