Auðarskóli – lausar kennarastöður

DalabyggðFréttir

Við Auðarskóla er laus 77% staða kennara á unglingastigi og 100% staða umsjónarkennara á miðstigi fyrir skólaárið 2018-2019.

Kennsla á unglingastigi, smíðar, enska og danska.

Umsjónakennsla á miðstigi, stærðfræði, upplýsingatækni og náttúrufræði.

Mikilvægt er að umsækjendur búi að færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum og góðri íslenskukunnáttu.

Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í teymiskennslu.

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2018.

Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla.

Umsóknir um starfið berist á netfangið hlodver@audarskoli.is. Í umsókninni þurfa að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur.

Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi skólastjóri í síma 430 4757.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei