Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands fyrir úthlutun janúar 2025
Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.
Í þessari úthlutun eru:
– Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
– Verkefnastyrkir til menningarmála
– Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála
Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér
Kynnið ykkur vel reglur og viðmið varðandi styrkveitingar – HÉR
Atvinnu- og nýsköpunarverkefni:
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707
Hrafnhildur Tryggvadóttir hrafnhildur@ssv.is 849-2718
Menningarverkefni:
Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is 698-8503
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2024 kl. 16:00