Sturluhátíð 2022 - og söguganga um Staðarhól
13ágú13:00Sturluhátíð 2022 - og söguganga um StaðarhólSturluhátíð 2022
Nánari upplýsingar
Sturlufélagið heldur árlega Sturluhátíð laugardaginn 13. ágúst nk. Hátíðin er kennd við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum. Hátíðin hefst með
Nánari upplýsingar
Sturlufélagið heldur árlega Sturluhátíð laugardaginn 13. ágúst nk.
Hátíðin er kennd við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum.
Hátíðin hefst með um klukkustundar sögugöngu um Staðarhól, en heldur síðan áfram í félagsheimilinu Tjarnarlundi, Saurbæ í Dölum og verða bornar fram kaffiveitingar.
Hátíðin er kennd við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum.
Hátíðin hefst með um klukkustundar sögugöngu um Staðarhól, en heldur síðan áfram í félagsheimilinu Tjarnarlundi, Saurbæ í Dölum og verða bornar fram kaffiveitingar.
Dagskrá:
Kl. 13:00 – Söguganga á Staðarhóli.
Fornleifafræðingarnir Guðrún Alda Gísladóttir og Birna Lárusdóttir segja frá staðnum, staðháttum og rannsóknum sem þar fara fram.
Kl. 14:00 – Sturluhátíð í Tjarnarlundi.
1. Einar K. Guðfinnsson formaður Sturlufélagsins, setur hátíðina og minnist frumkvöðulsins Svavars Gestssonar.
2. Guðrún Alda Gísladóttir fornleifafræðingur: Staðarhóll í Dölum: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun. Rannsóknir tengdar verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda.
3. Einar Kárason rithöfundur: „Í fornsögum falla öll vötn til Breiðafjarðar“.
4. Ungt tónlistarfólk, Una Torfadóttir og Tumi Torfason sem hafa vakið mikla og verðskuldaða athygli, annast tónlistarflutning á milli dagskráratriða.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og eru allir velkomnir.
Sturlufélagið býður kaffiveitingar að hætti heimamanna.
Sturlufélagið býður kaffiveitingar að hætti heimamanna.
Meira
Klukkan
13. Ágúst, 2022 13:00(GMT-11:00)
Staðsetning
Félagsheimilið Tjarnarlundur
371 Búðardalur
Other Events
Skipuleggjandi
Sturlufélagið
Tilgangur félagsins er að halda á lofti nafni Sturlu Þórðarsonar sagnaritara á Staðarhóli og að heiðra á allan hátt framlag hans til íslenskrar menningar. Félagið hefur samstarf við aðra aðila sem á einhvern hátt tengjast eða geta tengst verkum Sturlu Þórðarsonar. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með fundum, útgáfustarfsemi, sýningum og öðrum þeim hætti sem er talinn heppilegur til að stuðla að markmiðum félagsins. Þá mun félagið stuðla að stofnun, opnun og starfrækslu minningarreits um Sturlu Þórðarson að Staðarhóli í Dalabyggð.