Álagningu fasteignagjalda (fasteignaskattur, lóðarleiga, vatnsgjald, sorpgjald, fráveita og rotþróargjald) er að ljúka og munu álagningarseðlar birtast á Island.is. Við afsökum hve seint álagning skilar sér en ákveðnar breytingar við úrvinnslu ullu töfum.
Í ljósi tafa verður staðgreiðslufrestur lengdur og því munu þeir sem greiða upp fasteignagjöldin fyrir 20. febrúar fá 5% staðgreiðsluafslátt.
Einhverjir vilja leggja beint inn fyrir fasteignagjöldunum, þá þarf að muna að senda tilkynningu um millifærslu á ingibjorgjo@dalir.is
Reikningsupplýsingar fyrir greiðslu fasteignagjalda eru: kt. 510694-2019 rkn.nr. 0312-26-1818
Álagningarseðlar verða ekki sendir á pappír heldur aðeins birtir á Island.is. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í tölvupósti eða útprentaðan geta sent beiðni um slíkt á dalir@dalir.is eða hringt í skrifstofu Dalabyggðar, síminn er 430 4700.
Álagningarhlutfall fasteignaskatts 2025 verður sem hér segir:
a) 0,50% af álagningarstofni íbúðarhúsa, útihúsa og sumarbústaða ásamt lóðarleiguréttindum og jarðeigna skv. a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 umtekjustofna sveitarfélaga.
b) 1,32% af álagningarstofni opinbers húsnæðis, skv. b-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
c) 1,50% af álagningarstofni allra annarra fasteigna og lóða skv. c-lið 3. gr. laga nr. 4/1995.
Fjölda gjalddaga er almennt 8, sá fyrsti 5. febrúar og sá síðasti 5. september. Ef heildargjöld greiðanda eru undir kr. 12.000 þá er einungis einn gjalddagi 5. apríl. Ef heildargjöld greiðanda af fasteignagjöldum (án viðbótarkostnaðar) eru lægri en 250 kr. eru þau ekki innheimt.
Afsláttur af fasteignaskatti ellilífeyrisþega og öryrkja sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 og reglur Dalabyggðar miðast við árstekjur (heildartekjur) tveimur árum fyrir álagningu (2023), sbr. skattframtal árið fyrir álagningu (2024) og gilda fyrir lækkun fasteignaskatts á álagningarári (2025). Afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega getur þó að hámarki verið 85.000kr.- árið 2025.
Afsláttarþrep má sjá hér: Álagning útsvars og fasteignagjalda 2025
Aðrar forsendur fyrir álgagningu s.s. er varða vatnsgjald, sorpgjald, fráveitu, rotþróargjald og hirðingu dýraleifa má finna í gjaldskrám: Gjaldskrár
Varðandi breytingar á sorphirðu og gjaldskrá úrgangsmála minnum við á þær breytingar sem voru gerðar í lok síðasta árs: Breytingar á sorphirðu