Styrkumsóknir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar

DalabyggðFréttir

Nú hefur verið opnað fyrir styrkumsóknir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar. Lögbundinn lokafrestur umsókna vegna flutningskostnaðar árið 2022 er 31. mars 2023.

Athugið að ekki er tekið við umsóknum sem berast eftir þann tíma. Skila þarf umsókn í gegnum eyðublað sem má finna hér.
Athygli er vakin á því að umsóknareyðublaðið hefur verið einfaldað frá fyrra ári með það að markmiði að minnka tímann sem fer í að sækja um og samhliða því hefur verið gefið út nýtt hjálparskjal sem nauðsynlegt er að fylla út og senda inn með umsókn. Í hjálparskjalinu eru m.a. slegnar inn nauðsynlegar upplýsingar sem áður voru á eyðublaðinu. Sjá nánar hér.

Eitt af grunnskilyrðum þess að geta sótt um styrk er að viðkomandi sé annað hvort:

a) Einstaklingur/lögaðili sem skráður er í C-bálk íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar
b) Einstaklingur/lögaðili sem framleiðir með ræktun ávexti, blóm eða grænmeti og fullvinnunnur framleiðslu sína í söluhæfar umbúðir enda falli framleiðslan undir flokk 01.1, ræktun nytjajurta annarra en fjölærra, og/eða flokk 01.2, ræktun fjölærra nytjajurta, í A-bálki íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar.

Hægt er að kanna skráningu einstaklinga/lögaðila í ÍSAT2008 hjá fyrirtækjaskrá RSK.

Markmið verkefnisins er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði. Flytja þarf því hálfunna eða fullunna vöru 150 km eða lengra, hvort sem er á sjó, lofti eða landi, á innanlandsmarkað eða að útflutningshöfn til að geta sótt um styrk.

Nánari upplýsingar um styrkina má finna hér eða senda fyrirspurn á netfangið flutningsjofnun@byggdastofnun.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei