Drög að tillögu um svæðisskipulag

DalabyggðFréttir

Drög að svæðisskipulagstillögu fyrir Dalabyggð, Reykhólahrepp og Strandabyggð liggja nú fyrir.
Svæðisskipulagsnefnd ákvað á fundi sínum um miðjan júní sl. að kynna drögin óformlega á netinu í sumar og óska eftir ábendingum frá íbúum og öðrum hagsmunaaðilum fyrir 10. ágúst nk.
Eftir þann tíma verður unnið úr ábendingum sem kunna að berast og gengið frá tillögu til formlegrar kynningar samkvæmt 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga. Sú kynning verður auglýst undir lok ágúst. Í kjölfar hennar verður gengið frá tillögu til auglýsingar og er ráðgert að hún fari fram á tímabilinu nóvember-janúar með a.m.k. 6 vikna athugasemdafresti eins og skipulagslög gera ráð fyrir.
Í drögunum eru settar fram tillögur um
framtíðarsýn sem lýsir, í stuttu máli, þeim árangrisem sveitafélögin vilja ná á næstu 15 árum.
leiðarljós sem sveitarfélögin munu hafa í hávegum við það starf.
svæðismark sem dregur fram þau sérkenni svæðisins sem sveitarfélögin eru sammála um að viðhalda og styrkja.
sóknarmarkmið fyrir áherslugreinar svæðisskipulagsins; landbúnað, sjávarnytjar og ferðaþjónustu.
stefnu um landnotkun og grunngerð sem styður við sóknarmarkmiðin og er til nánari útfærslu í aðalskipulagi sveitarfélaganna og deiliskipulagi einstakra svæða.
Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér tillöguna í sumar og senda ábendingar fyrir 12. ágúst nk. til Matthildar Kr. Elmarsdóttur verkefnisstjóra hjá Alta. Ábendingar má senda með tölvupósti til matthildur@alta.is eða með bréfpósti til Alta, Ármúla 32, 108 Reykjavík.

Drög að tillögu um svæðisskipulag

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei