Náttúrubarnahátíð á Ströndum
11júl11:00Náttúrubarnahátíð á Ströndum
Nánari upplýsingar
Fjölskylduhátíðin Náttúrubarnahátíð á Ströndum verður haldin laugardaginn 11. júlí nú í sumar. Þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin en þetta sumarið verður hún með örlítið óhefðbundnu sniði
Nánari upplýsingar
Fjölskylduhátíðin Náttúrubarnahátíð á Ströndum verður haldin laugardaginn 11. júlí nú í sumar. Þetta er í fjórða skipti sem hátíðin er haldin en þetta sumarið verður hún með örlítið óhefðbundnu sniði og fer til dæmis fram á einum degi en ekki þrem líkt og áður. Á hátíðinni fá allir gestir, bæði börn og fullorðnir, kjörið tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem flétta saman skemmtun og fróðleik.
Það er Náttúrubarnaskólinn sem stendur fyrir hátíðinni en hann hefur verið starfræktur síðan sumarið 2015. Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir fjölbreyttum námskeiðum yfir sumartímann og miðar að því að fræða börn á öllum aldri um ólíkar hliðar náttúrunnar á námskeiðum sem snúast um útivist og náttúruskoðun þar sem þau læra í gegnum leik.
Dagskrána má sjá hér:
11:00 Náttúrujóga með Hvatastöðinni
12:00 Rölt eftir stígnum Sjávarslóð og framkvæmdur Veðurgaldur
12:00 Hægt að kaupa súpur og samlokur í Sævangi
12:30 Magnað atriði frá Sirkus Íslands
13:00 Spennandi útismiðja með Jóni Víðis
14:30 Náttúruhljóðsmiðja, hljóðum úr náttúrunni safnað og notuð í tónverk með aðstoð tækninnar, Auður Viðarsdóttir er listrænn stjórnandi smiðjunnar
16:00 Gönguferð í teistuvarpið, kíkt á teistuunga sem búa í kössum í fjörunni
17:00 Strandahestar, bogfimi, opið hús í tilraunastofunni, plastdýragarðinum og fleira
17:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur í Sævangi
19:00 Töfrasýning með Jóni Víðis
20:00 Stuðboltinn Raggi Torfa stjórnar fjörusöng
21:30 Trölla- og draugasögur í Sagnahúsinu
Það er frítt á öll atriði hátíðarinnar en hún er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða.
Hægt er að kynna sér hátíðina á Facebook síðu Náttúrubarnaskólans, á natturubarnaskoli@gmail.com eða hjá Dagrúnu í síma 661-2213.
Meira
Klukkan
11. Júlí, 2020 11:00(GMT+00:00)