Sumarbingó bókasafnsins 2024 (fyrir 5-12 ára)

DalabyggðFréttir

Sumarbingó Héraðsbókasafns Dalasýslu verður nú endurtekið þriðja sumarið í röð. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára.

Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum.

Því ætlar sveitarfélagið Dalabyggð að leggi sitt af mörkum með lestrarátaki í samstarfi við Héraðsbókasafn Dalasýslu sumarið 2024.

Um er að ræða bókabingó í þremur aldursflokkum, þ.e. 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára. Nýjung er að nú geta foreldrar/forráðamenn/fullorðni fjölskyldumeðlimir einnig fengið bingóspjald fyrir sig. Þannig er hægt að fylgja barninu í gegnum lestur sumarsins, sýna gott fordæmi og efla hvatningu til lesturs.
Á hverju spjaldi eru nokkrir reitir, hver reitur lýsir aðstæðum eða athöfn sem skal framkvæma á meðan lestri stendur. Þegar viðkomandi reit er lokið er merkt við hann.
Aftan á hverju spjaldi er beðið um tímabil sem bók er lesin á, titil bókar og nafn höfundar og hve margar blaðsíður bókin er.

Hægt er að sækja bingóspjöld á bókasafnið frá og með þriðjudeginum 4. júní og bingóið stendur yfir sumarið. Eftir sumarið skila börnin inn bingóspjaldinu sínu á Héraðsbókasafn Dalasýslu, eigi síðar en fimmtudaginn 22. ágúst og í september verður svo uppskeruhátíð þar sem þátttakendur fá að launum glaðning ásamt viðurkenningarskjali fyrir að hafa lokið við bingóið.

Héraðsbókasafn Dalasýslu er opið á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:30 til 17:30. Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er fimmtudagurinn 27. júní. Bókasafnið verður þannig lokað frá 28. júní til og með 5. ágúst, opnar að nýju eftir sumarleyfi þriðjudaginn 6. ágúst.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei