Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar og Iða Marsibil Jónsdóttir framkvæmdastjóri Leigufélagsins Bríetar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýbyggingu að Borgarbraut 2 í Búðardal.
Um er að ræða parhús og er hvor íbúð um sig 63m2, íbúðirnar saman standa af alrými, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og forstofu. Vonir eru bundnar við að verkið klárist í júlí og íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar væntanlegum leigjendum fyrir lok sumars.
Iða segir bygginguna í Búðardal styðja vel við markmið og framtíðarsýn félagsins. „Markmið Bríetar er að vera hluti af uppbyggingu og styrkingu leigumarkaðar sem stuðlar að öryggi á langtímaleigumarkaði með sérstaka áherslu á landsbyggðina og í samstarfi við sveitarfélögin í landinu. Langtímamarkmið Bríetar er að stuðla að nýsköpun og uppbyggingu þar sem þörf er á því á landsbyggðinni.“
Bjarki segir það gríðarlega mikilvægt fyrir Dalabyggð að fá verkefnið í gang. „Húsnæðismarkaðurinn er þannig að það vantar bæði eignir til kaups og leigu og ef skoðaður er fasteignavefur á miðlunum þá er ekkert hús eða íbúð til sölu í Búðardal núna. Okkar er að fjölga, íbúatalan stendur í 679 núna 1.júní sl. og hefur verið fjölgun það sem af er ári og fólk hefur áhuga á Dölunum og því sem er að gerast og við þeim áhuga verðum við að bregðast með t.a.m. verkefni sem þessu.“
Sveitarfélagið Dalabyggð eignaðist 1,54% í formi hlutafjár í Leigufélaginu Bríet 2023 þegar Bríet eignaðist eignir sveitarfélagsins við Stekkjarhvamm og Gunnarsbraut. Bríet býður fjölbreytta húsnæðiskosti út um allt land og telur eignasafn félagsins um 500 fasteignir í 45 sveitarfélögum sem eru nú þegar í útleigu.