Uppskeruhátíð sumarbingós bókasafnsins verður 7. október

DalabyggðFréttir

Mánudaginn 7. október nk. kl. 16:00 býður Hérðasbókasafn Dalasýslu þeim börnum sem skiluðu inn útfylltum bingóblöðum sínum sumarið 2024, að koma í Nýsköpunarsetur Dalabyggðar að Miðbraut 11 (á 1. hæð, til móts við bókasafnið) og fá afhentar þátttökugjafir.  

Þeim er velkomið að bjóða fjölskyldunni með sér og gleðjast yfir velheppnuðu lestrarátaki. Eins hvetjum við foreldra sem skiluðu inn sínum blöðum að mæta líka og taka á móti glaðningi fyrir að vera fyrirmyndir í sumarlestri.

Í sumar stóð Héraðsbókasafn Dalasýslu fyrir lestrarátaki fyrir börn á aldrinum 5-12 ára í þriðja sinn.

Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum.

Um var að ræða bókabingó í þremur aldursflokkum, þ.e. 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára. Bingó-spjöld til þátttöku voru sótt á bókasafnið en á hverju spjaldi voru nokkrir reitir sem lýstu aðstæðum eða athöfn sem átti að framkvæma á meðan lestri stóð.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei