Auðarskóli gerir samning um stuðning við skólastarf

DalabyggðFréttir

Í reglugerð nr. 444/2019 um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum kemur m.a. fram að: „Sveitarfélög skulu tryggja að viðeigandi skólaþjónusta sé veitt í leik- og grunnskólum, ákveða fyrirkomulag hennar og stuðla að því að hún fari fram innan skóla.“

Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á 311. fundi sínum samning Auðarskóla við Ásgarð skólaráðgjöf um sérfræðiþjónustu við starfsfólk Auðarskóla, leik- og grunnskóla sveitarfélagsins og framkvæmd menntastefnu ríkisins.

Ásgarður býður upp á sérfræðiþjónustu við framkvæmd skólastarfs í leik- og grunnskólum. Markmið samningsins er fyrst og fremst að efla Auðarskóla sem faglega stofnun með kerfisbundnum stuðningi við stjórnendur, kennara og starfsfólk skólans og sveitarfélagsins.

Í samkomulagi Ásgarðs og Dalabyggðar verður unnið eftir nokkrum áherslum, m.a. að sýn og stefna sveitarfélagsins sé skýr og skólastefna/menntastefna endurspegli vilja sveitarfélagsins til umbóta í skólamálum, fjármagn sé vel nýtt og starfshættir beri skýr einkenni gæðastarfs, heilbrigt hlutfall sérkennslu og skýr markmið um árangur og að skólastarf uppfylli skilyrði skólastefnu sveitarfélagsins og menntastefnu ríkisins.

Aðspurð segir Herdís Erna Gunnarsdóttir, skólastjóri Auðarskóla að stór áfangi sé í höfn í skóla- og menntamálum í Dalabyggð með tilkomu samningsins.

Við munum nýta þjónustuna fyrst og fremst til að auka gæði skólastarfsins fyrir börnin og nemendur okkar. Til þess að svo megi verða þurfum við hér í Dalabyggð að móta skýra og sterka skóla- og menntastefnu öllum börnum til hagsbóta. Segja má að við stöndum á ákveðnum krossgötum í skólastarfinu og það er ánægjulegt að fá að leiða það starf. Ég er sannfærð um að samningurinn veiti okkur þau „tól og tæki“ í átt að betri gæðum, enda er mannauður skólans og foreldrasamfélagið gott og sterkt og með áframhaldandi góðri samvinnu og jákvæðni getum við saman hámarkað árangurinn“ segir Herdís.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei