Ársreikningur Dalabyggðar fyrir árið 2015 var samþykktur og undirritaður af sveitarstjórn 19. apríl. Þá var hann og kynntur á íbúafundi í Dalabúð 12. apríl.
Rekstrartekjur Dalabyggðar á árinu 2015 voru fyrir A og B-hluta 755,2 millj. kr. en rekstrargjöld 691,0 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 35,1 millj. kr. Fjármunagjöld umfram fjármunatekjur námu 15,1 millj. kr og rekstrarniðurstaða því jákvæð um 20,8 millj. kr.
Í A hluta voru rekstrartekjur 625,6 millj. kr., rekstrargjöld 558,5 millj. kr. og fjármagnsgjöld 2,8 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 44,3 millj. kr að teknu tilliti til fjármagnsgjalda.
Fastafjármunir voru í árslok 866,7 millj. kr., veltufjármunir 171,9 millj. kr. og eignir alls um 1.038.650 millj. kr. Langtímaskuldir voru 290,7 millj. kr., skammtímaskuldir 126,7 millj. kr., lífeyrisskuldbinding 83,6 millj. kr. og skuldir alls því um 501,0 millj. kr.
Fyrir A hluta var veltufé frá rekstri 75,0 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 79,8 millj. kr. Fyrir A og B hluta var veltufé frá rekstri 63,7 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 69,9 millj. kr. Veltufjárhlutfall var 1,91, eiginfjárhlutfall 0,57, skuldahlutfall 66% og skuldaviðmið 56,6%.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 56,5 millj. kr. Tekin voru ný langtímalán að upphæð 25 millj. kr. Handbært fé í ársbyrjun var 118,8 millj. kr. en í árslok 116,4 millj. kr.