Vinnuskóli Dalabyggðar 2024

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 10. júní  og til loka júlí, fyrir unglinga fædda 2007 til 2011. Sigríður Jónsdóttir verður umsjónarmaður Vinnuskólans 2024.

Umsækjendur eru beðnir um að taka það fram á umsókninni ef sótt hefur verið um sumarstörf á fleiri stöðum.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí nk. Athugið að ekki er hægt að tryggja að umsóknir sem berast eftir þann tíma verði samþykktar.

Starfsmenn Vinnuskóla hafa kost á að nýta sér akstur frístundabíls í júní, athugið að taka þarf fram á umsókn ef umsækjandi hyggst nýta frístundabíl til að komast til og frá vinnu. Akstur er umsækjendum að kostnaðarlausu.
Einnig er í boði að skrá sig í mat í júní (þ.e. meðan leikskóli er starfandi), þá þarf að taka það fram á umsókn. Boðið er upp á hádegismat sem er framreiddur kl.12:00 og kostar það sama og hádegismatur samkv. gjaldskrá Auðarskóla eða 561 kr.- pr. dag.

Vegna þess að gert er ráð fyrir að frístundabíll sé kominn í Búðardal kl.09:00, þá mun vinnutími Vinnuskóla sömuleiðis hefjast kl.09:00 hjá öllum. 

Ef spurningar vakna eða óskað er nánari upplýsinga má hafa samband á netfangið: vinnuskoli@dalir.is

Frekari upplýsingar:

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei