Með vísan í tilkynningu hér á heimasíðu Dalabyggðar frá því 15. maí sl. (sjá: Umgengni grenndarsvöðva) vill undirritaður biðla til þeirra sem um grenndarstöðvar ganga að sína umhverfinu og þeim reglum sem um grenndarstöðvar gilda virðingu.
Ef ílát eru full þá biðlum við til fólks að skilja ekki eftir úrgang utan við þau heldur láta vita og annað hvort bíða með að skilja eftir úrgang eða fara með á næstu grenndarstöð.
Hægt er að hafa samband við skrifstofu Dalabyggðar í síma 430-4700 og á netfangið dalir@dalir.is eða á opnunartíma: 10-13 á mánudögum, 09-13 þriðjudaga-fimmtudaga og 09-12 á föstudögum.
Þá minnum við á að endurvinnslustöðin í Búðardal er að Vesturbraut 22, hún er opin 14-18 á þriðjudögum og fimmtudögum, 10-14 á laugardögum en lúgur til að skila flokkuðu heimilissorpi (pappa, plasti, gleri o.s.frv.) eru aðgengilegar allan sólarhringinn.
Við höfum því miður nú endurtekið þurft að grípa til sérstaks viðbragðs hvað varðar grenndarstöðina við Félagsheimilið að Staðarfelli þar sem rusl hefur verið skilið eftir utan við þau ílát sem um ræðir og þar sem fuglar og önnur dýr hafa komist í úrgang.
Virðingarfyllst,
Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar