Aðalskipulag Dalabyggðar 2004-2016

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 10. apríl að auglýsa skipulags- og matslýsingu vegna breytingu á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004 – 2016, samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin er eftirfarandi:

Vindorkugarður í Sólheimum

Með skipulags- og matslýsingu þessari er íbúum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir sem snúa að málefnum aðalskipulagsins. Lýsingarferli annars samskonar verkefnis er í gangi.

Lýsingin liggur frammi, frá 24. apríl til og með 6. júní, á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, og á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.

 

Athugasemdum eða ábendingum skal skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11, Búðardal eða á netfangið skipulag@dalir.is fyrir 7. júní 2019.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei