Matvælasjóður auglýsir úthlutun í annað sinn

DalabyggðFréttir

14. maí sl. var opnað fyrir umsóknir í Matvælasjóð. Þetta er í annað sinn sem sjóðurinn auglýsir úthlutun. Matvælasjóður mun fá 250 milljón króna viðbótarframlag á þessu ári og er heildarúthlutunarfé sjóðsins alls 630 milljónir króna. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og sjávarafurðum á landsvísu.

Áhersla sjóðsins er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu og hliðarafurða um land allt. Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.

Sjóðurinn hefur fjóra flokka:

  • Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni.
  • Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.
  • Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
  • Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér heimasíðu sjóðsins, www.matvælasjóður.is en þar má finna handbók Matvælasjóðs, upplýsingar um umsóknir og allar nánari upplýsingar um sjóðinn. Í þessari annarri úthlutun hefur verið unnið að því að einfalda og skýra umsóknarferlið, handbók fyrir umsækjendur hefur verið uppfærð og skerpt á áherslum sjóðsins.

Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2021. 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei