Tómas R. á Laugum

DalabyggðFréttir

Dalamaðurinn og bassaleikarinn Tómas R. Einarsson og slagverksleikarinn Matthías MD Hemstock munu flytja lagaflokk Tómasar, Streng, á Hótel Eddu Laugum fimmtudaginn 11. ágúst, kl. 21.
Auk bassa og slagverks fléttast fjölbreytileg vatnshljóð saman við tónlistina ásamt vídeóum. Tómas R. ólst upp á Laugum og hljóðritaði vatnshljóð þar í nágrenninu sem er að finna í verkinu.
Strengur er óður Tómasar til fólksins sem hann er kominn af og persónulegt myndbandsverk bætir sjónrænni upplifun við þessa óvenjulegu tónlist.
Strengur var frumfluttur á Listahátíð í Reykjavík og kom út á geisladiski og mynddiski s.l. vor og hefur fengið afbragðsdóma.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei