Vinnuskóli Dalabyggðar hefst 13. júní

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 13. júní  og til loka júlí, fyrir unglinga fædda 2006 til 2010.

Starfsmenn Vinnuskóla hafa kost á að nýta sér akstur frístundabíls í júní. Akstur er umsækjendum að kostnaðarlausu.

Vegna þess að gert er ráð fyrir að frístundabíll sé kominn í Búðardal kl.09:00, þá mun vinnutími Vinnuskóla sömuleiðis hefjast kl.09:00 hjá öllum.

Ef spurningar vakna eða óskað er nánari upplýsinga má hafa samband á netfangið: vinnuskoli@dalir.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei