Íbúafundir – kynning á fjárhagsáætlun

DalabyggðFréttir

Með von um að sem flestir íbúar sjái sér fært um að mæta og taka þátt í umræðum verða haldnir tveir opnir fundir til kynningar á fjárhagsáætlun Dalabyggðar fyrir árin 2024-2027.

Fyrri fundurinn verður haldinn mánudaginn 27. nóvember kl.17:00

Seinni fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 29. nóvember kl.20:00

Báðir fundir verða í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar (1. hæð Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar að Miðbraut 11 í Búðardal).

Eitt og sama málið á dagskrá beggja funda: Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2024 – 2027

Heitt á könnunni og íbúar hvattir til að mæta.

F.h. sveitarstjórnar Dalabyggðar
Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei