Framlengdur frestur: Óskað eftir framboðum í ungmennaráð Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Fræðslunefnd Dalabyggðar óskar eftir framboðum í ungmennaráð.

Í ungmennaráði geta orðið allir þeir sem eiga lögheimili í Dalabyggð og eru á aldrinum 14 – 20 ára.

Hlutverk ungmennaráðs er m.a.:

  • Að veita sveitarstjórn ráðgjöf um málefni ungs fólks í sveitarfélaginu.
  • Að gæta hagsmuna ungs fólks, koma skoðunum þeirra og  tillögum til skila.
  • Að veita ungu fólki fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Að efla tengsl ungmenna í sveitarfélaginu og auka tengsl þeirra við stjórnkerfi sveitarfélagsins.

Stjórn ungmennaráðs skipa 4 fulltrúar; formaður, varaformaður, ritari og varamaður.

Ungmennaráð er skipað til tveggja ára í senn og skipað er í helming sæta árlega. Því er nú skipað í tvö sæti.

Framboðum skal skila til  Dalabyggðar á netfangið dalir@dalir.is fyrir 26.09.2024, þar sem fram kemur kynning á ykkur, ásamt ástæðu þess að þið viljið starfa í ráðinu.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei