September, 2022

22sept20:00Vestanátt í BúðardalVestanátt

Nánari upplýsingar

Vestanátt er samstarfsverkefni fjögurra vindorkufyrirtækja, þeirra Qair, Hafþórsstaða, Zephyr og EM Orku auk Norðuráls. „Verkefnið snýst um uppbyggingu grænnar raforku og orkutengdrar starfsemi á Vesturlandi. Hópurinn hefur að leiðarljósi að verðmætin, orkan og störfin sem verða til við virkjun vindorku á Vesturlandi, haldist og nýtist í nærsamfélaginu,“ segir í fréttatilkynningu.

Í næstu viku mun hópurinn halda opna kynningarfundi á þremur stöðum á Vesturlandi og vonast eftir góðu samtali við hagsmunaaðila og almenning. Kynningarfundirnir munu verða haldnir á eftirfarandi stöðum og tímum:

  • Borgarnesi, mánudaginn 19. september kl. 20:00 í Hjálmakletti
  • Akranesi, þriðjudaginn 20. september kl. 20:00 í sal Tónlistarskólans
  • Búðardal, fimmtudaginn 22. september kl. 20:00 í Dalabúð

Á dagskrá fundanna verður fræðsla um alþjóðlega þróun í loftslags- og orkumálum, sem Vilhjálmur Egilsson, fyrrverandi alþingismaður og rektor á Bifröst mun flytja. Þá verður kynnt skýrsla Deloitte um stöðu vindorku og möguleg áhrif uppbyggingar vindorku á Vesturlandi. Einnig verður stutt yfirlit frá forsvarsmönnum vindorkufyrirtækjanna fjögurra um möguleg verkefni þeirra á Vesturlandi. Loks verður stutt kynning á starfsemi Norðuráls.

Meira

Klukkan

(Fimmtudagur) 20:00

Staðsetning

Dalabúð

Miðbraut 8

X
X